Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Side 32
32 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 ÍOí'T’ Helgarblað J3V mmí Súsanna Svavarsdóttir er ekki þekkt fyrir að fara troðnar slóðir eða pakka skoðunum sínar í pen- ar mnbúðir til að þóknast öðrum. Það gerir hún ekki heldur í nýrri skáldsögu sinni, Dætrum hafs ins, sem kemm' út í vikunni. Þar gerir Súsanna upp sitt eigið líf og íjallar á hispurslausan hátt um kynlífið. Aðalsögupersónur bókarinnar eru Herdís, starfsmaður í utanríkisþjónustunni, sem velur kynlífið til að kynnast sjálfri sér til fulls, og Ragnhildur, ritstýra, sem er með fullkomnunar- áráttu og leggur allt upp úr því að falla að hugmyndum samfélagsins um konur. J'-7 Pís'tí I DV Helgarblað LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 33 úsanna gengst við báð- um konunum og fór í gegnum tíu ára sjálf- skoðunarferli meðan bókin varð tii. Dætur hafsins er þó miklu meira en saga kvenn- anna tveggja. Herdís er myrt á hrottalegan hátt og Ragnhild- ur býr yflr mikilvægum upplýsingum sem gætu upplýst morðið. Þar að auki tjailar sagan um samskipti kynj- anna í öllum sínum myndum, sam- band móður og dóttur, aikóhólisma og fjölskylduleyndarmál. Súsanna er stödd á íslandi til að fylgja bókinni úr hlaði en hún býr um þessar mundir í San Fransisco. Hún fellst á hitta blaðamann til að spjalla um lífið og tilveruna og tilurð bókarinnar, sem hefur verið lengi, lengi í smíðum. „Það má kannski segja að hún hafi verið ómeðvitað í smíðum í fimm ár og síðan meðvitað í önnur fimm," segir Súsanna. „Sagan fýlgir eiginlega mínu ferli í spumingunni um hver ég er, en að finna svar við því var ekki auðvelt." Súsanna er þrígift og þrískilin og eftir þriðja hjónabandið var hún ringluð og tætt og botnaði hvorki upp né niður í eigin lífshlaupi. „Lengsta hjónabandið stóð í fjög- ur og hálft ár,“ segir hún og hristir höfuðið. „Mér fannst þetta óþægileg staðreynd og ég var helst á þeirri skoðun að ég væri tilfinningalaus." Varstu þá ekki ástfangin af nein- um þeirra? „Jú, einum. Hinsvegar þegar á reyndi og ég þurfti að takast á við hlutina var ég farin. Sem þýðir fyrir mér í dag að trúlega elskaði ég hann aldrei. Að elska og vera ástfangin eru tveir ólíkir þættir. Það er ekki nóg að vera heillaður af einhverjum til að standa með viðkomandi í gegnum þykkt og þunnt, það þarf svo miklu meira til." -Súsanna er þrígift og þrískilin og eftirþriðja hjónabandið varhún ringluð og tætt og botnaði hvorki upp né niður í eigin lífshlaupi. Fegin að einhverjum þótti vænt um hana Súsanna á son með fyrsta eigin- manni sínum, Stefáni Ólafssyni, og tvær dætur með Arnóri Benónýssyni, eiginmanni númer tvö. Þriðji eigin- maðurinn var Ásgeir Bjamason en það hjónaband entist í átta mánuði. „Ég sá fljótlega að þetta var ekki maður fyrir mig en kunni ekki við að skilja við hann daginn eftir brúðkaupið. Nei,“ segir Súsanna og horfir á mig sposk á svip. „Ég var sko ekkert bam þegar ég fór inn í þetta. Ég varð fertug í þessu hjónabandi svo það flokkast varla undir bemskubrek. Enda var ég tilneydd að spyrja sjálfa mig til hvers í andskotanum ég lifði h'fi mínu svona. Þó ég kærði mig ekkert um þessi hjónabönd var þetta alltaf jafn sárt.’‘ Hjónaband Sússu og Ásgeirs var umtalað en hún segist sjálf hafa verið mjög þreytt og undin þegar hún kynntist honum. „Hann kom eins og gamall afi inn í líf mitt og fannst svo svakalegt hvað á mig var lagt. Ég var aðallega fegin að einhverjum þætti vænt um mig, það var eitthvað sem ég hnaut ekki um í hverju spori á þessum tíma. Hann var sjarmerandi og heillandi maður, skarpgreindur og einstakur píanisti. Það sem hann fékk í guðsgjöf var ómælt, örlögin höguðu því bara þannig að það varð honum ekki til gæfu. Hann bað aldrei um að verða eins og hann var og átti rosalega bágt. Það var ekkert sem ég gat gert fyrir hann, svo stórbrotin voru vandamál- in.“ Eiginmaður með amfetamínfíkn Ásgeir var efiiafræðikennari við Háskóla íslands en mörgum árum eftir að leiðir hans og Súsönnu skildu kom í ljós að hann var með am- fetamínverksmiðju og langt leiddur af amfetamínneyslu. Súsönnu grunaði það þó ekki þann stutta tíma sem þau voru gift. „Heldurðu að ég hafi fattað það? Ég veit hvenær fólk er drukkið, en fatta ekki svona lyf eða dóp. Mér fannst hann reyndar óeðlilega sveiflugjam, en skildi ekki fyrr en mörgum árum seinna hvers vegna. Ég talaði aldrei við hann eftir að við skildum og þakkaði fyrir að hafa losn- að út úr þessu eins auðveldlega og ég gerði. Það eina sem ég þurfti að gera var að borga honum reikning sem hann taldi vera fjárframlag sitt til heimilisins meðan við vorum gift. Ég tók upp heftið og borgaði og át svo bara hafiagraut næsta árið." Lögregla komst átta árum síðar á snoðir um arrttetamínframleiðslu Ás- geirs en á meðan á lögregluaðgerðum stóð svipti Ásgeir sig lífi. Varð að sættast við konurnar hið innra Súsanna segist hafa velt því mikið fyrir sér eftir þetta stutta og mis- heppnaða hjónaband hvort hún væri tilfinningalega dauð eða hvort eitt- hvað annað og jafnvel enn alvarlegra væri að. „Ég þurfti að svara spumingum eins og af hverju ég væri að giftast mönnum til að eignast með þeim böm og láta þá svo flakka. Ég var reyndar sjálf alin upp í vondu hjóna- bandi og gat ekki hugsað mér að ala mín böm upp á heimili þar sem ekki væri harmóma. Bömin hafa alltaf ver- ið mikilvægust fyrir mér. Þegar ég fór svo að velta þessu fyrir mér í alvöru hóf ég að skrá niður hugleiðingar mínar, búa til örsögur um ýmsar að- stæður og uppákomur úr eigin lífi. Þetta átti ekki að verða að neinu nema bara fyrir sjálfa mig, en smám saman komst á þetta heildarmynd og eftir fimm ár fór ég tengja saman.“ Þá segist Súsanna líka hafa staðið ffammi fyrir því að í henni leyndust að minnsta kosti tvær konur og sumt í eigin fari var ekki þess eðlis að hún kærði sig um að horfast í augu við það. „Ég hafði gert fullt af hlutum sem ég var ekki sátt við og mér fannst ég þurfa að skilja af hverju ég gerði þá. Það reyndust svo auðvitað ekki bara tvær konur hið innra heldur miklu fleiri. í stað þess að berja þær niður ákvað ég að sættast við þær og kynn- ast þeim." „Ég er núekki beint árennilegur kvenmað- ur og karlmenn eru skíthræddir við mig." Kynlífsumræða kvenna tabú Sem leiðir okkur aftur að Dætrum hafsins sem er uppgjör Súsönnu við konumar í sjálfri sér, að minnsta kosti tvær þeirra, Ragnhildi og Herdísi. Ragnhildur er ritstýra tímarits og hel- tekin af því að leika hlutverkið sem samfélagið hefur úthlutað henni, en Herdís, sem vinnur hjá utanrikisþjón- ustunni, leitar sannleikans í myrkustu afkimum samfélagsins og verðurkyn- lífsfíkninni að bráð. Sagan er berorð þegar kemur að kynlífslýsingum og Súsanna segir ekki hafa verið auðvelt að skrifa þessa kafla. Þeir vom hins- vegar bráðnauðsynlegir. „Mér hafa alltaf leiðst blóðlausar sögupersónur en ég viðurkenni að það er ofsalega erfitt að skrifa erótík á íslensku. Ég byrja á að skrifa allt niður í smáatriðum, bara fyrir mig, og fer svo að skera niður. Spumingin er alltaf hvað er prenthæft og hvað ekki. Kynlíf er hinsvegar þáttur sem ræður vali okkar og athöfnum að miklu leyti en okkur er ekki ætlað að skilja hann. Okktu er innprentað sem konum að við eigum ekki ræða um það, ég tala nú ekki um þegar við erum komnar á miðjan aldur. Ég neita að taka þátt í þessari þögn og er trú þeirri stefnu minni að þetta eigi að vera lifandi þáttur í mér. Ég vil líka að hann sé lif- andi í dætrum mínum og hef kennt þeim að virða hann. Við erum skap- aðar svona og eigum að njóta þess og ekki láta segja okkvu að það sé skammarlegt. Herdís segir á einum stað að það sé sama hvort þú ert ung, miðaldra, gömul, gift eða einhleyp, þú tapar alltaf þegar kynlíf er annars vegar og þá fyrst og fiemst í munni samborgaranna. Slík bæling er óþlol- andi. Kynlif getur verið það fegursta sem til er og það ljótasta. Galdurinn er að þekkja sjálfan sig og velja það sem hentar hverjum fyrir sig." Ertu þá sjálf búin aö upplifa allt sem Herdís gerir í bókinni? „Nei. Ég þurfti ekki að fara alla þessa leið, sem betur fer, en ég þekki konur sem hafa farið hana. Fyrir mér er þetta spuming um að samhæfa huga, líkama og tilfinningar en það er misjafnt hvað við þurfum að ganga langt til þess. Ég mæli ekki með leið Herdísar og myndi sjálf stoppa áður en ég gengi svona langt." En getur hún stoppað þegar hún hefur orðið kynlífsfíkninni að bráð? „Það er spuming," segir Súsanna hugsandi. „Kannski reynir ekki á það í þessari sögu þar sem Herdís er myrt." Karlmenn ekkert glataðir Gátan um morð Herdísar er mjög dularfull og þar kemur við sögu fé- lagsskapur sem kallast Amasónumar. Sá félagsskapur var til í Bandaríkjun- um, en Amasónurnar áttu sér of harða andstæðinga til að félagsskap- urinn gæti þrifist. „Ég held að þær séu ekki til leng- ur," segir Súsanna. „Ég sá þátt um þær í Bandaríkjunum fyrir mörgum árum, þetta var herskár femínista- hópur og sitja í mér af því ég gat ekki séð nein tengsl við femínisma í af- stöðu þeirra tQ h'fsins. Það hefur aldrei staðist í mínum huga að karlmenn séu glataðir, mín sára reynsla í sam- böndum við karlmenn hefur ekkert með karlmenn að gera. Hún hefur með það að gera hvemig ég er. Ég hef aldrei keypt að karimenn séu svona eða hinsegin frekar en konur séu svona eða hinsegin. Það er ekki neitt sem heitir eðli kvenna og karla. í gegnum aldimar hafa kynin skipt með sér hlutverkum og konur haifa samþykkt þá skiptingu. Þar er ekki við neinn að sakast. Ég er ofsalega þreytt á leitinni að sökudólgnum með stóra essinu." Óguðlegir guðir Gyðjur em Súsönnu hugleiknar og þær Ieika stórt hlutverk í bókinni. „Ég man alltaf setningu sem Kristján Ámason sagði einu sinni þegar ég sat hjá honum í grískum fombókmennt- um í háskólanum. Hann spurði hvort við hefðum tekið eftir þvf hvað guð- imir væm óguðlegir. Þeir gera allt sem þeim sýnist, allt sem okkur lang- ar að gera en þorum ekki. Þeir elska, reiðast, hata og hefna og em einmitt gæddir mjög mannlegum eiginleik- um sem gerir það að verkum að við samsömum okkur auðveldlega. Ég er sérstaklega heilluð af Venusi eða Af- ródítu, sem ég tel vera innra með öll- um konum. Það er bara búið að lemja hana í klessu af því við vorum dæmd- ar úr leik sem kynverur. Mér finnst al- veg milljón að ef við ætlum að eiga kam'er eigum við að vera kynlausar og alls ekki flagga því sem við höfum. Helst eigum við að vera mussukerl- ingar sem karlmenn bera enga virð- ingu fyrir. Það er erm í gangi þessi af- staða að konur séu „teknar". Við eig- um að segja nei, nei, nei, á meðan karlmenn segja jú, jú, jú. Það er líka talað um veiðieðlið í körlum en þeir eru ekkert einir um það eðh og ég get nú bara sagt þér að það er talsvert veiðieðli í mér.“ Arnór Benónýsson Súsanna var gift Arnóri Benónýssyni um skeið. Ekki árennilegur kvenmaður Finnst þér þá ekkert gaman að vera veidd? Súsanna hlær hjartanlega. „Ég er nú ekki beint árennilegur kvenmaður og karlmenn eru skít- hræddir við mig. Þeir sem reyna við mig eru yfirlett kófdrukknir eða al- gjörir aular með allt niðrum sig. Þeir horfa á mig og hugsa, ja þetta er nú bara hörkukvenmaður, ef hún vill mig er ég trúlega í góðu lagi." Súsanna hryllir sig. „Ég hef samt alveg átt mína elsk- huga þegar mér hefur boðið svo við að horfa. Það er bara þyngra en tárum taki að konur séu endalaust dæmdar fyrir að vera kynverur, meira að segja í dag, öllum þessum árum eftir að jafnréttisbaráttan hófst. Oft valið vitlaust Súsanna hefur haft á orði að hún þurfi að afkynna sig þegar hún talar við fólk þar sem hún hafi mjög sterkt „identity" sem eigi ekkert skylt við raunveruleikann. Það telur hún hafa byrjað þegar hún fór að skrifa leiklist- argagnrýni í Morgunblaðið fyrir mörgum árum. „Það tíðkaðist ekki þá að konur skrifuðu eins og ég gerði og reyndar ekki karlmenn heldur." Hvað er það þá helst sem þú þarft að leiðrétta? Súsanna hlær. „Ég er kannski ekki eins töff og fólk heldur. Ég er rómantískt fífl sem trúir á ástina og þótt ég hafi uppgötvað fullt af duldum þáttum í sjájfri mér þýðir það ekki að ég hafi glatað hin- um. En mér finnst sem sagt ástin eitt- hvað það stórkostlegasta sem nokkur getur upplifað. Ég hef sjálf upplifað hana en er ekki að leita að henni í dag. Ég hef eitt mottó í lífinu núna sem er „Let go and let God". í gegnum tíðina hef ég lagt svo mikið á mig til að fá það sem ég vildi, var með svona „ég vil það sem ég vil þegar ég vil það“- syndrómið, en ég hef líka oft valið það sem olli mér sársauka. Ég er þess vegna ekki að leita að neinu lengur en tek því fagnandi sem lífið hefur upp á bjóða, ástinni líka ef hún birtist. Eg er sátt og finnst ég eiga mjög skemmti- legtlíf." Samkenndin í Ameríku Súsanna er búsett í San Francisco í bili en þvertekru fyrir að hafa flúið land og þaðan af síður að vera búin að fá nóg af íslensku samfélagi. „Ég flúði ekki aldeilis land enda engin ástæða til. Hér eru mínar rætur og hér vil ég vera í framtí'ðinni. Ég er orðin svo fullorðin og rótföst. En að- stæður höguðu því þannig að mér hentaði að búa í Bandaríkjunum um sttmd. Ég valdi San Francisco vegna þess að hún er allt öðruvísi en allar borgir í Bandaríkjunum. Hún minnir kannski helst á Manhattan en þama er yfirgengilegt úrval af söfiium og galleríum, listalífið er hreint magnað og ódýr aðgangur að öllu. Þegar ég er að bilast á einverunni tek ég strætó niður í bæ og skoða söfn og bókabúð- ir og labba svo inn á djassbúllu og fæ tónlistina í æð. Þegar maður splæsir á sig nánast tekjulausu ári til að skrifa sögu á maður engan pening til að gera neitt. Þama er ódýrt að búa fyrir utan húsaleiguna sem er há." Súsanna hefur síðan mörg og fög- ur orð um mannlífið í San Fransico og ekki síst samkenndina. „Fólk er svo meðvitað hvert um annað og mýtan um að allir séu alltaf sjálfum sér næst- ir í Ameríku er ekki sönn, ekki hvað þessa borg varðar að minnsta kosti." Óhrædd við dóm lesenda Súsanna tileinkar Dætur hafsins móður sinni sem hún segir hafa verið stoð sína og styttu í gegnum árin. Samband móður og dóttur í bókinni sækir hún þó ekki í þeirra samband. „Mamma hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og í þau skipti sem ég hef verið að gefast upp hefur hún bókstaflega matað mig með teskeið eins og ungbarn og komið mér til lífs- ins á ný. Það hefur komið fyrir í mínu lífi að ég hef lagst fyrir og ætlað að hætta þessu, svona hægt og hljótt. Þá hefur mamma alltaf verið þar." Erþetta bókmeð boðskap? „Nei, alls ekki. En það er allt í lagi fyrir konur sem finnst þær hafa verið fórnarlömb að endurskoða fómar- lambshlutverkið og spyrja sjálfar sig af hverju þær völdu eins og þær völdu. Þetta er allt val." Hvernig bók er þetta, sakamála- saga, drama eða alltísenn? Það verður einhver annar að svara því," segir Súsanna og kveðst ekki kvíða viðbrögðunum, en viðurkennir að standa ekki alveg á sama um gagn- rýnina. „Það væri hroki að halda því fram. Hins vegar þjónar engum tilgangi að velta sér upp úr áhyggjum af viðtökum, það væri of mikil sjálfspynting fyrir minn smekk." edda(s>dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.