Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Blaðsíða 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 11 r Minnast undirstöðu Fræðslu- og menningar- málanefnd Grundarfjaröar segist sammála bæjarstjóm- inni um að minnast þurfi upphafs vélbátaútgerðar í bænum. Hugsan- lega með sér- stakri dagskrá á Grundarfjarðar- hátíðílokjúlí eða á sjómanna- degi. „Nefndin tekur ekki af- stöðu til þess hvort reisa eigi minnismerki í bænum, enda er þar væntanlega um vem- lega fjármuni að ræða,“ segir menningamefndin sem ætl- ar að fá hugmyndir frá sjó- mönnum, útgerðarmönn- um, eldri borgurum og fleiri. Dansað á Barðaströnd íbúar í Reykhólahreppi stíga þessa dag- ana dans undir leiðsögn kenn- ara. „Jón Pétur úr dansskóla Jóns Péturs og Köm verður með kennsluna, eins og undan- farin ár, og heldur uppi góðu stuði," segir á reyk- holar.is. Á föstudag verður danssýning í nýja íþrótta- húsinu: „Foreldmm er boðið að koma og sjá börn- in sín taka danssporin. Einnig er möguleiki á að kenna fullorðnum nokkur spor, ef okkur tekst að ná saman í góðan hóp.“ Framleiðsla á hinu víðfræga björgunartæki Markúsarnetinu heyrir nú sögunni til hér á landi. Skiptum er lokið í þrotabúi Björgunarnetsins Markúsar ehf. en skuldir þess voru rúmar sautján milljónir. PéturTh. Pétursson yfirtók framleiðslu Mark- úsarnetsins eftir lát Markúsar B. Þorgeirssonar, skipstjóra og eiganda hugmyndar- innar, og flutti framleiðsluna til Skotlands. BjÖrgunametið Markús ehf. er gjaldþrota og er skiptum í þrota- búi þess lokið. Björgunametíð Markús er víð- frægt og vaktí mikla athygli þegar skapari þess, Markús B. Þorgeirsson skipstjóri, kynnti það fyrst. Markús lést árið 1984 og yfirtók þá Pétur Th. Pétursson hugmyndina og fluttí fram- leiðsluna til Skotlands. Björgunametið Markús ehf. var lýst gjaldþrota fyrir tæpum tveimur árum en skiptum lauk ekki fýrr en skömmufyrir jól. Skiptastjóri varHall- dór H. Backman hæstaréttarlögmað- ur: „Þetta net er um borð í fjöida skipa og síðast sá ég það sjálfur um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri í sumar. Fyrirtækið átti einfaldlega ekki fyrir skuldum og því fór sem fór,“ segir HaJIdór H. Backman en skuldir fyrir- tækisins vom rétt rúmar sautján millj- ónir króna. Dræm eftirspurn Ekki náðist í Pétur Th. Pétursson í gær en talið er að hann sé enn búsett- ur í Skotlandi. Ýmis fýrirtæki hérlend- is hafa verið með Markúsametið á lag- er og boðið tíl sölu en eftirspum ekki mikil. Eitt þeirra er ísfell en á heim- síðu fyrirtækisins er Markúsametið kynnt þannig: Frumkvöðull „Björgunametið Markús er kennt við höfund sinn og frumlcvöðul á sínu sviði: Markús B. Þorgeirsson, skipstjóra. Hann gerði öryggismál sjó- manna að hugsjónastarfi og fann m.a. upp þetta einfaJda en öfluga björgun- artæki sem átti eftir að verða bjarg- vættur margra til sjós og í höfnum. Markús lést árið 1984 en Pétur Th. Pétursson og kona hans Katrín Mark- úsdóttir halda merki hans á lofti. „Við fluttum starfsemina úr landi, komum okkur fyrir norðaustan við Glasgow og gemm út þaðan. Þama ffamleiðum við og seljum björgunar- net en einnig björgunarstiga og aðrar „maður fyrir borð“-öryggisvörur fyrir skemmti- og vinnubáta af ýmsu tagi,“ segir Pétur. „Við keyptum allt Jiráefni til framleiðslunnar í Bretlandi og sáum fljótt að við yrðum að vera nær aðalmörkuðum okkar til að ná ár- angri. Viðskiptahópur okkar er einnig mun stærri hér og er ekki bara fiski- skip, örfá flutn- ingaskip og hafn- ir eins og var heima á fslandi.“ En nú er æv- intýrinu lokið, í það minnsta hér á landi, eins og sést best á gjald- þrotínu sem fyrr greinir. Halldór H. Backman Skiptastjórinn I þrotabúi Markúsarnetsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.