Símablaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 36
4
S 1 M A B L A Ð I Ð
uom. ónááon :
Evæði gi iii
Oftast cr æfi þeirra
óslitin reynsluför,
sem lifa lífinu einir
viö langdregin sultarkjör,
eru fíknir í fróðleik
en finna þó lítil svör.
Að læra að lesa og skrifa
var löngum hennar þrá,
en aldarhátturinn annars
af œskunni krafðist þá.
í örsnauðum einstæðingi
enginn manngildi sá.-----
Hún sagði mér stundum sögur
og setti mig kné sér á.
Ég hlustaði jafnan hljóður
— hlustaði af innri þrá.
Þá vitraðist vitund minni
sú veröld er ei ég sá.
amla konn.
Hún kenndi mér stundum kvæði
og kvað við þau lögin snjöll,
og svo fór um lögin og Ijóðin:
ég lærði þau næstum öll,
og ótal mörg ævintýri,
um álfa, dverga og tröll.
Við bernskubrekum mínum
hún blíðu sýna vann.
í atlotum hennar öllum
ást til smœlingjans brann.
Og það var svo gott að geta
gleymt sér, við ylinn þann.
Þótt margt sé nú gleymt og glatað,
sem gladdi mig, ungan hlyn,
ég vildi að allir œttu
í æsku svo góðan vin.
Því miður er það á þrotum
hið þjóðlega gamla kyn.
Ultra-síuttbylgju stöð er í undir-
búningi a8 byggja uppá svoköllluðu
Klifi i Vestmannaeyjum. Hefur
LúÖvíg Nordgulen verið með flokk
manna í Eyjum undanfarnar vikur
viS jarðsímalögn uppá Klifið, — og
undirbúning húsbyggingarinnar.
Á myndinni til vinstri sjást síma-
menn við þá erfiðu vinnu, að koma
jarðsímastrengnum upp hjarnið.