Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Sveinn Rúnar er mikill mann-
vinur og baráttumaður. Fjöl-
skyldumaður og vinur vina
sinna.
Sveinn er óstundvís og á
það til að ofhlaða sig verk-
efnum. Hann er fljóthuga
og þreytir fólk I rökræðum.
„Hann er ágætur drengur að
mörgu leyti þótt hann sé bróðir
minn. Hann er félags-
lyndur, mikill fjöl-
skyldumaðurog vin-
ur vina sinna. Hann
er stundum svolítið
óstundvís og á það til
að ofhlaða sig verk-
efnum. Hann er svo
kannski svolítið mikið til vinstri í
pólitlk."
Óttar Fetix Hauksson, framkvæmda-
stjóri og bróðir.
„Hann er einn mesti húmanisti
sem ég þekki. Mikill mannvinur
og baráttumaður. Eldhugi oi
hugsjónamaður. Hann
er svona undarlegt
samland afróttæk-
lingi og íhaldsmanni
með mjög heilbrigða
siðferðiðsvitund. Svo
erhann listrænn,
næmur, stálgreindur. Honum
hættir til að taka ofdjúpt I ár-
inni og ersvolltið fljóthuga.
Hann færist kannski fullmikið í
fang.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barna-
verndarstofu og vinur.
„Hann er ofboðslega skemmti-
legur og sækist ekki eftir þvf að
fara að normum samfélagsins.
Hann getur veriö óvenjulegur
en samt meðtekinn affjöldan-
um. Hann er mjög greindur og
sér heiminn sem eina heild og
flokkar ekki hlutina. Hann er
fordómalaus og ákaflega góð
manneskja. Hann á þa
færast ofmikið í fang.
Þessi hæfileiki hans til
að sjá mörg sjónar-
horn f einu gerir
mann stundum
þreyttan f rökræðum.
Maður hefur ekki
sama hæfileika til að setja sig
inn íþessar andstæðu skoðanir
sem maðurgetur diskúterað."
Súsanna Svavarsdóttir, rithöfundur og
vinur.
Sveinn Rúnar Hauksson læknir er fæddur
10. mal 1947. Hann er formaöur félagsins
Island-Palestína og hefur margsinnis dval-
ist I Palestlnu og Isael og boriö fréttir þaöan
heim tiljslands. Sveinn er giftur Björk VH-
helmsdóttur borgarfullrúa.
Annar bankastjóri Landsbankans, Sigurjón Árnason, segir reglur um innherjavið-
skipti gera það að verkum að flókið sé fyrir sig að versla í sínum eigin banka.
Hann hefur ekki keypt í Landsbankanum í tvö ár. Kollegar hans hér á landi, Þórð-
ur A/lár Jóhannesson og Bjarni Ármannsson, hafa undanfarið keypt hlutabréf fyrir
á þriðja þúsund milljóna króna i sínum bönkum.
Bankastjórinn
kaupir ekki bróí
Landsbankanum
„Það er einfaldlega þannig að ég hef ekki keypt bréf í mörg, mörg
ár,“ segir Sigurjón Árnason en undanfarin tvö ár hefur hann ekki
keypt eitt einasta bréf í bankanum sem hann stýrir, Landsbank-
anum. Á sama tíma hafa allir helstu bankastjórár landsins
keppst við að fjárfesta í sínum bönkum og freistað þess að sam-
tvinna sinn eigin persónulega hag við hag bankans.
viðskiptunum. „í Landsbankanum er
þetta ekki svona. Kauprétturinn nær
Þessi staðreynd er ekki síst merki-
leg í ljósi þess að síðustu tólf mánuði
hefur verðmæti Landsbankans aukist
um 125 prósent. Sigurjón hefði því
e&iast gríðarlega hefði hann fylgt í fót-
spor kollega sinna hér á landi sem
flestir eiga fulgur tjárí bönkunum sem
þeir stýra. Skemmst er að minnast 930
milljóna króna hlutabréfakaupa
Bjama Ármannssonar í íslandsbanka
og um tveggja milljarða króna hluta-
, bréfakaupa Þórðar Más Jóhannesson-
ar í fjárfestingabankanum Straumi-
Burðarás.
Á lítinn pening til að fjárfesta
Það er þó ekki þannig að þú lítir á
Landsbankann sem óvarlega fjárfest-
ingu?
„Nei, alls ekki. Ég hef bara átt af-
skaplega lítinn pening til að vera að
fjárfesta í verðbréfum," segir Siguijón
í léttum dúr. Hann bendir þó á að
hluti af hans launkjömm felist í kaup-
rétti í bankanum sem hann hafi eldd
nýtt sér enn. Kauprétturinn sé þó
annars eðlis en í öðrum bönkum þar
sem menn em tryggðir fyrir gengi
bréfanna og geta því aldrei tapað á
Þórður Már Jóhannesson Bankastjóri
Straums-Burðaróss keypti f sfnum banka fyrir
um tvo milljarða.
frekar til lengri tífna, það er að segja í
sjö ár. Kauprétturinn er hluti af mín-
um launakjörum og ég hef kosið að
láta þar við sitja."
Auðvelt að mistúlka innherja-
viðskipti
„Síðan er það einnig þannig að það
er flókið fyrir mig að kaupa í fyrirtæk-
inu sem bankastjóri. Þetta er flókið
þegar maður er svona háttsettur og
auðvelt fyrir aðra að mistúlka það sem
maður er að gera," segir Sigurjón sem
staddur var á flugvelli skammt frá
London þegar DV ræddi við harm í
gær. Hann bendir á að strangar reglur
séu í giidi hér á landi um innheijavið-
skipti. Erfitt sé að meta hvenær hann
búi yfir upplýsingum sem geti haft
áhrif á verðmæti Landsbankans og
aðrir búa ekki yfir.
Hógvær bankastjóri
Sigurjón ber sjálfúr mesta ábyrgð á
ævintýralega góðu gengi Landsbank-
ans síðustu misserin. Hann hefur
stjómað kaupum á stórfyriitækjum á
borð við Kepler í Frakklandi, Merrion
á írlandi og Teather & Greenwood í
Englandi. Viðskipti þessi em tuga
milijarða króna virði.
Sjálfur er Sigurjón hógvær þegar
kemur að velgengni hans innan bank-
ans. Býr á Skólavörðuholtinu ásamt
eiginkonu sinni Kristrúnu Þor-
steinsdóttur. Og segist eiga lítinn pen-
ing til að eyða í verðbréfaviðskipti.
andri@dv.is
Sigurjón Árnason Bankó
stjórinn segirþað flókið að
kaupa f eigin banka.
Bjarni Armannsson
Keypti fyrir tæpan millj-
arð i Islandsbanka.
Á Skólavörðuholtinu Hérbýr
Sigurjón ósamt eiginkonu sinni.
„Ég hef
bara átt
afskap-
lega lít-
inn pen-
ingtilað
vera að
fjárfesta í
verðbréf-
um.
Mistinn býður
Þrír flokkar í ísafjarðar-
bæ, Frjálslyndir og óháðir,
Samfýlkingin og Vinstri-
hreyfingin -
grænt framboð,
hafa ákveðið að
bjóða fram sam-
eiginlegan lista
til bæjarstjómar
ísafjarðarbæjar
við sveitarstjóm-
arkosningar í
maí 2006. Fram-
boðið er undir nafninu í-
listinn isafjarðarbæ að því
er fram kemur á bb.is. Próf-
kjör hins sameiginiega
framboðs verður haldið
laugardaginn 25. febrúar og
■ verður það opið öllum kjós-
endum sem ekki eru flokks-
bundnir í öðrum stjórn-
málaflokkum.
Alþingi starfar fram i maí
Því styttra, því betra
„Því styttra þing, því betra," segir
Hulda Sigrún Haraldsdóttir, formaður
Frjálshyggjufélagsins. Alþingi kom
saman í gær eftir jólafrí. Lotan sem nú
fer í hönd er með styttra móti vegna
sveitarstjómarkosninganna sem fram
fara í vor. Gert er ráð fyrir að þingi ljúki
4. maí.
„Það er vonandi að tíminn dugi
ekki til að vinna þann skaða sem áætl-
að er. Yfirlit yfir þau lagafrumvörp sem
á að afgreiða á þessu þingi gefur ekki
mikla ástæðu til bjartsýni.
Mér h'st samt vel á frum-
varpið um réttindi samkyn-
hneigðra og vona að tekið
verði tilht til óska Fríkirkj-
unnar, mn að trúfélög fái
heimild til að
gefa saman
samkynhneigð
pör, í lokaút-
gáfuþess," seg-
fr Hulda. Eins
og fram hefur. komið í fréttum hefur
biskup íslands verið gagnrýndur fyrir
að biðja alþingismenn um að bíða
með að samþykkja frumvarpið.
„Hlutafélagavæðing RUV verður
líka vonandi til þess að auðvelda sölu
þess í framtíðinni þótt það sé kannski
ekki markmiðið núna. Annars vona ég
að yfirvofandi kosningaslagur verði tif
þess að þingmenn haldi að sér hönd-
um og fari varlega í að ganga á réttindi
kjósenda sinna," segir Hulda.
Hulda Sigrún Haraldsdótt-
ir Formaður Frjálshyggjufé-
lagsins vonar að Alþingi vinni
sem minnstan skaða.
Alþingi Kom saman i
gær og starfar fram f
byrjun mal.llokmal
verða haldnar sveitar-
stjórnarkosningar.
Bylting á Vestfjörðum
Ferðamenn æstir í sjóstöng
„Markhópurinn sem við erum að
stefna á telur um fimm milljónir
manns þannig að það er eftir nógu að
sælast," segir Ólafur Sveinn Jóhannes-
son framkvæmdastjóri Fjord Fishing á
Tálknafirði. Fyrirtækið hefur selt um
700 erlendum ferðamönnum
sjóstangveiðiferðir sem gerðar eru út
fÝá Súðavflc og Táfknafirði. Nær upp-
selt er í ferðinar og aðeins eru örfá
pláss laus í aprfl og september. Um er
að ræða tilraunaverkefni sem Fjord
Fishing stendur að ástamt nokkrum
sveitarfélögum á Vestfjörðum. „Það er
hart í ári og þá þýðir ekkert annað en
að menn standi saman í atvinnuupp-
byggingunni,"segir Ólafur.
Aðspurður segir Ólafur að vel geti
komið til greina að fjölga ferðum á
næsta ári. „Þetta er tilraunaverkefni
sem stefnir í að verða bylting í at-
vinnuuppbyggingu á svæðinu. Það er
ótalmargt annað sem getur komið út
úr þessu eins og rannsóknir á sjávarút-
vegi," segir Ólafur.
Hann segir að markhópurinn sé
mest þýskumælandi milhstéttarfólk
en einstaka auðjöfur leynist inni á
milh. „Þetta er hugsað fýrir sportveiði-
menn hvaðan sem er í heiminum.
Sjóstangveiðin er trúarbrögð hjá þessu
fólki," segir Ólafur.
Ferðamennimir koma hingað til
lands í fimm manna hópum og borga
um 75 þúsund krónur á mann fyrir
flug, gistingu og vikulanga sjóstang-
veiði.
Ólafur Sveinn Búinn að landa 700 ferða-
mönnum f sjóstangveiðina fsumar.