Símablaðið - 01.01.1973, Blaðsíða 3
Ritstj.: Vilhjálmur B. Vilhjálmsson - MeÖritstj.: Helgi Hallsson, JónTómasson
Ritstjórnarfulltrúi: Helgi E. Helgason — Félagsprentsm.
SUMARKVEÐJA
Nú hefur sumarið gengið í garð. Jörð
grænkar — blóm taka á sig litskrúð —
lóa kemur að sunnan og lax gengur í
ár — golfvellir og gönguleiðir verða
kvikar af fólki, sem leitar dýrðar í ríki
náttúrunnar. Umhleypingasamur og ó-
blíður vetur er liðinn, en skildi eftir
lamandi þreytu og þrúgan á líkama og
sál, sem sumarblíða og útivist á kom-
andi vikum er vænlegust til að fjar-
lægja og búa innivinnufólk undir ný
átök á næsta vetri.
1 aldaraðir voru allir Islendingar nær
eingöngu útivinnufólk — ungir og
gamlir til sjávar og sveita — háðu lífs-
baráttuna utan dyra og urðu að strita
allmikið við öflun lífsframfæris. Nú
hafa þjóðhættir gerbreytzt, að flestra
mati til góðs, — nema hvað á síðustu
árum hefur orðið augljós þörf fyrir
aukna útivist og líkamlega áreynslu við
íþróttir og göngur. Með þessar þarfir
mannsins í huga hefur á undanförnum
árum verið unnið skipulega af ýmsum
félagssamtökum og verulega áunnizt til
úrbóta.
Liður í þessari viðleitni er að veita
innivinnufólki betri möguleika til að
nýta frístundir sínar yfir sumarið, t. d.
með dvöl í sumarbúðum og ódýrum
ferðum til sólríkari landa og þó kannski
helzt með breyttri vinnutilhögun, sem
veklur því, að fjöldi fólks fær 2-21/>
dag samfellt frí um hverja helgi.
í flestum tilvjkum verður þessu auð-
veldlega fyrirkomið með lítilli tilfærslu
á daglegum vinnutíma — oftast án
þess, að það komi I bága við nokkurn
mann eða nokkurt verkefni. Önnur
störf eru þó þess eðlis, að erfiðara er að
samræma þau þessum sjónarmiðum.
Nokkur aðlögunartími og eðlileg
túlkun á almennri þörf fyrir aukinn
samfelldan frítíma og sú réttlætiskennd,
sem með flestum býr, ætti að nægja ti!
að ná því takmarki, að ALLT inni-
vinnufólk fái 5 daga vinnuviku, a, m. k.
yfir sumarið.
Hinn frjálsi vinnumarkaður hefur
náð þessu marki í reynd og f jöldi starfs-
manna ríkis og bæja hefur heimild fyr-
ir slíkri tilhögun, e» herzlumuninn
skortir á til að því marki verði náð fyr-
ir alla.
Hjá pósti og síma eru enn stórir hóp-
ar — bæði í Iteykjavík og úti um allt
land, — sem ekki hafa fengið þessa
vinnutilhögun og augljóst er, að ekki
geta allir fengið frí á laugardögum og
Framh. á bls. 14.