Freyr - 01.12.1954, Blaðsíða 28
376
FREYR
vildu nú endurgjalda. í stóra salnum í Hlé-
garði borðuðu þetta kvöld hátt á annað
hundrað manns og ekki bar á neinni óá-
nægju hjá heimamönnum, enda þótt ferða-
fólkið kæmi tveim tímum seinna en vera
átti. — En klukkustund eftir að farið var
frá Geysi hafði hann gosið fallega og urðu
Austanmenn að látá sér þá frétt nægja. Og
vegna biðarinnar þar hafði orðið að sleppa
Selfossi, en það var á áætlun að koma við
þar.
í Hlégarði var setið í ágætum fagnaði, við
söng og ræðuhöld lengi fram eftir, unz Páll
Zóphóníasson búnaðarmálastjóri, er þarna
slóst með í ferðina, tilkynni hvernig næt-
urgistingu yrði fyrir komið þessa nótt og
hver bóndi hirti sitt austanfólk og flutti
það með sér heim. Var áreiðanlega áliðið
áður en allir voru sofnaðir. Var ferðafólk-
inu skipt niður á bæi í Mosfellssveit, á Kjal-
arnesi og í Kjós.
Laugardaginn hit'tist ferðafólkið aftur,
þar sem bílarnir tóku það upp á bæjum og
við vegamótin og var svo haldið að félags-
heimili bændanna í Kjós, sem heitir Fé-
lagsgarður og stendur nálægt Laxárvogi.
Var þar setið góða stund í góðum fagnaði
yfir kaffiborðum. Kvöddu Austanmenn
Kjósarbúa þar og héldu svo áfram inn með
Hvalfirði. Inni í Botnsskógi, innst í firðin-
um biðu nokkrir jeppabílar. Voru þar mætt-
ir Borgfirðingar og Mýramenn til að bjóða
gestina velkomna í héraðið, en sýslumörk
eru við Botnsá. Mjög var Hvalfjörður fagur
þennan dag og var ekið út af þjóðveginum
og í kringum Melasveitina, en ekki dvalið
við fyrr en á bændaskólanum á Hvanneyri
og búskapur þar og umhverfi skoðað undir
leiðsögn Guðmundar Jónssonar skólastjóra.
Á Hvanneyri var þeginn miðdegisverður,
nýveiddur lax, sem hefur vafalaust verið
nýnæmi fyrir ferðafólkið, því að á Austur-
landi mun vera minnst um laxveiði af öll-
um landsfjórðungum, en laxinum að mestu
útrýmt, því enn eru þar ár, sem heita Laxár.
Frá Hvanneyri var ekið um Borgarfjörð,
komið að Bifröst við Hreðavatn og síðkveld-
is að Reykholti. Þar var ferðafólkinu skipt
á bæina til gistingar — í Reykholtsdal og
Bæjarsveit — og voru nú margir ærið sein-
ir í háttinn. Um hádegisbilið sunnudaginn
13. júní var svo lagt af stað úr Borgarfirði
og farið um Lundarreykj adal og Uxa-
hryggjaveg til Þingvalla. Allmargt af ferða-
fólkinu hafði ekki komið til Þingvalla áð-
ur. í Bolabás á Þingvöllum beið hópur Aust-