Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1953, Blaðsíða 25

Freyr - 01.05.1953, Blaðsíða 25
FREY R 173 ÞÓRARINN HELGASON: Um forðagæslu og forðabú Veturinn 1952 var til umræöu á Bún- aðarþingi erindi frá Gunnari Bjarnasyni ráðunaut um stórframleiðslu á heyi. Síð- ar ritaði Gunnar um málið í Frey og í júníhefti ritsins s. á. gagnrýndi ritstjór- inn, Gísli Kristjánsson, málið í heild mjög ítarlega og gang þess á Búnaðarþingi. Ég tel að Gísli Kristjánsson hafi með fullum rökum kveðið niður hugmynd Gunnars og hefi engu þar við að bæta. Aftur á móti vildi ég taka upp þráðinn og lengja hann dálítið, þar sem Gísli sleppir honum, er hann minnist á einn möguleika af fleirum til aukins fóðurfengs: — að efna til félagsræktunar, félagsheyskapar og félagsforðabúrs í hverjum" hreppi. Um skeið var forðabúrum komið á fót á nokkrum stöðum á landinu og áróður rek- inn fyrir þeim. Var þá aðallega um að ræða rúgmjöl og aðrar korntegundir, sem oft verða vandræðahlutur að geyma og endurnýja, ef árferði er slíkt, að eigi þurfi á þeim að halda til fóðurs á fyr^ta ári. Þetta var nú fyrir hálfri öld og tímarnir eru stórbreyttir og ný tækni komin til sög- unnar, sem breytir viðhorfinu til forða- búranna stórlega. Nú eru möguleikar til ræktunar gerbreyttir og þar með til inn- lends fóðurforða — heysins, sem auðveld- lega má geyma um árabil, án þess að veru- lega saki. En vegna endurnýjunar heysins og t-il að forða verðmætum frá eyðilegg- ingu, mundi heppilegra að hu'gsa sér forðabúrin frekar í þeim sniðum að heita forðabú. Kem ég að því síðar. En ekki mega forðabúin tákna það í hugum manna, að bændum sé leyfilegt að setja verr á með tilliti til þeirra. Þá væru þau ekki neitt öryggi gegn fóðurskorti. Þess vegna ættu einstaklingar aldrei að eiga kost á heyi úr forðabúi með vildarkjörum. Af sömu ástæðu má heldur ekki slá slöku Hinsvegar hefir verið sannað með nánari rannsóknum á rannsóknarstofu Möllgárds, að helmingurinn af þyngdaraukanum staf- ar af auknu gori í innyflum og auknu vatni í líkamanum, en hinn helmingurinn felst í þygndarauka kjöts og lifrar. Þyngd béih- anna vex ekki og rýrnun við slátrun verð- ur því ekki nema 40—42% eins og vant er, svo að slátrarinn hvorki græðir né tapar við að kaupa hormónafitaða gripi. Á nefndum fundum sló prófessor Lars Hansen Larsen og samverkamenn hans því föstu, að umrædd hormónlyf reyndust vel við fitun kúa fyrir slátrun, en síður þegar um aðrar skepnur er að ræða, og gagnslaus ef notuð væru handa kálfum og öðrum ung- um skepnum. Hinsvegar staðhæfði prófessor Möllgárd, og samverkamenn hans, að notkun um- ræddra efna hefði það í för með sér, að kjötið yrði rýrara að orku en auðugra að vatni, og fyrir kaupandann því gildisminna. Gagnvart þessu má segja, að venjulega er kjöt ekki keypt eftir vatnsmagni eða hita- einingafjölda, heldur útliti og frágangi. Um próteinmagnið í kjötinu er ekki vit- að, en Möllgárd telur líklegt að á meðan hormónlyfin eru notuð myndist takmark- að magn hreinpróteins, en í stað þess safn- ist þvagefni í vöðvana, sökum þess að starf- semi nýrnanna takmarkist nokkuð. Að fengnum þessum upplýsingum verður nið- urstaðan sú, að eðlilegt virðist að nota umrædd fitunarefni handa kúm síðustu vikurnar áður en kúnum er slátrað, ef kaup- verð lyfjanna er minna en vaxtarauki kjötsins. Notkun þeirra handa öðrum skepnúm kemur naumast eða ekki til greina. Þau hafa verið prófuð við fitun svina, en ár- angurinn varð neikvæður, einkum vegna þess, að flesk þeirra svína, sem fengu um- rædd lyf, varð lítt hæft til geymslu. Þess- vegna er mönnum ráðlagt að nota alls ekki Thyron eða álíka efni í fóður svínanna.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.