Símablaðið - 01.01.1949, Blaðsíða 43
SlMABLAÐIÐ
11
£waMaii$
í apríl n.k. eru liðin 35 ár síðan Síma-
blaðið hóf göngu sína. Er það því í
tölu elstu blaða og tímarita, sem gefin
eru út hér á landi.
Mér hefur lengi verið það ljóst, að
fyrirkomulag það, sem verið hefur á
útgáfu þess, er ekki heppilegt Á það
bæði við um það, hve sjaldan það kem-
ur út, og hitt, að byggja útgáfu þess
á auglýsingum. Það liggur 1 augum
uppi, að með svo strjálli útkomu verð-
ur það ekki sá umræðuvettvangur, sem
nauðsynlegt er að það sé, og getur því
ekki haldið svo á málum stéttarinnar,
sem því er ætlað. Á hinn bóginn veldur
það fyrirkomulag, að félagssjóður ber
ekki kostnaðinn af útgáfunni, og fé-
lagsmenn greiða ekki blaðið, — eðlilega
því, að félagarnir taka ekki þeirri
tryggð við blaðið, sem líka er nauðsyn-
leg.
Og síðast, en ekki sízt, verður blaðið
aldrei aögengilegt til lesturs, meðan
auglýsingar bera uppi kostnaðinn við
útgáfuna.
Aðstaða félagsins hefur breytzt mik-
ið síðasta áratug. Félagsmönnum heí-
ur fjölgað að miklum mun. Félaga-
gjöldin hafa verið há, — svo félagið er
nú fjárhagslega vel stætt. Því var það,
að á síðasta aðalfundi var, að tilhlutan
þáverandi stjórnar, stofnaður menn-
ingarsjóður, með 20 þús. kr. stofnfé.
M. a. hafði stjórnin þá útgáfu Síma-
blaðsins í huga.
framtíð þe§§.
Núverandi stjórn hefur rætt það mál
nánar, og hefur ákveðið að leggja til
við væntanlega stjórn, — að þessi sjóð-
ur beri kostnaðinn af útgáfu blaðsins
framvegis. Hefur hún hugsað sér, að
félagssjóður greiði Menningarsjóði
vissan hluta af félagsgjöldum, — allt
að 10 kr. af hverju félagsgjaldi, sem
áskriftargjald að blaðinu. Jafnframt
væri því ætlað að koma út minnst árs-
fjórðungslega, — og á vissum dögum.
Er vel til fallið, að gera þessa breyt-
ingu á útgáfu Símablaðsins, á 35 ára
afmæli þess.
Stjórn félagsins hefur þegar gert ráð-
stafanir til að gefa afmælisblað út, og
þá í því formi, sem því er ætlað í fram-
tíðinni, — og falið 7 manna ritnefnd
að sjá um útgáfuna. Er því ætlað að
koma út nokkru eftir afmæli félagsins,
27. febrúar. Efni þess blaðs verður að
sjálfsögðu að miklu leyti helgaö sögu
félagsins og félagsmálum. En einnig
mun það birta greinar um tækni, og
annað það er til skemmtunar og fróð-
leiks má telja.
Væntir ritnefndin þess, að aðrir fé-
lagar leggi sinn skerf fram til þess að
gera afmælisblaðið fjölbreytt, og stétt-
inni til sóma.
Ég vil svo nota tækifærið og þakka
öllum þeim, sem hjálpað hafa til að
gera útgáfu blaðsins mögulega, og lagt
fram sinn skerf til að gera það að
áhrifaríku baráttutæki.
A. G. Þ.