Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Með stera og dóp Skömmu eftir miðnætti í gær hafði Lögreglan í Kefla- vík afskipti af ungum manni en hann var grunaður um fíkniefnamisferli. Ságrunur reyndist á rök- um reistur því við leit á heimili mannsins fund- ust meint fikniefhi. Það voru 22 e-töflur og eitt gramm af marijúana. Einnig fundust um 100 pillur sem lögreglan telur að séu anabólískir ster- ar. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir í fyrrakvöld vegna umferðarlagabrota. Annar virti ekki stöðvunarskyldu og hinn keyrði yfir hámarks- hraða. Nafn á túni Árásarmál, þar sem ráðist var á sýslumanninn á Selfossi, Ólaf Helga Kjartansson, í^nóvember, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sakborningurinn, Sævar Óli Helgason, mætti án verjanda og gaf ekki upp hug sinn til ákærunnar. Sævar Óli lauk nýverið afplánun á fangelsisdómi sem hann fékk fyrir að ráðast á konu og rassskella hana fyrir það eitt að hún lagði bíl sínum fyrir innkeyrslu hans. á sýslumanninn i Heraðsdomi verður óbreytt Halldór Forn Halldór Forni má ekki breyta nafni spildunnar Mundarkotstúns á Eyrar- bakka í nafnið Fornagrund. Þetta ákvað skipulags- og byggingamefnd öffuss í fyrradag eftir að hafa frestað afgreiðslu málsins á fundi 13. desember. „Hafn- að á þeirri forsendu að nafnið Mundakotstún hefur langa sögu og hefur öðlast fastan sess í hugum íbúa Árborgar," segir| skipulags- nefndin um ákvörðun sína. „Ég hef ákveðið að bíða með að segja hug minn til ákærunnar," sagði Sævar Óli Helgason en í gær var mál Ríkissaksóknara gegn honum þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sævari er gefið að sök að hafa ráðist á sýslumanninn á Selfossi, Ólaf Helga Kjart- ansson, í nóvember. Ölafur var við störf sem ákærandi í réttar- haldi við Héraðsdóm Suðurlands þegar árásin átti sé stað. Sævar Óli mætti til þingfestingar- innar í gær án veijanda. í ákæm Rík- issaksóknara segir að hann hafi veist að sýslumanninum þar sem hann var við embættisstörf, stöðvað för hans með því að þrífa í öxl hans og bmgðið síðan fyrir hann fæti svo hann hrasaði við. Þegar þetta átti sér stað var Ólafur við málflutning í héraðsdómi og skikkjuklæddur eins og venja er til. Árásin er að mati Ríkissaksóknara brot gegn valdstjóminni og í ákæru er þess krafist að Sævar Óli verði dæmdur til refsingar. I Gjöfin handa henni \ ' K S T O í ít_c lAUviAVK-.i f>6 * StMAPAIsn AN! öheppifegt og óþægi- hgtaforikS Lét ekki segjast Forsaga málsins er sú að Sævar Óli hugðist leggja fram kæm vegna árásar sem hann segir náinn ætt- ingja hafa orðið fyrir. „Ég fór niður á lögreglustöð en var bókstaflega fluttur þaðan út með valdi. Þeir vildu ekki taka við kærunni," segir Sævar. Hann ákvað því að fara og finna sýslumanninn í bænum, Ólaf Helga, og bera málið undir hann. A Sýsluskrifstofunni vom Sævari borin þau skilaboð að Ólafur Helgi væri vant við látinn. Sævar lét ekki segjast og sat sem fastast. Þreif í öxlina á sýslumannin- um Þegar Ólafur Helgi brá sér út úr réttarsalnum til að sækja vitni fyrir þinghaldið sem þar stóð yfir sá Sæv- ar sér leik á borði og hugðist stoppa sýslumanninn og ræða við hann. Ólafur afsakaði sig, sagðist upp- tekinn við réttarhöld og að Sævar yrði að hafa samband síðar. Við þessi svör sætti Sævar sig ekki og lét til skarar skríða. „Hann vildi ekki tala við mig, ég rétt þreif því í öxlina á sýslumanninum," segir Sævar. „Lappirnar á okkur flæktust síðan eitfhvað saman og við duttum," bætir hann við. Færður á brott af lögreglu Málið olli nokkru uppnámi enda hrösuðu Sævar Óli og sýslumaður- inn hálfa leið inn í réttarsal þar sem sakborningur, dómari og áheyrend- ur sátu rólegir og biðu sýslumannsins. Sævar hélt einnig heljarinnar reiði- lestur yfir sýslu- manninum sem hélt þó ró sinni í öllum hamagangn- Kallað og var komin á vettvang skömmu síðar. Sævar Óli var fluttur á lögreglustöð en sleppt þegar honum hafði runnið reiðin. Sýslumaðurinn segir atvikið óneppilegt „Þetta var afar óheppilegt og óþægilegt atvik," segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, um málið. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig. Ólafur Helgi var ekki við- staddur þingfestinguna í gær en gæti þurft að bera vitni, fari málið í aðalmeðferð. Áður misst stjórn á sér Svo virðist sem skap Sævars Óla hafi hlupið með hann í gönur daginn sem hann veittist að sýslu- manninum geð- þekka. En það yrði þó ekki í fyrsta skiptið. Sævar Óli var síðastliðið sum- ar dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyr- ir að hafa rassskellt ókunnuga konu sem lagt hafði bifreið sinni fyrir innkeyrsluna hans. „Jú, ég var að klára að afplána þann dóm," segir Sævar. Þegar hann var spurður hvort hann eigi í vandræðum með skap sitt, svaraði hann: „Nei, það held ég ekki. Afhverju?" andri@dv.is Sævar Óli Helgason Ákærður fyrir að ráðast á sýslumanninn á Selfossi. Ákærður fyrir að rassskella konu Sæyar Ó6 er ákæcðut fyru ad veitast ad konu set» lagdi fyrtr imv keyrslwa tvaua í fyftabaust, ffejan segú: teikskólakennarann bafa vegið að sér kynjfcrðislegft ög teyrft að spafka í pwgiaa á sér. Hann hafi því rassskellt hana. OiMVtk, Kimfr. v« Ybr wíiwu seorifciýrAffrW huS* # vyist aSIsiksMWBWBsm, skotlt lywiJHi ofay S vyliuhh'l bifrcíiVu; hsus »g siugw hiNw.baWwwí.sirwyiftíibft mwitþil)!). i > I í. imikcyrslu'' j ''uuJifliiÍM íu'íiii méi* Mf htii ab Wla JJUOW, aa oigui sogii huwhuflujjii, A #, bilnum, vairi biötjhyw.. hsgh S»"W «> 'Cgu- Jumuna. hh Wn. vygih #, kofhiuiiuiiiJiu, s»wi. uwa hyo£<ir^b)bgui» sih.Mahseiw1!#). mm t wnghw ihfe-hft uWú yiiáuö. JuuuuiM vift # hhnuiii; vjmi inftt, biijgJiwa, hS. Mghu. hiwi)i ag sih, ookkriffl) mmm —t f mmb,- WffilW; frrwi. # « bi> rél' hyi &- hJth.yi ■ v bw viuii, f, mmmm Mjisfh: U w>; bpp.atr ■'.! hS.# i vuai bÁ. mÁfíirm som sió<V .i . i. i; i z7*i ’rrrtntrt. ““fi #. luílu,)iúJ»J«iii)«i;i|io hcf* sjálf- » h#p mmitMW 4 Ssyiwi, löcuuiji aUuiíias«ui4ii))i, him Wíftttr----------------------- í-IJ jjítlljj h ... r,”-rr. ChSntur verúur kvw)inn upp. í; niájinu i bvriun iúni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.