Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7 8. JANÚAR 2006 Fréttir DV Dómarar vilja funda í erindi sem Dómarafé- lag íslands hefur sent for- seta Alþingis og forsætis- ráðherra er því harðlega mótmælt að aðrir en Kjara- dómur hlutist til um laun dómara. Kröfu þessa rök- styðja dómarar á þann hátt að sem einn af þremur handhöfum ríkisvaldsins sé ótækt að framkvæmdavald- ið ákvarði um laun dómara. Þess er einnig óskað að fulltrúar dómara fái fund með nefndinni sem íjallar um málefni Kjaradóms á Alþingi. Renndi sér fyrir bíl Tólf umferðaróhöpp komu til kasta Lögreglunn- ar í Reykjavík í gær. Orsök þeirra flestra var slæm færð á götum borg- arinnar. Alvar- legasta atvik gærdagsins varð þegar ungur drengur renndi sér á sleða fyrir bíl við Vallengi. Betur fór en á horfðist og slapp drengurinn ómeidd- ur. Að sögn lögreglunnar var það helst að ökumaður- inn hefði þurft að leita sér aðstoðar enda í uppnámi eftir atburðinn. Sjálfstœðis- konurí Garðabœ Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar I Kópavogi. „Þessi úrslit í Garðabænum eru náttúrlega mjög alvarleg fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Trú- lega sýna þau hið rétta andlit flokksins þvíþað er hinn harði kjarni flokksins sem kýs í próf- kjörinu. Honum finnst að kon- ur eigi ekki að vera ofar en þetta." Hann segir / Hún segir „Það hefur lengi verið mantr- an íSjálfstæðisflokknum að velja eftir einstaklingum. í því einstaklingsbundna vali virð- ast sjálfstæðismenn ofthafa meiri trú á körlum en konum. Ég held að þetta sé í meiri tengslum við þá stjórnmála- stefnu sem þar er iðkuð frekar en þessa einstaklinga; þetta eru örugglega mjög hæfar konur, allt eins og karlarnir. “ Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri-grænna. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, velti bíl sínum í fyrrakvöld við Húnaver. Bíllinn gjöreyðilagðist en Steingrímur var fluttur með sjúkraþyrlu frá Blönduósi á Landspítala-háskólasjúkrahús. Hann lá á gjörgæslu fram eftir degi í gær en var fluttur á almenna deild þegar líða tók á kvöldið. Steingrímur slapp betur en á horfðist en verður þó frá vinnu í nokkurn tíma. Steingrímur hughreysti móDur sína eltir híMna Sigríður Jóhannesdóttir Varð illt við þegar hún heyrði afbilveltu sonar síns en róað- ist þegarhann hringdi I hana. 'autsdalur [navatnw Bólstéðárhm j Stóra- íellufell Stóridalur tð Eyvindarstai Bergsstaðir'\ <s>- Blöndustm\ í 733 f „Það breyttist strax þegar Steingrímur hringdi í mig og sagði: „Mamma! Þetta verður allt i lagi." Það var mikill léttir. Ónýtur bíll Landcruiser-bifreið Steingríms vargjör ónýt eftir veltuna. Göngugarpurinn Steingrímur Móðir Steingrfms segir hið góða llkamlega óstand hans hafa skipt miklu. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri- grænna, slapp betur en á horfðist þegar hann velti Toyota Landcruiser-jeppa sínum milli Svartárbrúar og Húna- vers við Bólstaðarhlíð í fyrrakvöld. Bíllinn gjöreyðilagðist en Steingrímur slapp með beinbrot. Hann var fluttur með þyrlu frá Blönduósi um miðnætti og lá á gjörgæslu fram eftir degi í gær. Þá strax var ljóst að hann hefði ekki orðið fyrir neinum mænu- skaða og var hann að sögn flokksfélaga sinna farinn að fylgjast með fréttum og umræðum á Alþingi seinni partinn í gær. Sigríður Jóhannesdóttir, móðir Steingríms, vissi ekki af bílveltunni fyrr en í gærmorgun. Hún sagði í samtali við blaðamann DV í gær að synir hennar hefðu ekki viljað vekja hana og Sigfús mann hennar í fyrrakvöld enda væru þau gamalt fólk sem færi snemma að sofa. „Mér varð illt við þegar ég heyrði en það breyttist strax þegar Stein- grímur hringdi í mig og sagði: „Mamma! Þetta verður allt í lagi." Það var mikill léttir," sagði Sigríð- Hafði lengi óttast þetta Sigríður sagði að hún hefði oft hugsað um að þetta gæti gerst. „Hann Steingrímur hefur svo oft verið einn á ferðinni í myrkri og snjó og því miður gerðist þetta núna. Hann Steingrímur minn er hins vegar mjög vel kominn á sig líkamlega og það hefur skipt máli í þessu. Við erum fullorðið fólk og tökum öllu með jafnaðargeði en við erum glöð að þetta fór betur en á horfðist." Slysstaður Það var ó þessum stað sem Steingrfmur velti bílnum. Gjörónýtur bíll Landcrusier-jeppi Steingríms var gjörónýtur eftir veltuna en Steingrím- ur náði sjálfur að hringja á hjálp. Lög- reglumenn frá Blönduósi og Sauðár- króki komu fljótlega á staðinn og klipptu Steingrím út úr illa farinni bif- reiðinni. Hann var fluttur með sjúkra- bíl til Blönduóss og síðan með þyrlu til Reykjavíkur. oskar@dv.is Jólaball MH á NASA við Austurvöll dregur dilk á eftir sér Það hefur enginn gefið sig fram ennþá," segir Valgerður Halldórs- dóttir í skemmtanaráði Mennta- skólans í Hamrahlíð. Forsvarsmenn nemendafélags skólans leita nú logandi ljósi að skemmdarvörgum sem óðu uppi á jólaballi skólans fyrir helgi. Finnist þeir ekki situr nemenda- félagið uppi með reikning vegna skemmdanna sem unnar voru á ballinu en það var haldið á NASA við Austurvöll. Tilkynning þess efn- is var sett inn á heimasíðu félags- ins, nfmh.is, en tekin aftur út í gær. Nemendafélagið leggur mikið kapp á að leysa málið farsællega enda minnugt þeirrar klemmu sem kollegar þeirra í Menntaskólanum við Sund eru komnir í. Ofbeldis- og fíkniefnamál á böllum MS urðu til þess að skólastjórn og lögregluyfir- völd gefa ekki leyfi fyrir frekara ball- haldi þetta árið. Menntaskólinn við Hamrahlið Stjórn Nem- endafélagsins auglýsir eft- I ir skemmdarvörgum ó heimasíðu sinni.____ Jólaball Menntaskólans við Hamrahlíð gekk að mestu eins og í sögu en örfá fíkniefnamál og eitt líkamsárásarmál sem komu upp eru stjórn nemendafélagsins áhyggjuefni, auk skemmdarverk- anna sem nemendafélagið þarf að bæta fyrir finnist sökudólgarnir ekki. Að sögn Valgerðar Halldórs- dóttur í skemmtanaráðinu er stjórn I Garðar Kjartans- J son og frú Eigandi J NASA við Austurvöll | segir skemmdirnar ] óverulegar. skólans þó fráleitt á þeim bux- unum að bregðast við á sama hátt og gert var í Menntaskólanum við Sund. „Stjórn skólans er með okkur í liði að leysa þetta mál farsællega," segir hún. „Þetta verður samt til þess að harðar verður tekið á aga- brotum í framtíðinni." andri@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.