Freyr - 01.12.1954, Blaðsíða 17
Trén vaxa vel i Heiömörk, þó að veðurfar um Reykjanes sé miður hagstœtt trjágróðri.
félögum. Barrtrén í Borgarfjarðarmynd-
inni (fura, blágreni og sitkagreni) voru
gróðursett innan um birkikjarr vorið 1938,
en barrtrén á hinni myndinni (Sitkagreni)
tveimur eða þremur árum seinna á skóg-
lausum en skjólgóðum stað, í brekku móti
norðvestri. Á báðum stöðunum eru hæstu
trén nú yfir 2i/2 m á hæð, fallega vaxin, og
virðast vera í öruggum vexti. Talið er, að
plönturnar á báðum þessum stöðum séu frá
suðlægari slóðum en æskilegt væri, en jafn-
vel þótt svo sé, virðast þær alls ekki hafa
áttað sig á því, að hér séu í rauninni alls-
endis óhæf vaxtarskilyrði (samkv. ummæl-
um Páls Sveinssonar) fyrir slík tré, — og
vonandi halda trén uppteknum hætti, að
vaxta og þroskast ár frá ári á komandi ára-
tugum.
Barrtré þau, sem vaxið hafa upp í Hall-
ormsstaðaskógi undanfarna áratugi, eru að
vísu talandi vottur þess, að slíkar trjáteg-
undir geta lifaö og vaxið hér á landi, en það
er bersýnilega ekki nógu sannfærandi. Það
er hugsanlegt, og margir trúa því, — þó að
það sé engan veginn sannað, — að þar og
sumsstaðar norðanlands séu betri skilyrði
til skógræktar en annarsstaðar á landinu,
en þau „vitni“, sem hér eru leidd fram,
sýna ótvírætt, þó að myndirnar (báðar
teknar í haust) séu aðeins ..svipur hjá