Freyr - 01.05.1953, Síða 27
FRE YR
lr(5
Hrútarnir á Látrum
Hrútarnir á Látrum, við ísafjarðardjúp, skiptatímunum. Þeir voru allir í eigu Þór-
sem mynd þessi sýnir, eru ættfeður fjölda arins Helgasonar, Látrum í Reykjafjarðar-
fjár, sem dreifst hefir um landið á fjár- hreppi. Ljósmyndaðir voru þeir 1941. —
Nöfn hrutanna eru, — talið
frd vinstri:
OÐINN, tveggja vetra,
FJOLNIR, fjögurra vetra,
MJÖLNIR, sex vetra.
Neðri myndin sýnir Mjölni,
og er sú mynd tekin sama
haustið.
Mjölnir var œttaður frá Þúf-
um i Reykjafjarðarhreppi. —
Fitnm vetra gamall var hann á
sýningu. Þá vó hann 102 kg,
hrjóstmál var 109 cm, hœð á
herðakamb 82 cm, lofthœð 32
cm, hryggbreidd 24 sm, lengd
framfótarleggjar 139 mm.
Frá Mjölni eru margar ættir
komnar og hafa pær að sjálf-
sögðu dreifst víða um land i
sambahdi við fjárskiptin á síð-
ari árum, en frá Látrum hefir
fjöldi gimbra. verið seldur.
Ljósm.:
Helgi Þórarinsson 1941.
Plastpípur.
Nú cru komnar á markað vatnsleiðslupípur úr
plasti. Þær hafa þann kost að þær þola þenslu og
þola að vatn frjósi í þeim, en járnpípur springa, eins
°g kunnugt er, þcgar vatn frýs í þeim. Plastpípurnar
þola líka miklar sveigjur og beygjur án þess að
brotna. Verð þeirra er eitthvað hærra en venjulegra
pípna af sömu vídd, en auðvelt er að leggja þær í
jörð, því að ekki þarf að grafa eins djúpt og þegar
um járnpípur er að ræða. Einnig haía nefndar pípur
verið lagðar í jörð sem strengur á eftir kílplóg.