Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1973, Blaðsíða 4

Símablaðið - 01.01.1973, Blaðsíða 4
SKYRSLA FRAMKVÆMDA- STJÓRNAR F.'I.S. 1972 Ágúst Geirsson, formaður F.Í.S. LAUNAMÁL Á liðnu starfsári hafa launamálin aðal- lega einkennzt af málarekstri vegna ágreinings og framkvæmda á síðasta kjara- samningi. Var fyrst og fremst um að ræða ágreining vegna röðunar í launaflokka, bæði varðandi einstaklinga og starfshópa. Þegar skýrsla framkvæmdastjórnar var gerð á s.l. ári, stóðu málin þannig, að fé- lagið hafði lagt fram kærur fyrir um 160 starfsmenn, auk 19. greinar mála, sem snertu bæði fjölmenna starfshópa og ein- staklinga. Kröfur félagsins í málum þessum, ásamt endurbættum starfslýsingum, voru lagðar fyrir samninganefnd ríkisins. Frá henni komu tilboð um lagfæringar á flokkun um 40 starfsmanna og gengu um 30 að þeim tilboðum. Öðrum kröfum synjaði samn- inganefnd og vísaði félagið þeim til úr- skurðar Kjaranefndar. Allur málarekstur í sambandi við Kjara- nefndarmálin kostaði félagið geysimikla vinnu, en það hafði sjálft tekið að sér að undirbúa og rökstyðja þau. Auk fram- kvæmdastjórnar og deildastjórna unnu þeir Baldvin Jóhannesson, Brynjólfur Björnsson og Þorsteinn Óskarsson mikið ,að þessu verki. Mikill seinagangur var á störfum Kjara- nefndar og olli það mikilli óánægju þeirra starfsmanna, sem í hlut áttu. Félagið rak 2 margítrekað á eftir því að nefndin hraðaði störfum. M. a. sendi félagið frá sér harð- crð mótmæli vegna vinnubragða, í þessum málum og sendi Kjararáði BSRB ákveðin tilmæli um að það gengi eftir því, að Kjaranefnd hraðaði störfum vegna kæru- mála félagsins. Fyrstu dómar Kjaranefndar voru kveðn- ir upp síðast í nóvember og þeir síðustu skömmu fyrir jól. Var það í öllum þeim málum, sem voru fullfrágengin til dóms. Alls voru þetta dómar í málum um 90 starfsmanna og varð útkoman sú, að rúm- ur þriðjungur þeirra fékk einhverja lag- færingu, en hinir synjun. BSRB og samninganefnd ríkisins hafa nú tekið upp viðræður um þau mál, sem ódæmt er í, til þess að reyna að ná sam- komulagi um þau, og þá með tilliti til þeirra úrskurða, sem Kjaranefnd hefur þegar fellt. I 19. gr. kjarasamnings BSRB og ríkis- ins frá 19. des. 1970 er kveðið svo á, að séu samningsaðilar sammála um, að ein- stök störf eða starfshópar hafi verið rang- lega metin til launaflokka, skuli sú flokk- un leiðrétt. Fjölmargar kröfur um leiðrétt- ingar, byggðar á þessu ákvæði, komu fram, bæði frá einstaklingum og starfshópum. Nokkuð erfiðlega hefur gengið að fá t'ram leiðréttingar í þessum málum, þar sem ríkið hefur algjört neitunarvald í þeim, SÍMAB LAÐ IÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.