Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Blaðsíða 16
7 6 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 Sport 33V í SJÓNVARPINU Wigan-Fulham Camara klár. McCulloch í banni. Volz og Pearce klárir. LaukUL45 Tottenham-Arsenal Davids í banni. Defoe og Mido klárir. Henry meiddur. Ljungberg og Campell klárir. Lau.kl.l2 sigurlagið fyrirQPR Óþekki rokkarinn Pete Doherty sem er þekktastur fyrir að hafa átt í ástar- sambandi við ofur- fyrirsætuna Kate Moss hefur samið sig- urlagið í FA-bikar fyrir QPR, sem leikur í ensku ^ Championship-deildinni í fótbolta. Doherty sem alla tíð hefur stutt QPR er sannfærður um að liðið vinni bikarkeppnina í vor og því tilbúinn með lag sem mun verða frumflutt þegar liðið tekur við dollunni. „Ég var mjög móðgaður að stjómarmenn í félaginu hafi ekki haft mig í huga þegar nýtt QPR-lag kom út nú fyrr í ár. En ég læt það ekki stoppa mig. Ég er með tilbúið sigurlagið í bikarnum," sagði Doherty í viðtali við stuðnings- mannasíðu félagsins. Þá lofar hann því að í geisladiskahulstrinu verði mynd af Kate Moss í QPR- búningnum. Markverðir rændlr Nýjasta tískan meðal þjófa í Bret- landi er að ræna heimili markvarða í ensku úrvalsdeildinni. Fyrst var það Paul Robinson landsliðsmarkvörður, svo var það Tony Coton markvarða- þjálfari Manchester United og nú síðast Ian Walker, varamarkvörður Bolton. Brotist var inn á heimili Wal- kers á fimmtudagskvöld og tóku þjófarnir þýfi að virði milljóna króna. Það er vonandi að íslenskir þjófar taki ekki upp siði þeirra ensku og láti íslenska markverði í friði. Birmlngham-Everton Heskey tæpur. Taylor klár. Kilbane tæPur- Lou.kl.14 Chelsea-Blackbum Carvalho og Bridge klárir. Bellamy líka. Lau.kl.14 Charlton-Bolton Spector og Perry sennilega með sem og Speed og Okocha. Lau.kt.14 L'pool-West H. Finnan sennilega með. Benayoun og Zamora tæpir. Lau.kt.14 Sund.- Portsm. Breen og Stubbs tæpir. Arca ekki með. O'Brian meiddur. LauM14 Middlesbrough-Man. U. Brown og Richardson klárir. Southgate og Ehiogu meiddir. Pogatetz tæpur. Lau.kl. 16.30 WBA-Newcastle Kirkland ekki með. Robinson í banni. Gera tæpur. Owen klár. Sun.kt.1S Tilbúinn með BOLTINN EFTIRVTNNU Rio Ferdinand kennir ömurlegum tónlistarsmekki fyrirliðans um töpin gegn Dönum og Norður-írum í síðasta mánuði. Lyftutónlist hefur fengið að hljóma í búningsklefa Englands sem gengur ekki að sögn Ferdinands. T ónlistapsmekkur Beckhams ummæii *il(unnii’ „Þetta gerðu þeir vegna þess að þeir fá svo margar vita- spyrnur dæmdar sér i hag yfir tímabilið og urðu að prófa eitthvað spes." Jose Mourinho var ekki lengi að koma með tiigátur um afhverju Robert Pires og Thierry Henry ákváðu að taka vltiö sérstaka eins og þeirgeröu I leiknum gegn Manchester City um helgina. Pires átti að renna boltanum afvítapunktinum á Henry en Pires fraus á ögurstundu. Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United og enska lands- liðsins, segir David Beckham ábyrg- an fyrir tapinu gegn Dönum í vin- áttulandsleik og Norður-írum í und- ankeppni heimsmeistaramótsins. Fyrir þá leiki fékk meistari David Beckham, sem er fyrirliði Englands og fyrrverandi samherji Rio Ferdin- and hjá Manchester United, að ráða tónlistinni. „Tónlistarsmekkur Bechams er algjör viðbjóður. Hann valdi tónlist- ina í klefanum fyrir leikina gegn Dönum og Norður-írum. Það sem var spilað var Robbie Williains, James Blunt og éitthvað R&B drasl. Slíka tónlist á maður ekki að spila fyrir léiki, hún dró okkur niður'eða peppaði okkur ekki upp eins og tónlist fyrir leiki á að gera. Það er meira stuð að hlusta á ræður Sven Görans þjálfara en lög eins og Beautiful með James Blunt sem er ágætur þegar maður er í rómantískum hugleiðingum. Þessi lyftutónlist má ekki vera inni í klefa því hún svæfir okkur,“ sagði Rio Ferdinand, miðvörður enska lands- liðsins. Ferdinand segir að músíkin verði að batna fyrir HM í Þýskalandi á næsta ári ef ekki á illa að fara. „Ég krefst úrbóta. Ég tel að við þurfum að spila áræðnari og djarfari tónist. Helst vil ég fá að heyra hipphopp eða flott rokk en ekki þetta væl." Ekki er vitað hvað önnur lið muni hlusta á fyrir leiki en þó verða Bras- ilíumenn líklega með einhvern samba undir geislanum og Svíar treysta væntanlega á ballöður frá Sven Ingvars. Cole með upphitunarherbergi j Andy Cole, fyrrverandi lands- | liðsmaður Englands og núver- andi leikmaður Manchester City, var algjör kóngur hjá sfnu gamla félagi Manchester United þar sem hann vann nánast alla þá titla sem í boði voru. Cole þoldi illa þá tónlist sem var spiluð í klefanum hjá United og var því með sitt eigið upphitun- arherbergi þar sem hann spil- aði sína uppáhaldstónlist. Eftirlætislag Cole áður en hann hleypur út á völlinn er lagið Bootylicious sem Dest iny’s Child gerðu ódauðlegt hér um árið. Árni Gautur sér um tónlistina hjá landsliðinu Það er enginn ann- ar en Árni Gautur Arason lansliðs- - markvörður sem sér um tónlist- ina hjá ís lenska landslið- inu í knatt- spyrnu. „Hann Árni hefur séð um tónlistar- málin. Við höfum getað sent inn beiðnir um óskalög og hann reynir að verða við þeim," sagði Kristján Finnbogason markvörður KR og ís- lenska landsliðsins í samtali við DV. „Hjá KR erum við nýkomnir með græjur inn í klefann og það eina sem hefur fengið að hljóma í þeim er ein- hver 80’s-diskur sem mér líkar ágæt- lega." „Ha, unnum við ekki leikinn," sagði Múrenan alveg hrokalaust eftir að Everton náði jafntefli gegn Chelsea. Smáuppreisn æru fyrir Everton áður en þeir duttu út úr bikamum. Vá, hvað Beattie vissi ekkert hvað hann var að fara að gera í þessu víti. Dapurlegt að heyra mann eins og Múrenuna, með 30 manna, heimsklassahóp, vera að vorkenna sér út af leikja- álagi. Drogba hefði tryggt Chel- sea öll stigin ef Smárinn hefði nennt að hlaupa út úr rangstöð- unni. Souness keypti sér viku í viðbót f starfi með sigrinum á Sunderland, sem var ekkert ann- að en heppni. Þetta Newcastle- lið sýgur óþrifið gúanó. Spurs áttu snudduna á Traf- ford inni frá í fyrra. Jenas flottur, en verður að vera enn flottari í dag gegn Arsenal án Bulldog. Pires ætlaði að vera svalasti mað- ur í heimi í vítinu á móti City. Fífl. Vildi óska að City hefði sett eitt í grillið á þeim í lokin. WBA getur ekki keypt sér meðbyr í þessari deild! Fylgist með svipnum á Perranum hjá Portsmouth.... Gaurinn veit EKKERT hvað hann er að gera!!!! Sáuð þið Herm- inatorinn á móti Chelsea í bikamum??? Cudicini er enn að þurrka hrákann framan úr sér. Snilld. Vantar fleiri gaura eins og Hemma í þetta. Ég er farinn eins og... Fullt hús hjá Chelsky. s ... sér enska boltann með sólgleraugum Easy money skyggnist á bakvið tjöldin í enska boltanum Tyson vill hjálpa Ro Jæja, það kom loksins að því að Chelsea tapaði stigum og rjóminn á þá köku er að þeir duttu úr deild- arbikarnum. Ég er ansi hræddur um að þetta sé bara byrjunin á niðursveiflunni hjá þeim. Þeir töl- uðu um að sigur. Charlton hafi bara verið heppni og eitthvað shit. Þeir eru búnir að vera endalaust cocky um að þeir ætluðu að taka allar 4 dollurnar en annað er kom- ið á daginn. Það er nefnilega tölu- vert erfiðara að verja Englands- meistaratitilinn heldur en að sækj’ann. Einungis einu liði hefur tekist það og eins og allir vita er það Man. Utd. Því finnst mér að John Terry, Mourinho og félagar ættu að setja kork í sig og einbeita sér að þvf að láta verkin tala á vell- inum í stað þess að vera að rífa kjaft í öllum fjölmiðlum. En það sem gleður mig mest þessa dagana er hversu endalaust lélegt Liverpool-liðið er. Ef ég væri stuðningsmaður þessa firma- klúbbs þá myndi ég huga alvarlega að því að svipta mig lífi. Það að stjórinn þeirra hann Rafa eða hvað sem þessi kjötbolla heitir (er ekki frá því að hann sé feitari en Gunnar Birgisson) hafi verið ánægður með spilamennskuna gegn neðrideildarliði sem þeir töpuðu gegn er náttúrulega bara sérkapítuli útaf fyrir sig. En nóg um það, það verða nokkrir athyglisverðir leikir um helgina, og ef ykkur langar í easy money þá myndi ég fara út í næstu sjoppu og setja nokkra fjólubláa á eftirfarandi leiki á Lengjunni. Fyrstan skal nefna grannaslaginn íNorður-Lundún- um þar sem ég get lofað ykkur sigri heimamanna, þar sem Henry verður líklega ekki með the Gunners. Arsenal án Henry er eins og Halli án Ladda. Og ef þið viljið taka 100% save bet þá setjið þið 2 á leik Liverpool og West Ham þar sem Teddy fé- lagi minn setur a;m.k. eitt kvikindi og einhvern veginn efast ég um að tannstöngullinn hann Crouch komist á blað. WHAT a WASTE of MONEY. Þriðji og síðasti öruggi leikurinn er að Manjú eiga eftir að skeina Middlesbrough með tvö- földum krefpappír áÁrbakkanum. Farinn að taka axlir og trís í Sporthúsinu, Sææææælar! Hinn geðþekki hnefaleika-1 kappi Mike Tyson sem nýverið a lagði hanskana á hilluna hefur boðið Wane Rooney, leikmanni Manchester United og enska landsliðsins, hjálp við að hemja skap sitt. Tyson sem af mörg- um er talinn einn besti þungavigtar- boxari allra tíma þekkir það vel að ráða ekki við skap- ið. Frægast er þeg- ar hann beit hluta af vinstra eyra Evanders Holyfield í bardaga þeirra júní-mánuði árið 1996. „Ég hef fylgst með Rooney og hann hefur átt það til að láta skapið fara með sig. Ég er hins vegar í viljugur til að hjálpa. Ég veit hvað er að ganga 1 gegnum, ég þekki þessa til- finningu" sagði Tyson sem staddur var á Englandi í vikunni. Ekki er vitað hvort Rooney ætli sér í? að þiggja hjáp Tysons. Roo- ney og Tyson gætu hins vegar farið í hringinn og slegist því Rooney var efnilegur boxari sem barn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.