Freyr - 01.05.1953, Blaðsíða 9
FREYR
157
refsing fyrir árásir og líkamsmeiðingar, svo sem
höfuðhögg, verði stórþyngd frá því, sem nú er.
Greinargerð:
Olvun og áfengisnautn fer vaxandi með þjóðinni,
líka í sveitum landsins.
Það er alkunna, að víða í héruðum landsins eru
skemmtisamkomur orðnar að vandræðamáli fvrir ölv-
un og alls konar 4Sspektir.
Sveitalífinu stafar af þessu hin mesta hætta. Hinn
uppvaxandi æskulýður dregst meir og meir inn í þessa
spillingu, bæði sjálfrátt og ósjálfrátt, eða verður henni
samdauna.
Fái þessir ölvunarhættir að þróast án allrar mót-
stöðu, svo sem verið hefir nú hin síðustu árin, færist
hrein ómenning yfir sveitalífið og öll menningarvið-
leitni fólksins bíður varanlegan hnekki.
Eina ráðið gegn þessum ófögnuði er, að héruðin
komi séi upp lögreglusveitum, sem haft geti gæzlu á
öllum skemmtisamkomum eða opinberum mannfund-
uin.
Einsætt virðist, að ríkið beri kostnað af ráðstöfun-
um til friðar og öryggis samkomugestum í landinu, þar
sem hætta er á ölvun og óspektum, með því að óáran
sú í mannfólkinu, sem veldur friðarspjöllum, stafar af
áfengum drykkjum, sem ríkið hefir á boðstólum.
Heimildarkvikmyndir.
Að tilhlutan búnaðarmálastjóra var á síð-
asta ári hafið samstarf við filmusjóð um
upptöku heimildarkvikmynda af islenzkum
landbúnaði. Til þess að vinna áfram að
þessu starfi veitti Búnaðarþing fjárhags-
lega aðstoð. Með tilliti til þessa var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
í tilefni af fjárveitingu á fjárhagsáætlun Búnaðar-
f'úags íslands 1953, gjaldalið 21 c, til kvikmyndatöku,
fíúnaðarþingsfulltrúum og starfsmönnum BúnaÖarfélags íslands var boðið til þess að skoða fram-
kvamdir Áburðarverksiniðjunnar að Gufunesi. Myndin var tekin i kaffistofu verksmiðjunnar. Hún
sýnir i fremstu röð verkfrceðinga og stjórn ásamt forscetisráðherra, en framkvœmdastjórinn Hjálmar
Finnsson, stendur lengst til hœgri. Ljósm.: Vigfús Sigurgeirsson.