Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2005, Qupperneq 45
LAUGARPAGUR29. OKTÓBER 2005 45
langtímavistunar en engin önnur
úrræði eru handa konum sem fá
þunga dóma.
Á Litla-Hrauni er fþróttahús, stór
vinnuaðstaða, fótboltavöllur og
pláss til að draga andann. Kópa-
vogsfangelsið er í raun hefðbundið
einbýlishús, gott fyrir skammtíma-
vistun en ekki margra ára dvöl.
Morðingi í kvennafangelsinu
Ein af þeim konum sem hefur
langa reynslu af kvennafangelsinu
er Bergþóra Guðmundsdóttir, ísa-
fjaröar-Begga. Hún varð manni að
bana og fékk íjórtán ára dóm. Hún
hefur þegar afplánað sex ár af
dómnum. Sat fyrst inni í kvenna-
fangelsinu þar sem hún reyndi að
fremja sjálfsmorð. Var flutt á Skóla-
vörðustíginn en flakkaði svo milli
stofnana. Á endanum var hún send
á Litla-Hraun - fyrst kvenfanga á ís-
landi. Þaðan flúði hún, eins og DV
greindi frá á sínum tíma, var sett í
einangrun en síðan send aftur í
kvennafangelsið.
Óánægja fangavarða
Endurkoma Ísafjaröar-Beggu í
kvennafangelsið vakti hörð viðbrögð
starfsmanna. Út af fyrir sig er það
sérstakt þegar starfsmenn hins
opinbera tjá sig um innri málefni í
fjölmiölum. Svo djúpstæð var óá-
nægjan með komu Isafjarðar-Beggu
að siðir og venjur voru látin lönd og
leið. Eftir fund starfsmanna sagði
Sigríður Jónasdóttir, varðstjóri í
kvennafangelsinu: „Fangarnir eru
allir skíthræddir við þessa konu.
Vera hennar hérna virkar í raun sem
þyngdaraukning á refsingu annarra
fanga. Við viljum því byrgja brunn-
inn og forða árekstrum með því að
fáhana ekki."
Reyndi að drepa sig
Sjálf sagði Bergþóra í viðtali við
DV: „Mér hefur liðið illa í kvenna-
fangelsinu og líðan mín brotist út
með hegðan minni. Þrisvar sinnum
hef ég hreinlega gefist upp og reynt
að drepamig."
Saga Bergþóm sýnir glöggt hve
andlega erfitt það er fyrir fanga með
langa dóma á bakinu að afplána í
„Hitt er svo annað
mál að það er erfið-
ara fyrir konur að
vera í afplánun. Þær
eru meira tengdar við
fjölskyldu sína og
börn. Kona sem lendir
í fangelsi er brenni-
merkt af samfélag-
inu."
kvennafangelsinu. Síðustu fréttir af
Ísafjarðar-Beggu voru í sumar þegar
hún kom aftur í fangelsið. í kjölfarið
sögðu þrír starfsmenn upp.
Hundrað glæpa konan
Önnur kona sem hefur eytt löng-
um tíma í kvennafangelsinu er Guð-
rún Halldóra Valsdóttir. Guðrún var
þrítug dæmd í rúmlega tveggja ára
fangelsi fyrir yfir hundrað glæpi sem
á hún hafði framið á skömmum
tíma. Með dómnum setti Guðrún
Halldóra met. Miðað við fjölda
dóma á hún einn viðamesta glæpa-
feril allra íslenskra kvenna.
í dag er Guðrún hins vegar frjáls
kona. Búin að taka út sína refsingu
og býr í Breiðholtinu þar sem hún
hefur hafið nýtt líf.
Náði sér á strik
„Ég stunda nú nám í tölvunar-
fræðum og líður miklu betur," segir
Guðrún Halldóra. Eftir hinn þunga
dóm sagði Guðrún í viðtali við DV að
hún hefði verið í neyslu í 10 ár. Brot-
in hefðu einungis verið framin til að
íjármagna neyslu. Um kvennafang-
elsið sagði hún að þar ynni hún fjóra
tíma á dag í þvottahúsinu: „Það er
búið að bjarga lífi mínu að vera hér.
Það er alveg frábært og ég hef ekki
verið svona lengi edrú í tíu ár.“
Guðrún Halldóra hefur staðið við
heitið. Hún segist ekki vilja gera
mikið úr afrekum sínum en stendur
við þau góðu orð sem hún lét falla
um kvennafangelsið.
Guðmundur Gíslason,
forstöðumaður fang-
elsisins „Ég held að fang-
elsi fyrír bæði kyn, þarsem
börn fá að ieika sér, sé
mun eðiilegra umhverfi og
betra fyrírfangana en stál-
rimlarnir á Litla-Hrauni. “
Konur ekkert verri
Þó allir vilji leggja kvennafangels-
ið niður er í augnablikinu ekki til
annar staður þar sem konur geta
tekið út sína refsingu og snúið við
blaðinu. í gegnum bíómyndir, bfglíS
ur og sjónvarp fær maður ákveðna
mynd af föngum og fangelsum.
Hvað getur Guðmundur Gíslason
forstöðumaður sagt um muninn á
kven- og karlföngum sem deila sam-
an húsi í Kópavoginum.
Guðmundur segir: „Það eru
margar þjóðsögur í gangi í bransan-
um. Kvenfangar eiga stundum að
vera miklu erfiðari en karlar og öf-
ugt. Að mínu mati er erfiður fangi
einfaldlega erfiður fangi. Hvort sem
hann er karl- eða kvenkyns. Hitt er
svo annað mál að það er erfiðara fyr-
ir konur að vera í afplánun. Þær eru
meira tengdar við fjölskyldu sfna og
börn. Kona sem lendir í fangelsi er
brennimerkt af samfélaginu."
simon@dv.is