Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1953, Page 14

Freyr - 01.05.1953, Page 14
162 FREYR orsakir verið fundnar, hvað við kemur nautgripum: skortur á A-fjörefni, kopar- skortur, joðskortur, of litið af meltanleg- um fosfór og óhagstætt hlutfall milli kol- vetna og eggjahvítuefna í fóðrinu. Þá hefir hlutfallið milli kalks (Ca) og fos- fórs (P), ásamt D-fjörefni, einnig áhrif á frjósemi. Sé of litill fosfór í íóðrinu, veld- ur aukning kalks enn frekari lækkun á frjóseminni. Kalkmagnið skal þó alltaf vera hærra en fosfórmagnið í fóðrinu. Fiskmjöl er auðugt af kalki og fosfór og lýsi af A- og D-fjörefnum. Þrifleg hold og mjúk og gljáandi húð eru oft einkenni hárrar frjósemi. Bandaríkj amenn hafa gert mikið til þess að lækna ófrjósemi í nautgripum og hjálpa bændum, sem eiga við örðugleika að stríða vegna hennar. Þannig hafa þeir á samvinnugrundvelli komið upp rannsókn- arútbúnaði í bifreiðum, og ferðast sérfræð- ingar í bifreiðum þessum milli bæja, þar sem tjón hefir orðið af völdum ófrjósemi í skepnum. Er þannig hægt í mörgum til- fellum að ákvarða á staðnum eða a. m. k. leiða líkur að því, hver orsök ófrjóseminn- ar sé. Athuganir þar í landi hafa leitt í ljós, að í um 50% af tilfellum hafa dýra- læknar, sem þannig ferðast um, getað ráðið bót á ófrjóseminni. Þá hafa þarlendar rannsóknir leitt í ljós, að almenn notkun vaka (hormóna) muni ekki vera lausnin á þeim vanda, sem sú ófrjósemi veldur, er fylgir óregluleg- um gangmálum og því, að kýr liggja niðri. Enn fremur virðist ófrjósemin að mjög litlu leyti vera bundin við erfðir, þannig að ekki séu líkur til þess, að unnt verði að koma í veg fyrir hana með úrvali í kynbót- um, svo að nokkru nemi. Frysting sœðis. Eitt af því, sem auðveldað hefir notkun tæknifrjóvgunar og gert útbreiðslu henn- ar kleifa, er það, að hægt er að geyma sæði utan líkamans í nokkurn tíma án þess, að það missi frjóvgunarhæfileikann. Þannig geymist nautasæði í 2°—5° hita í nokkra daga, eftir að því hefir verið blandað í sérstök geymsluefni, sem inni- halda venjulegast eitthvað af eggjarauðu. Sæðið er kælt til þess, að sæðisfrumurnar hreyfi sig sem minnst og eyði ekki þeirri orku, sem þeim er í upphafi gefin, í óþarfa hreyfingar. Ekki geymist þó nautasæði að jafnaði lengur en ca. 3—5 daga óskemmt. Ein orsök þess er sú, að gerlar, sem fyrir eru í blöndunni, fara að hafa eitrandi áhrif á sæðisfrumurnar. Sumir þessara gerla eru í sæðinu, þegar það er tekið, en aðrir koma í það í meðferðinni ásamt ým- iss konar sveppum. Þótt fyllsta þrifnaðar sé gætt við sæðistökuna og meðferð sæðis- ins, er ekki hægt að komast hjá því, að ein- hverjir gerlar séu í blöndunni. Mönnum hefir verið það ljóst, að hægt mundi vera að líkindum að geyma sæði ó- skemmt í langan tíma, jafnvel árum sam- an, ef hægt væri að frysta það án þess, að sæðisfrumurnar dæju. Tilraunir hafa því verið gerðar í þessu skyni. Hefir það styrkt réttmæti tilraunanna, að vitað er, að gerlar og aðrir einsellungar lifa það einatt af að vera frystir og síðan þíddir. Frysting sæðisfruma misheppnaðist þó oftast nær í fyrstu tilraununum, enda þótt mannasæði sé þá undanskilið. Tilraunir síðustu ára hafa leitt það í ljós, að glycerol og nokkur önnur skyld efni hafa þann eiginleika að varðveita líf sæð- isfruma nokkurra dýrategunda, þótt sæðið sé kælt niður í 79° frost, þ. e. a. s. það hita- stig, sem kolefnistvísýringur (CO2) verður að föstu efni. Kýr, sem frjódældar voru með nauta- sæði, er hlotið hafði þessa meðferð, festu þó ekki fang við fyrstu tilraunirnar. Til- raununum var þó haldið áfram, og voru þær byggðar á þeirri reynslu, sem fengizt hafði. Árið 1952 voru svo 38 kýr í Bret- landi frjódældar með sæði, sem geymt hafði verið í 2 klst. til 8 sólarhringa við -f-79°C. Af þessum 38 kúm gengu 6 upp á næsta gangmáli. Hinar kýrnar voru þukl- aðar gegnum endaþarminn eftir 6 vikur frá frjódælingu til að vita, hvort þær væru með kálfi. Sú athugun leiddi í ljós, að 30 þeirra höfðu fest fang. Við fyrstu frjódæl- ingu hafði því 79% af kúnum haldið, sem er betri árangur en fékkst við samanburð-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.