Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1973, Side 7

Símablaðið - 01.01.1973, Side 7
LANDSFUNDUR 9. landsfundur F.Í.S. var haldinn að Hótel Esju í Reykjavík dagana 6.-8. okt. s.l. Fundinn sátu 38 fulltrúar frá öllum deildum félagsins. Á fundinum voru fjölmörg mál til um- ræðu og margar ályktanir gerðar. Smá- vægilegar breytingar voru gerðar á lögum félagsins, m. a. til að auðvelda félögum utan Reykjavíkur að taka þátt í félags- starfinu. Símablaðið hefur þegar gert landsfund- inum góð skli og birt allar ályktanir hans, og því ekki ástæða til að gera nánari grein fyrir þeim hér. Landsfundur þessi tókst í alla staði vel. Miklar og almennar umræður urðu um málin og mikill áhugi fulltrúa um málefni félagsins. Landsfundir eru ætíð mjög örfandi fyrir félagslífið. Þeir gefa fulltrúum deildanna tækifæri til að kynnast vel þeim málum félagsins, sem efst eru á baugi hverju sinni, auk þess sem þeir gefa tækifæri til persónulegra kynna félaganna, víðsvegar að af landinu. SUMARBÚÐAMÁL Á s.l. vori voru tekin í notkun 4 ný fjölskylduhúsálandi félagsins við Apavatn. Húsin, sem byggð eru af Húsasmiðjunni h.f í Reykjavík, eru 45 fermetrar að stærð, þrjú herbergi og stofa, auk eldhúskróks og baðs. Rúmstæði eru fyrir 7 í hverju húsi og eru rúmstæðin þá orðin samtals 80 í öllum orlofshúsum félagsins á fimm stöðum á landinu. Ágæt aðsókn var að orloíshúsunum á liðnu sumri, t. d. var fullbókað í húsin við Apavatn frá því í júní, er þau voru tekin í notkun, og fram í september, sömu- leiðis í Munaðarnesi. Umsjónarmaður var ráðinn að sumarbúðunum við Apavatn og starfaði hann frá miðjum júní fram í miðj- an september. Var það Viktor Björnsson, fyrrum verkstjóri á Akranesi, og var kona hans, Friðmey Jónsdóttir, með honum í starfinu. Unnu þau ágætt starf fyrir félag- ið og nutu vinsælda dvalargesta, Auk byggingar húsanna fjögurra við Apavatn, var þar unnið að ræktun og snyrtingu landsins, lagðir voru gangstígar og sett upp útilýsing á svæðinu. Allar þessar framkvæmdir og frekari lagfæringar á öðrum bústöðum kostuðu allmikið fé, og leitaði framkvæmdastjórn eftir 1.5 millj. króna láni hjá stofnun- inni. Samgönguráðuneytið synjaði þessari beiðni, en með því að leita til annarra sjóða félagsins náðust endarnir saman. BSRB hefur nú tekið á leigu 40 hektara landspildu, sem liggur að landi þess í Munaðarnesi. Ákveðið hefur verið að hefja þar nýjan áfanga í byggingu orlofsheimila. Verða í þeim áfanga byggð um 40 hús, í samræmi við óskir bandalagsfélaganna. Gefinn var kostur á tveim húsastærðum, 24 og 45 fermetra. Verður hlutur félag- anna í kostnaði stærri húsanna kr. 1 millj. og þeirra minni kr. 600 þús. F.Í.S. hefur þegar tekið ákvörðun um þátttöku í þessum áfanga með því að kaupa 2 hús af stærri gerðinni. Á landsfundinum var samþykkt ályktun þess efnis, að hafinn verði undirbúningur að byggingu nýs sumarhúss á Egilsstöðum eða nágrenni. í framhaldi af því sendi félagið Alþýðu- sambandi Austurlands bréf, þar sem spurzt var fyrir um það, hvort félagið gæti átt þess kost að taka þátt í næsta byggingar- áfanga þess að Einarsstöðum. Svar við þeirri fyrirspum hefur enn ekki borizt. í allmörg ár hefur félagið samið við stofnunina um, að í stað skemmtiferða fyr- ir starfsfólkið, rynni áætlaður kostnaður hennar til sumarbúðaframkvæmdanna. Nú var hins vegar í fyrsta skipti beiðni fé- lagsins um slíkt hafnað af ráðuneytinu, STARFSMAÐUR F.Í.S. Vegna sívaxandi starfsemi félagsins síð- ustu árin og fjölgunar félagsmanna, hefur orðið æ brýnna að ráða sérstakan starfs- mann fyrir félagið. Þar að auki er fyrir- sjáanleg mikil aukning á starfi félagsins, með aukinni hlutdeild í samningsréttinum. Stjórn félagsins hefur kannað það tölu- vert undanfarna mánuði, hvort einhver fé- lagsmaður vildi taka að sér þetta starf. 5 SÍMAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.