Símablaðið - 01.01.1973, Qupperneq 8
Þegar svo reyndist ekki vera, auglýsti fé-
lagið opinberlega eftir starfsmanni.
Nú hefur starfsmaður verið ráðinn frá
1. apríl, er það Helgi E. Helgason, blaða-
maður. Framkvæmdastjórn væntir sér
mikils af starfi þessa nýja starfsmanns,
bæði varðandi starf félagsins og þjónustu
þess við félagsmenn.
ÝMIS MÁL
Samningur var gerður milli BSRB og
fjármálaráðherra, að fyrir yfirstandandi
orlofsár skuli ríkisstarfsmenn fá g'reitt
5.000 kr. orlofsframlag, í stað orlofs-
greiðslu af yfirvinnukaupi. Aður en þessi
samningur var gerður, tók Félagsráð þetta
mál til meðferðar, og var þar samþykkt
áskorun á stjórn BSRB, að hvika ekki frá
kröfunni um greiðslu orlofsfjár á öll laun,
á sama hátt og gert er á frjálsum vinnu-
markaði, og að ekki yrði í staðinn farin
sú leið, að semja um ákveðna upphæð til
allra ríkisstarfsmanna, án tillits til, hve
mikla yfirvinnu þeir ynnu.
Þetta mál verður eflaust til umræðu aft-
ur í næstu kjarasamningum.
Fyrir atbeina F.Í.S. voru á árinu fengn-
ar 86 stöður til fastráðningar á lausráðnu
starfsfólki. Enn eru þó allmargir lausráðn-
ir starfsmenn hjá stofnuninni og er nú í
gangi könnun í þeim efnum.
Deild skrifstofufólks óskaði eftir að fé-
lagið beitti sér fyrir því, að ákvæði 21.
gr. kjarasamninganna, sem kveða á um
heimild forstöðumanna til að hækka skrif-
stofufólk í 7. til 13. lfl. um einn lfl., verði
notað, og að samræmis sé gætt í því milli
deilda stofnunarinnar.
Mál þetta var flutt í Starfsmannaráði,
þar sem fulltrúar stofnunarinnar gáfu fyr-
irheit um, að svo skyldi verða.
Það hefur lengi verið baráttumál félags-
ins, að nemar fengju að greiða í lífeyris-
sjóð. Á síðasta hausti náðist þetta fram,
þegar farið var að taka lífeyrissjóðsgreiðsl-
ur af launum þeirra nema, sem náð höfðu
tilskildum aldri.
Nú er unnið að því, að eldri starfsmenn
fái að kaupa réttindi aftur í tímann fyrir
sinn námstíma.
Fjármálaráðuneytið ákvað, skömmu eft-
ir áramótin, að taka til sín launagreiðslur
starfsmanna stofnunarinnar. Mál þetta var
rætt í Félagsráði, sem taldi, að slík breyt-
ing yrði til mikils óhagræðis fyrir starfs-
mennina og samþykkti einum rómi að
fara þess á leit við samgönguráðherra, að
hann beitti áhrifum sínum til að koma í
veg fyrir hana.
Ekki varð árangur af þeirri málaleitan
og hefur nú fjármálaráðuneytið fram-
kvæmt ákvörðun sína.
í vetur hefur verið starfandi innan
BSRB nefnd um málefni vaktavinnuíólks.
F.Í.S. tilnefndi tvo fulltrúa í nefndina, þau
Þórunni Andrésdóttur og Björn Emilsson.
sem verið hefur formaður hennar. Nú hef-
ur Björn fengið árs leyfi frá störfum og
hefur Jóhann L. Sigurðsson verið tilnefnd
ur í hans stað.
Eftir að náttúruhamfarirnar brutust út
í Vestmannaeyjum og hin miklu húsnæðis-
vandræði eyjamanna sköpuðust, bauð fé-
lagið fram orlofshús sín við Apavatn til
afnota fyrir þá. Ekki hefur þó komið til
þess að svo yrði.
Á landsfundinum var samþykkt, að fé-
lagið legði fram kr. 25.000 í landhelgis-
sjóð.
Allmargir félagsmenn hafa sótt fræðslu-
fundi og námskeið bandalagsins á árinu,
og hefur félagið auðveldað þeim þátttök-
una með því að greiða þátttökugjöldin.
Símablaðið kom tvisvar út á árinu.
Á starfsárinu voru haldnir 28 fundir í
framkvæmdastjórn, 5 í Félagsráði og lands-
fundur símamanna, auk annarra funda,
sem stjórnin átti með ýmsum aðilum.
Fundir í Starísmannaráði voru 27. Einnig
var haldinn formannafundur bandalags-
félaganna á starfsárinu.
FÉLAGAR — ATHUGIÐ!
Fyrirhugað er að halda skemmtihe'ííi að
Apavatni dagana 30.6.—1.7. 1973.
Nánar auglýst síðar.
SKEMMTINEFND
S I MAB LAÐ IÐ