Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1954, Page 31

Freyr - 01.12.1954, Page 31
FREYR 379 H. J. HÓLMJÁRN Landsmót hestamanna á Þveráreyrum í Eyjafirði 7.-11. júlí 1954 Annað landsmót Landssambands hesta- mannafélaga var haldið á Þveráreyrum í Eyjafirði dagana 7.—11. júlí. Þar fór fram sýning á stóðhestum með afkvæmum og yngri stóðhestum án afkvæma. Ennfremur tömdum reiðhryssum og góðhestum. Þá voru háðar landskappreiðar á skeiðvelli við sýningarsvæðið. Gefin var út sýningarskrá. Þar voru skrásett öll sýningar- og kapp- reiðahross. Skrásettir voru 26 stóðhestar 4 vetra og eldri; af þeim mættu til dóms 23, og fjórir 3 vetra, af þeim mættu þrír. Skrásettar voru 54 hryssur, þar af mættu rúmlega 40. 28 góðhestar voru skráðir, en 19 mættu til dóms. Á kappreiðarnar voru skráðir 7 skeiðhestar en 4 mættu til hlaups. 23 stökkhestar voru skráðir, en allmargir þeirra mættu ekki. Þrjá fyrstu daga sýningarinnar var tek- ið á móti sýningarhrossum og dómarar unnu að dómum. Laugardaginn 10. júlí kl. 10y2 setti for- maður Landssambands hestamannafé- laga mótið með ræðu. Minntist formaður meðal annars hinna sérstæðu hæfileika íslenzka hestsins og þeirra djúptæku á- hrifa, er hann hefði haft á íslenzkt þjóð- líf bæði fyrr og síðar. Að lokinni setningarræðu hófst sýning- in. Fyrst voru sýndar kynbótahryssur. Hryssunum var raðað í dómhring með nokkru millibili. Fylgdi knapi hverri hryssu. Gunnar Bjarnason hrossaræktarráðunaut- ur skýrði niðurstöður dómanna á hverri hryssu fyrir sig. Var sýningarhrossinu samtímis riðið tvo hringi í dómhring, þann- ig að áhorfendur gætu sem bezt virt það fyrir sér. Eftir að dómum hafði þannig verið lýst á sýningarhryssunum var þeim öllum riðið í röð nokkra hringi í dómhring. Fór sú fyrst, sem flest hafði dómstigin, og síðan sú, sem hafði næst flest stig o. s. frv. Kl. 12 á hádegi var fyrstu sýningu á hryss- unum lokið. Var þá gefið hlé til kl. iy2. Kl. iy2 hófst sýning á góðhestum í dóm- hring. Fór hún að öllu leyti fram eins og sýningin á hryssunum. Formaður góð- hestadómnefndar, Steinþór Gestsson, lýsti dómum. Sýningu góðhesta var lokið um kl. 31/2. Kl. 4 hófst sýning á kynbótahestum í dómhring. ■— Hrossaræktarráðunauturinn lýsti dómum og fór það fram á sama hátt og áður er getið. Sýningunni var lokið þennan dag kl. 7. Eftir kvöldmat voru háð- ar kappreiðar, svokallaðar undanrásir. Seinna um kvöldið var dansað úti á palli. Sunnudaginn 11. júlí hófst sýningin á ný. Fór hún fram á sama hátt og daginn áð- ur. Breytt var þó röð á kynbótahestum og gæðingum og kynbótahestar sýndir frá kl. 1—3 og gæðingar frá 3—4. Verðlaunaaf- hending fór fram samtímis sýningunni þennan dag og sömuleiðis myndataka af öllum sýningarhrossunum. Kappreiðar voru háðar frá kl. 4—7 en kl. 7y2 var dregið í happdrætti Landssambands hestamanna- félaga. Vinningar voru þrír altygjaðir reið- hestar. Þegar hér var komið, flutti land- búnaðarráðherra Steingrímur Steinþórsson ræðu frá dómpalli. Var upprunalega ákveð- ið, að ráðherra flytti ræðu við setningu mótsins, en úr því gat ekki orðið vegna eyðileggingar vega á Öxnadalsheiði. Kl. 8 að kvöldi sleit form. L. H. mótinu með stuttri ræðu. * Sýningarhross, dómur og verðlaun. Þá verður sagt frá sýningarhrossunum og umsögn dómara um þau, sem verðlaun hlutu. í dómnefnd kynbótahrossa voru:

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.