Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2006, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18.JANÚAR2006 Sport DV Irönum ekki vik- Áriö 2006 byrjar ekki gæfulega fyrir Manchester United. Liðið hefur enn ekki unn- ið leik á árinu og tapaði um helgina fyrir erkifjendunum í Manchester City. Á æf- ingu liðsins á mánudag lenti þeim Cristiano Ronaldo og Ruud van Nistelrooy sam- an vegna rauða spjaldsins sem sá fyrrgreindi fékk í leiknum um helgina. Haukar komnir með fjögurra stiga forskot á toppi Iceland Express Kanalausar Haukastelpur héldu sigurgöng kvenna Kvennalið Hauka er komið með fjögurra stíga forskot á toppi Iceland Express deildar kvenna eftír 73-72 sigur á Grindavík í uppgjöri topplið- anna á Ásvöllum en Grindavík hefði farið á toppinn með sigri. Haukar léku án bandaríska leikmannsins síns í leiknum þar sem Megan Mahoney var ekki komin með leikheimild þeg- ar leikurinn átti upphaflega að fara fram en honum hafði verið frestað. Haukar voru komnir með örugga for- ustu í leiknum þegar stutt var til leiksloka en frábær endasprettur Grindavíkurliðsins með hina 15 ára ölmu Rut Garðarsdóttur í fararbroddi gaf liðinu færi á að vinna leikinn en síðasta skot Jericu Watson geigaði og fegnar Haukastúlkur fögnuðu sínum 13. sigurleik í röð. Grindavik skoraði 12 síðustu stíg leiksins og þar af gerði Alma Rut átta af þeim stígum auk þess að gefa 2 stoðsendingar og stela 2 boltum á lokakaflanum. Helena Sverrisdóttir áttí góðan leik, skoraði 33 stíg, tók 17 fráköst og gaf 9 stoðsendingar og þá munaði miklu um 13 stíg Hönnu Hálfdanar- dóttur sem og 12 stíg Kristrúnar Sig- uijónsdóttur og 14 fráköst Sigrúnar Ámundadóttur. Annars var það gífur- leg barátta Haukaliðsins sem gerði útslagið og kom liðinu í lykilstöðu í baráttunni um deildarmeistaratítil- inn. Jerica Watson var í sérflokki hjá Grindavík með 30 stíg, 17 fráköst og 9 varin skot og þær Jovana Lilja Stef- ánsdóttir (11 stig) og Alma Rut Garð- arsdóttír (10 stíg) skiluðu sínu. Grindavíkurliðinu tókst ekki að nýta sér nægilega vel hversu mikla áherslu Haukamir lögðu á hjálparvöm á Watson sem skoraði flest stíga sinna úr hraðaupphlaupum (10) og vít- um (8) eða 18 af þessum 30 sem hún skoraði. Grindavík er eina íslenska liðið sem hefur unnið Hauka með Helenu Sverrisdóttur innanborðs í vetur en ' Haukaliðið hefur nú unnið alla leiki sína síð- an Grindavík vann 82-70 á Ásvöllum 13. október síðastliðinn. Einni stoðsendingu frá þrennu Helena Sverrisdóttir var með 33 stig, 17 fráköst og 9 stoðsendingar i sigur- leiknum gegn Grindavik. ið úr keppni Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur gefið það út að það hafi engar áætlanir um að vfsa (rönum úr HM sem fer fram í sumar. Mikil umræða hefur verið á alþjóðavettvangi um kjarnorkuáætlun landsins og hafa stjórnmálamenn víða um heim mót- mælt áætlunum (rana. „FIFA eru fþróttasamtök og eru ekki pólitísk," sagði John Schumacher, talsmaður FIFA, í samtali við BBC-fréttastofuna í vikunni. Iranar eru f riðli með Mexfkó, Portúgal og Angóla í keppninni. Bjarni má fara frá Plymouth Bjami Guðjónsson hefúr fengið sig lausan frá Plymouth en hann staðfesti það í samtali við DV Sport í gær. Ekkert ætti því að standa I vegi fyrir því að hann semji nú við belgíska félagið Lokeren og vonaðist hann til að ganga frá þeim málum fyrir helgina. Hann fær þó ekki leikheimild með félaginu fyrr en viku eftir undirskrift og er hann því ekki gjaldgengur um helgina þegar keppni í belgísku deildinni hefst á ný eftir vetrarhlé. Gunnar Heið- aráframí Halmstad Samlcvæmt heimildum DV Sports munu vera yfir- gnæfandi líkur á því að Gunnar Heiðar Þorvalds- son verði áfram hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Halm- stad í sumar, eins og við greindum frá fyrir skömmu. Þó nokkur lið munu vera afar áhugasöm um Gunnar en setja það ekki fyrir sig að bíða þar til í sumar þegar honum verður fijálst að semja við hvaða lið sem er. Hvort hann fari í ágúst eða í lok sænska tímabilsins mun þó vera undir því komið hvort við- komandi félag er tilbúið að greiða lága upphæð þar að lútandi. Vandræði Manchester United virðast engan endi ætla að taka. Cristiano Ronaldo, sem fékk rauða spjaldið í leik Manchester United og Manchester City um helgina, mun hafa lent saman við félaga sinn, Ruud van Nistelrooy, á æfingu liðsins á mánudag. Það lá við slagsmálum er þeir hreyttu fukyrðum hvor í annan. Félagar þeirra þurftu að skilja þá að á æfingunni og knattspyrnu- stjóri liðsins, Sir Alex Ferguson, mun hafa rætt við þá báða um at- vikið. Ekki er enn ljóst hvaða áhrif þetta hefur á liðið en það þykir þó víst að ekki bætir þetta ástandið. United er nú sextán stigum á eftir Chelsea I úrvalsdeildinni, er úr leik í meistaradeildinni og leikmenn liðsins þurftu að sætta sig við jafn- tefli við utandeildarliöið Burton í ensku bikarkeppninni fyrir skömmu. Liðin mætast á nýjan leik í kvöld á Old Trafford og þurfa leikmenn að sýna og sanna að þeir geti hrist af sér slenið. Ronaldo sendur í frí? Samkvæmt heimildum ensku pressunnar stóð jafnvel til að gefa Ronaldo frí í vikunni til að jafna sig eftir atburði helgarinnar en hann missir af leiknum í kvöld þar sem hann verður í banni í næstu þrem- ur leikjum liðsins. í leiknum á laugardaginn fékk Ronaldo beint rautt spjald fyrir að gera atlögu að Andy Cole, leikmanni Manchester City, sem hann hitti reyndar ekki. En Steve Bennett dómari ákvað engu að síður að vísa honum af velli. Skömmu áður hafði Ronaldo sjálfur verið tæklaður illa af Steph- en Jordan, leikmanni City, en Bennett gerði ekkert í því. Fergu- son mótmælti hástöfum eftir leik- inn og mun enska knattspyrnu- sambandið taka til skoðunar þau ummæli sem hann hafði um Bennett. Hann verður þó ekki ákærður þar sem Bennett minntist ekki á Ferguson í skýrslu sinni. Manchester United lagði einnig fram kæru vegna rauða spjaldsins sem Ronaldo fékk en talsmaður enska knattspyrnusambandsins sagði í gær að Ronaldo muni fá hefðbundið þriggja leikja bann. Verða að vinna Liverpool Framundan er svo leikur gegn Liverpool í deildinni á sunnudag þar sem liðið verður að sigra ef það á ekld að missa 2. sætíð tfl Liverpool. í næstu viku er svo síðari leikur liðsins gegn Blackbum í undanúrslitum deildabikarkeppninnar en fyrri leilcnum lauk með 1-1 jafhtefli. Ronaldo er nú á sínu þriðja ári hjá United og hefur á þeim tíma oft verið miðdepill deilna innan félagsins. Liðsfélagar hans hafa gagnrýnt hann oft fyrir að vera eigingjam á boltann og mun honum hafa lent saman við Alan Smith vegna þessa fýrir skömmu. Á mánudeginum mun van Nistelrooy hafa látíð í ljós reiði sína vegna rauða spjaldsins sem Ronaldo fékk á laugardaginn og tók Portúgal- inn ungi ekld vel í það með fyrr- greindum afleiðingum. Þetta i ekki í fyrsta sinn í haust sem hann fær miður góða fjöl- miðlaumfjöllunn en í haust var hann sakaður um nauðgun en ákveðið var að kæra ekki í því máli. Ferguson að kveðja? United hefur enn ekki tekist að vinna leik á árinu og þarf nauð- synlega á sannfærandi sigri að halda í kvöld. Það er talið líklegt að þetta sé síðasta leiktíð United með Sir Alex Ferguson við stjóm- völinn og ef liðið ætlar að kveðja hann með titli er stærstí mögu- leikinn á því fólginn í ensku bikarkeppn- inni. eirikurst@dv.is KÆ. Ronaldo og Nistelrooy hnakkrifust á æfingu Á meðan allt lék í lyndi Ruud van Nistelrooy og Cristiano Ronaldo fagna marki Nistelrooys gegn ung- verska liðinu Debrecen i forkeppni meistaradeildarinnar í haust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.