Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1954, Blaðsíða 25

Freyr - 01.12.1954, Blaðsíða 25
FRE YR 373 klausturs, og enda 15. júní með flugferð frá Reykjavík til Egilsstaða. Fararstjóri var Sveinn Jónsson bóndi á Egilsstöðum, en ég var leiðsögumaður ferðafólksins hér syðra. Má hér í upphafi skýra frá, að allt fór þetta samkvæmt áætlun og tókst vel. Er þetta í fyrsta sinn sem bændur hér nota flugvél til slíkrar hópferðar. Laugardaginn 5. júní fór ég að Kirkju- bæjarklaustri til þess að undirbúa komu Austfirðinganna þangað. Lágskýjað var um hvítasunnuna, en þó talið lendingarfært, en ekki mátti þó syrta meir í lofti. Þriðju- daginn 8. júní var veðrið svipað og lagði flugvélin af stað frá Egilsstöðum fljótt eft- ir hádegi og fréttum við af henni, er hún flaug framhjá Fagurhólsmýri. Stóð það heima, að þegar við komum út á flugvöll- inn, sást hún skjótast út úr skýjarofi í austri og eftir fáar mínútur var hún lent á sandinum, sem mun vera einn lengsti flug- völlur landsins, sem nær frá þjóðveginum austan Skaftár og að Heimsendaskeri. Er það skrýtið og skemmtilegt örnefni. Ferðafólkinu leið vel eftir flugið og var nú haldið heim að klaustrinu, þar sem maturinn beið á borðunum, en Faxinn hóf sig á loft aftur og flaug til Egilsstaða eftir seinni hópnum. Að lokinni máltíð ók ferða- fólkið austur um Síðuna að Fossá og Dverg- hömrum. Fór séra Gísli Brynjólfsson með því, en ég beið flugvélarinnar, sem lét ekki heldur lengi á sér standa og voru þá allir 56 þátttakendur komnir til jarðar, í nýtt umhverfi ólíku Austurlandi. Að lokinni máltíð fór ég með þann hóp austur á Síð- una og snerum við við hjá Teygingalæk. Veður var gott, en þó svo lágskýjað, að ekki sást til Öræfajökuls, hæsta og tignarleg- asta fjalls landsins. En að öðru leyti tjald- aði Síðan því sem hún á fegurst til. Um kvöldið borðaði ferðafólkið í boði búnaðarfélaganna á Síðu og skoðuðu um- hverfið, Systrastapa, gömlu klausturrúst- irnar og „kirkjugólfið" o. fl. Mörgum varð starsýnt á skógargróðurinn i brekkunum, sem þeir Klausturbræður hafa gróðursett með miklum myndarskap, en skógurinn er nú þegar farinn að setja fagran svip á stað- inn. Flestir gistu á Klaustrinu þessa nótt, Öldungarnir þolinmóðir á meðan Geysir lcetur biða eftir sér. en þó um 20 manns á öðrum bæjum. Bíl- arnir tveir, er leigðir voru í ferðina, voru frá Brandi Stefánssyni í Vík og báðir bíl- stjórarnir voru í aðra ættina af Fljótsdals- héraði og biluðu hvorki þeir né bílarnir í ferðinni. Miðvikudagurinn byrjaði með góðviðri, og í einu orði sagt, þá hélzt hið góða veður alla ferðina út, svo að ekki hafa aðrir bænd- ur verið veðurheppnari í þeim ferðum, sem ég hef tekið þátt í og er því þarflaust að minnast frekar á veður í þessari frásögn. All snemma var farið á fætur og síðan ekið niður í Landbrot, lengst að Seglbúðum til frú Gyðríðar Pálsdóttur, og er þar margt til fyrirmyndar, bæði utan húss og innan. En að afloknum hádegisverði á Klaustrinu var haldið vestur yfir Eldhraunið frá 1783 og vakti það furðu allra — og þá ekki síður það, hve mikill gróður er kominn í það á ekki lengri tíma en liðinn er þá myndun hraunsins. Svo tóku við grösug lönd Skaft- ártungunnar og þar fyrir vestan Mýrdals- sandur. Þeir Álftveringar höfðu gert Aust-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.