Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2005, Qupperneq 19
DV Fréttira
MimmiGufcz öxfómim 19
Samhugur fólks var mikill
Samhugur í verki safnaði
milljónum til handa fórnar-
lömbum flóðanna.
Þórunn Vernharðsdóttir missti nokkra vini á árinu 1995 í snjóflóðum bæði á Flateyri og Isafirði.
Einnig missti Þórunn vin sem féll fram af snjóhengju á vélsleða milli Skálavíkur og Bolungarvík
ur. Árið 1995 líður Þórunni seint úr minni. -----------------------------------
„Eftir allar hörmung-
arnar bar hver
Þórunn Vernharðsdóttir segir að allir sem bjuggu á
Vestfjörðum árið 1995 hafi verið harmi slegnir. Þeir
gleymi aldrei þessu hörmungarári. í snjóflóðinu sem
féll á Súðavík 16. janúar fórust 14 manns og á Flat-
eyri létust 20 manns í snjóflóðinu 25. október.
„Ég fann fyrir doða sem lagðist yfir
‘ - . „ mig eins og svart ský,“ segir Þórtmn
—ð______ g Vernharðsdóttir sem var á morgun-
. . • vakt á spítalanum á ísafirði þegar snjó-
J35 flóðið féll á Flateyri fýrir 10 árum.
sjúkrahúsið frá einu húsanna á Flat-
eyri var stopp akkúrat á þeirri mínútu
sem snjóflóðið féll á byggðina.
„Það var sjokkerandi að sjá klukk-
una stopp því atburðurinn varð mér
svo áþreifanlegur. En það var ótrúlegt
hvað fólkið sem lenti í þessum hörm-
ungum var duglegt og eftir allar hörm-
ungarnar bar hver sína sorg í hljóði,"
segir Þórunn.
Flóðavarnir drepa byggð
Þórunn, sem bjó lengi í Hmfsdal á
milli ísafjarðar og Bolungarvíkur, segir
að Ofanflóðasjóður sé búinn að kaupa
18 hús í Hnífsdal og sé að kaupa fleiri.
Þetta geri það að verkum að byggðin
þar sé svo til að leggjast niður:
„Fólkið fyrir vestan sem ég þekki til
er á þeirri skoðun að það sé gert of
mikið úr snjóflóðavörnum víða á Vest-
íjörðum. Mér finnst að það sé mark-
visst verið að leggja landsbyggðina af
og drepa allt niður. f Hnífsdal hefur öll
þjónusta verið lögð niður. Þetta er ekki
jákvæð þróun."
jakobina@dv.is
Vinir og ættjngjar fórust
„Þetta var hræðilegt ár sem líður
mér seint úr minni," segir Þórunn. „Ég
missti góða vini í hörmulegum slysum,
slys sem urðu vegna mikilla snjó-
þyngsla á Vestfjörðum þetta ár. Annar
var Kristján Jónasson sem lést í snjó-
flóðinu hér á fsafirði í sumarbústaða-
byggðinni. Hinn var Gunnar Leóson
sem fór fram af snjóhengju á milli
Skálavíkur og Bolungarvíkur. Ég missti
ættingja í snjóflóðinu á Flateyri,
hana Geirþrúði Friðriksdóttur
sem fórst ásamt manni sínum.
Súðavíkursnjóflóðið var gífurlegt
áfall líka.“
Þökkum guöi aö 10
voru aö heiman
DV 27. október 1995
Smátt og smátt kom umfang
hins hryllilega atburðar I Ijós.
tertfyrir
ihríðinni
Þórunn Vernharðsdóttir Vará
morgunvakt á spitalanum á Isafirði
þegar snjóflóðið féll á Flateyri.„Þetta
var hræðilegt ár sem llður mér seint úr
minni.“
DV25. október 1995
Daginn fyrir örlaganóttina
sagði DV frá því að blikur
væru á lofti á Vestfjörðum.
Klukkan stoppaði
Þórunn minnist þess að vekjara-
klukka sem var inni í laki sem kom á
Kyrrðarstund
Snjóflóðavarnirnar hafa margsannað sig
„Þetta verður látlaust," segir
Halldór Halldórsson bæjarstjóri
um kyrrðar-
stund sem
verður í kirkj-
unniá /% g
Flateyri allan ^ m
daginn. I
kvöld verður
minningarathöfn f íþróttahúsinu.
Meðal góðra gesta er Vigdís
Finnbogadóttir sem var forseti
þegar ósköpin dundu yfir. „Flat-
eyringar bjóða henni," segir
Halldór, „þeir eru minnugir þess
hvernig hún studdi við þá í þess-
ari miklu sorg.“
Fyrir Flateyringa sem ekki
eiga heimangengt, og aðra þá
sem minnast vilja fómarlamba
flóðsins, er rétt að benda á að
bænastund verður haldin í Nes-
kirkju við Hagatorg. Séra Örn
Bárður Jónsson mun leiða bæna-
stundina.
eyrinni og eitt nýtt hús byggt.
Árið 2001 gerðu ísafjarðarbær og
ríkið samning sem skipti sköpum
við frekari uppbyggingu á Flateyri.
„Samningurinn gerði okkur kleift í
að gera miklu meira, gatnagerð, fe
klára opin svæði og annað sem 1
þurfti," segir Halldór. Hann bætir g|
þó við að enduruppbyggingunni |
sé enn ekki lokið. *
Þegar snjóflóðið reið yfir bjó
Halldór fyrir sunnan. Hann minnist
þess að hafa horft á hörmungamar í
sjónvarpinu, eins og reyndar lands-
menn allir. Hann er fæddur og upp-
alinn á Vestfjörðum og þekkti því
fólk á Flateyri, bæði sem bjargaðist
og sem fórst. „Þetta var skelfilega
erfitt," segir
hann.
johann@dv.is
„Það var mjög ólíkt hvernig farið
var að við að veija," segir Halldór
Halldórsson um muninn á endur-
uppbyggingunni á Súðavík annars
vegar og Flateyri hins vegar í kjölfar
snjóflóðanna 1995.
Halldór er bæjarstjóri í ísafjarð-
arbæ sem Flateyri er nú hluti af. „Á
Súðavík var byggðin flutt en á Flat-
eyri var haldið áfram með þorpið
eins og það leit út," segir Halldór.
Gmndvöllurinn fyrir því að ekki
þurfti að flytja byggðina á Flateyri
var gríðarlega öflugur snjóflóða-
varnargarður sem var reistur fyrir
ofan byggðina.
„Fram að þessum miklu slysum
1995 höfðu verið gerðar snjóflóða-
varnir á nokkmm stöðum sem vom
vart sýnilegar," segir Halldór. „Nú
var þetta gert eins og erlendis. Það
var byggð stóreflis A-laga snjóflóða-
vöm sem er fyrsta snjóflóðavöm af
því tagi hér á landi." Sú vöm hefur
þegar sannað gildi sitt oftar en einu
sinni.
Fram til ársins 2001 snerist upp-
byggingin að mestu um það að laga
til að sögn Halldórs. Ný bensínstöð
var reist og nýr leikskóli byggður fyr-
ir söfnunarfé frá Færeyjum. Einnig
vom nokkur hús gerð upp neðst á
Halldór Halldórsson
Uppbyggingunni á Flateyri
er ekki lokið að mati Hall-
dórs Halldórssonar, bæjar-
stjóra ísafjarðarbæjar.
FRA FLATEYRI