Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1953, Side 26

Freyr - 01.05.1953, Side 26
174 PRE YR við forðagæzluna, heldur þvert á móti þarf að efla hana frá því sem nú er, að nýjum leiðum. ★ Með búfjárræktarlögunum er Búnaðar- félagi íslands falin umsjón forðagæzlunn- ar. Er ekki nema gott um það að segja, en kafli sá í lögunum, er um forðagæzluna fjallar, er þó harla gloppóttur. Má aðeins nefna sem dæmi, að ekki er þess krafizt, að forðagæzlumenn fari um umdæmi sitt nema einu sinni á tímabilinu frá 15. nóv. til 20. apríl. Geri eftirlitsmaður ekki framar en lagaleg skylda krefur og líti ekki eftir fóðrun og heybirgðum frá 15. nóv þar til komið er að 20. apríl, líður megin gjafatími svo, að hvort tveggja get- ur verið um seinan. Þó er honum skylt eftir lögunum að tilkynna hreppsnefnd, ef heimili eru í fóðurþröng eða vanfóðra bú- féð. Nokkuð er seint að athuga um þetta, þegar komið er að sumarmálum. Þá teldi ég betur farið að sýslunefndir væru næsti aðili við Búnaðarfélag íslands og hrepps- nefndir aftur sýslunefnda. Skyldu sýslu- nefndir gera samþykkt um skiptingu hér- aðanna i forðagæzlusvæði, miðað við, að stærð hvers svæðis sé hæfilega mikil til eftirlits fyrir einn mann með þremur yfir- ferðum frá haustnóttum til sumarmála. Búnaðarþing samþykkti stærð hvers gæzlusvæðis. Þá skyldi Búnaðarfél. ís- lands sjá. um, að halda námskeið eftir þörfum fyrir þá menn, er eftirlitið hafa á hendi. Sýslunefndir réðu gæzlumenn með samþykki Búnaðarfélags íslands um ráðninguna. Laun gæzlumanna skyldi greiðá úr ríkissjóði. Á þann hátt fengi gæzlusterfið þá viðurkenningu frá því opinbera, sem réttmætt er og skylt um mál málanna í búnaðinum. Auk þess er það trygging fyrir því, að það verði betur af hendi leyst, en sé það hjáverk með öðr- um störfum, eða sé falið einhverjum með hliðsjón af því, að hann hafi tíma til starfsins án sérlegrar hæfni. Þótt gera megi ráð fyrir verulegum ár- angri af betri skipun forðagæzlunnar, er of mikil bjartsýni að ætla það fullnægj- andi í bráð. Allt frá landnámstíð hefir fóðurskortur endurtekið sig í búskapnum, þrátt fyrir baráttu margra ágætismanna á öllum öldum gegn ógætilegum ásetningi. Það gæti hefnt sín að treysta á svo snögga hugarfarsbreytingu, að forðabú væru ó- þörf, og liggja ekki til þess næg rök? Og í þessu máli má ekki ríkja smásálarskapur og þröngsýni. Bændur þurfa að leggja ráð sín saman og leita lausnar á vandanum. í því skyni vil ég benda á leið til athugunar. Gerum þá ráð fyrir, að bændur í ein- hverjum hreppi eða sveit vilji eignast 1000 hestburði af heyi, sem sameignarforða í harðindum. Liggur þá beint við að taka land til ræktunar í því skyni og reka fjár- bú 1 sameiningu til að finna einhverja leið til að endurnýja heyið. Fyrningartímabil heysins mætti hugsa sér 5 ár. Mundi þá hæíilegt að árleg heyöflun væri 250 hestar og landstærð miðuð við það. Reikna mætti árlega 50 hesta í úrgang og þyrfti strax á fyrsta vetri að hafa á fóðrum hæfilega margar kindur til að hirða með veggjum það, sem ella færi til ónýtis í heystæðunni við langa geymslu. Á 6. vetri væri svo allt elzta heyið gefið og fénaði fjölgað á búinu að því marki, hafi heyinu ekki verið eytt vegna nauðleitar í harðindum. Á margan hátt má hugsa sér þessa framkvæmd og er þetta dæmi aðeins nefnt til að skýra mál- ið, en ekki til að setja um það fastar regl- ur. Kaupfélögin í sveitunum hafa ágæta aðstöðu til að reka svona forðabú og er þeim málið skylt, því að svo mikið eiga þau undir því, að búskapur bændanna bíði ekki þann hnekki, sem af fóðurskort- inum leiðir. Ég geng þess ekki dulinn, að stofnkostnaður yrði allmikill, en þegar hann er yfirstiginn, ætti reksturinn að verða auðveldur og jafnvel hagstæður, ef vel er á haldið. í þann kafla búfjárræktarlaganna, sem fjallar um forðagæzlu og fóðurbirgðafé- lög, þarf að koma grein til viðbótar, þar sem gert er ráð fyrir að koma á fót hey- forðabúum í sveitunum og ákvæði um, hver þáttur hins opinbera skuli til styrktar í því efni.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.