Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18.JANÚAR2006 Sport DV Keflavíkur Þórarinn Kristjánsson mun á næstunni skrifa undir þriggja ára samning við sitt gamla félag, Keflavík. Þórar- inn lék síðast með Keflavík sumarið 2004 er hann skor- aði tíu mörk í átján leikjum. Eftir tímabilið reyndi hann fyrir sér víða en skrifaði und- ir samning við skoska úrvals- deildarliðið Aberdeen í janú- ar síðastliðnum. Hann lék þrjá deildarleiki með liðinu en samdi svo við Þróttara um sumarið, þar sem hann náði sér ekki á strik. FH-ingar til Everton Ólafur Jó- hannesson, þjálf- ari meistara- flokks FH, og Ingvar Jónsson, þjálfari 2. flokks félagsins, em á leið til Everton þar sem þeir munu kynna sér þjálfunar- aðferðir hjá félaginu sem leikur í ensku úrvalsdeild- inni. Þar hitta þeir fyrir að minnsta kosti einn FH-ing, Bjama Þór Viðarsson, sem leikur með varaliði félagsins. Leifur Garðarsson, fyrrver- andi aðstoðarmaður Ófafs og núverandi þjálfari Fylkis, var um tíma orðaður við þjálf- arastöðu hjá félaginu. Gustafsson og Kadir mættir Þeir Kenneth Gustafsson og Issa Kadir em báðir mættir til landsins og byrjað- ir að æfa með Keflvíkingum. Þeir spiluðu báðir með lið- inu í Landsbankdeildinni síðastliðið sumar og stóðu sig vel. Þá stendur einnig til að Branislav Milicevic komi til landsins á aflra næsm dögum og hefji æflngar með liðinu. Þá er verið að vinna í því að fá fleiri leik- menn til Keflavíkur, til að mynda Magnús Sverri Þorsteinsson sem lék með Grindavík í fyrra. 19.55 Manchester Si=rn United-Burton Albion í ensku bikarkeppninni í beinni á Sýn. 20.00 Stjam- #an-Grótta og Val- ur-Fram í fjórðungsúr- slitum SS-bikarkeppni kvenna. 21.40 Leikur úr ítalska boltanum á Sýn. S&p.. Heil umferð fór fram fýrr um kvöldið. 22.40 Handbolta- kvöld á RÚV. Tveir af gullkynslóðinni Þeir Þórhallur Dan Jóhannsson og Finnur Kolbeinsson fagna bikar- meistaratitli Fylkis árið 2001. Fabio Capello hefur lýst því yfir að hann hyggist hætta knattspyrnuþjálf- un árið 2009. Þá mun ferill hans sem knattspyrnustjóri hafa spannað tæpa tvo áratugi en á þeim tíma hefur hann þegar unnið sex deildarkeppnir og eina Evrópukeppni. Hann hefur reglulega verið orðaður sem arftaki Sir Alex Ferguson hjá Manchester United. Fabio Capello hefur ákveðið að hætta knattspymuþjálfun vorið 2009. Capello er eitt af þekktustu andlitum knattspymunnar og einn skrautlegasti þjálfarinn sem starfar í dag. Hann dreymir um að fá tækifæri til að þjálfa á Englandi. Capello hefur áður sagt að hann muni aldrei hafna tækifæri til að þjálfa á Englandi, gefist það. Enn ffemur sagði hann að það hafi verið draumur hans að fá að stýra Manchester United. „Það er draumur allra knatt- spymustjóra," sagði Capeflo. „En því miður hef ég engin tilboð fengið frá forráðamönnum Mandiester United." Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Capello er orðaður við ensku úrvals- deildina en þegar Sir Alex Ferguson tilkynnti á sínum tíma að hann ætlaði að hætta sem stjóri United árið 2002 var Capeflo sterldega orðaður sem arf- taJdhans. Ferguson er kóngurinn „United er firábær klúbbur og þeir em með þjálfara sem á sér langa sögu að baki með félaginu," sagði Capeflo. „í mínum augum nýtur Ferguson mestu hugsanlegu virðingar. En ég er mjög ánægður hjá Juventus og ég vil vinna deildina og meistaradeildina og tel ég að við eigum góðan möguleika í báðum keppnum." Capello verður sextugur á árinu en það var fyrir fimmtán árum sem hann varð þekktur knattspymusljóri. Hann vann ítalska meistaratitlinn á sfiiu fyrsta ári hjá AC MUan og vann reynd- ar samtals Qóra titla á fimm árum með liðinu. Hann var með einstaklega gott lið þar sem þeir Paolo Maldini og Franco Baresi fóm fyrir sínum mönn- um. Hápunkturinn var þó úrslitaleik- ur Evrópukeppni meistaraliða árið 1994. AC Miían vann þá stórsigur á frábæm liði Barcelona í úrslitaleikn- um, 4-0. í liði Börsunga vom menn eins og Ronald Koeman, Hristo Stoichkov og Romario en þeir urðu að játa sig gjörsigraða fyrir lærisveinum Capello. Vann spænsku deildina Þetta tímabil náði Milan hins vegar aðeins fjórða sætinu í deildinni en Capello endurheimti meistaratitilinn ári síðar áður en hann kvaddi félagið um sinn. Hann hélt til Spánar þar sem hann tók við stjóm Real Madrid í eitt ár. Honum tókst að vinna spænsku deildina með liðinu en í lok tfinabils- ins hélt hann aftur til AC Milan. Þar tókst honum ekki að endurskapa þá gósentíð sem var áður hjá félaginu og í lok ársins var hann orðinn atvinnu- laus. Hann tók ekki aftur við stjómun knattspymulið fyrr en um sumarið 1999 er hann tók við AS Roma. Á sínu öðra ári hjá félaginu vann hann deild- ina en hann yfirgaf félagið í lok tfina- bilsins 2004. Þá hélt hann til Juventus, þar sem hann er nú, og er liðið ríkj- andi Ítalíumeistari auk þess sem liðið hefur tíu stiga forystu í deildinni sem stendur. Þessi þijú lið á Ítalíu sem Capello hefur stýrt em einmitt þau lið sem hann lék með sem leikmaður á sínum tfina. Hann lék þar að auki 32 lands- leiki fyrir Ítalíu og skoraði í þeim átta mörk. Vill sýna sig á Englandi Það em fáir sem státa af jafii glæsi- legum feril í Suður-Evrópu en Capello finnst að hann þurfi einnig að sanna sig í bestu deild í heimi í dag, þeirri ensku. „Undir réttum kringumstæð- einkurst@dvJs Fabio Capello Sýnir oft skemmti lega takta á hliðarlínunni. Hapunkturinn ACMilan verður Evrópumeistari meistaraliða vonð 1994 eftir stórkostlegan 4-0 sigur á stjörnum prýddu liði Barcelona. Hápunkturinn á ferli Capellos til hpssn ^ um myndi ég aldrei hafria tæki- færi til að fá að starfa á Englandi. Enska deildin er mjög að- laðandi keppni og ég myndi gjaman vilja fá tækifæri til að samia að ég geti spjarað mig þar eins og á Italíu ogSpáni." ,Eins og staðan er i dag er ég hættur,“ segir Þórhallur Dan Jóhannsson Þórhaltur Dan leggur skóna á hi Allt útlit er fyrir að Þórhaflur Dan Jóhannsson hafi spilað sinn síðasta knattspymleik með Frömumm og að hann muni ekki spila með neinu liði næsta sumar. Þórhallur hefur undan- famar vikur átt í viðræðum við for- ráðamenn Fram um hvort hann spili með liðinu næsta sumar en nú er útlit fyrir að þær viðræður hafi ekki borið mikinn árangur. „Eins og staðan er í dag er ég hættur í boltanum," sagði Þórhallur við DV Sport í gær. Brynjar Jóhannesson er fram- kvæmdastjóri rekstrarfélags Fram og sagði við DV Sport í gær að hann teldi helmingslíkur á því að Þórhallur spili með Fram næsta sumar. Hann gat þó ekki svarað nákvæmlega til um hvort eða hvenær það kæmi í ljós. Þórhallur er uppalinn Fylkismað- ur og hefur lengst af spilað í Árbæn- um. Á hann að baki 127 leiki í efstu deild með Fylkismönnum og skoraði hann í þeim níu mörk. Fyrir síðasta keppnistímabil skipti hann yfir í Fram og gegndi hann lykilhlutverki í vöm liðsins sem féfl í 1. deildina í haust. Hann á einnig nokkra leiki að baki með KR og danska liðinu Vejle. Þór- hallur varð aldrei íslandsmesitari en hann fagnaði tvívegis sigri í bikar- keppninni með Fylkismönnum árin 2001 og 2002. Hann er hluti af „gull- kynslóð" Fylkismanna sem hafa nú allir lagt skóna á hilluná en þeir Finn- ur Kolbeinsson og Gunnar Þór Pét- ursson hættu í sumar og Kristinn Tómasson árið þar á undan. eirikurst@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.