Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2006, Side 14
7 4 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Sandkorn Fleiri myndir af íröskum borgurum í Abu Ghraib-fangelsinu í útjaðri Bagdad hafa verið gerðar opinberar þrátt fyrir mótmæli Bandaríkja- stjórnar. Pentagon hefur staðfest að myndirnar séu sannar en vegna þrýst- ings frá Bandaríkjastjórn hafa bandarískir íjölmiðlar ekki birt þær þrátt fyrir að hafa þær undir höndum. Ástralska sjónvarpsstöðin SBS sýndi myndirnar hins vegar í fyrradag. Óskar Hrafn Þorvaldsson • Janúartölublað Mannlífs, þar sem aðalefni blaðsins var viðtal við barna- lækninn Björn Hjálmarsson sem missti son sinn á hörmulegan hátt árið 2002 og hefur ekki enn fengið skýr svör um dánarorsök drengsins frá yfirvöldum, er uppselt. Þetta tölublað er það söluhæsta frá því að Reynir Traustason tók við ritstjórn Mannlífs og slær meðal annars sjálfri Lindu Pé ref fyrir rass... • Sjaldan fellur eplið langt frá eik- inni. Þórhaliur Þórhallsson, sonur hins eina og sanna Ladda, kom fram á uppistandskvöldi á NASA á miðviku- dagskvöldið. Gerður var góður rómur að Þórhalli yngri en pabbinn fylgist stolt- ur með í áhorfendaskaranum. Það var áreiðanlega stoltur faðir sem yfirgaf staðinn skömmu eftir að sonur hafði lokið atriði sínu við dynjandi hlátrasköll gesta... • Flestír veðja á að Silvía Nótt fari með sigur í forkeppni Eurovision en úrslitakvöldið verður á morgun. Kristján Hreinsson, Skerja- íjarðarskáldið, hefur staðið í andófi og vill meina að framlag hennar sé kolólög- legt. Ætlar hann ekki einu sinni að horfa á keppnina, hvað þá vera viðstaddur, þó hann eigi þrjá texta við þrjú laga sem þær Dísella Lárusdóttír, Birgitta Haukdal og Heiðaíldolflytja... • Kristján er hvergi nærri af baki dottinn í kærumálum sínum á hendur Páli Magnússyni útvarps- stjóra vegna „Stóra Eurovisionmálsins" þótt hljótt hafi farið að undanförnu og Útvarpsráð hafi þvegið hendur sínar af því. Og mun fregna að vænta af framhaldi þessa máls innan tíðar... • Bókaútgefendur undirbúa nú árlegan bókamarkað sinn. Þeir hafa fengið til liðs við sig hinn spræka Ásmund Helgason, bróðir Gunnars og Hallgríms til að annast kynningar- málin. Ási sló í gegn fyrir síðustu jól með útgáfu Sudoku-bóka í samstarfi við Bjart. Lentí við það í rimmu við Eddu sem hafði hliðstæða útgáfu á prjón- um. Þetta þýðir að Eddan ogÁs- mundur hafa nú slíðrað sverðin... • Þátturinn Sirkus Rvk undir stjórn Ásgeirs Kolbeinssonar hefur verið tekinn af dagskrá. Ásgeir er þó ekki IHHH af baki dottinn því samkvæmt nýjasta | tölublaði tímaritsins r* B Hér og nú hefur Ás- " geir söðlað um, , horflð úr fjölmiðla- heiminum og er byrjaður að selja fasteignir. Það er ekki spurning um að stimamýkt Ásgeirs og glaðleg framkoma á eftir að fara vel í fast- eignakaupendur í Reykjavík... Fleirl sannanlr fvrir hrnttabr Andlega vanheill fangi Með annan handlegginn umvafinn tilaö takmarka hreyfingar. Tveir naktir fangar Bundnirsaman um lengri tfma. Skilinn eftirtil aö deyja eftir misheppnaða fangauppreisn 2004. Ástralska sjónvarpsstöðin SBS sýndi í fyrradag fleiri myndir af | pyntingum bandarískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib-fangelsinu. Pentagon staðfestir að þær séu sannar. Bandarískir ijölmiðlar hafa haft þær undir höndum en ekki birt vegna þrýstings ffá stjórnvöldum. Þrátt fyrir að myndirnar séu ffá 2004, eins og þær sem áður voru birtar, hafa flestar þeirra ekki komið fyrir sjónir almennings áður. Þær virka því sem bensín á vel kyntan eld ágreinings milli Vesturlandabúa og múslima, sem hefur verið mikifl í kjölfar skopmynda Jyllands-Posten. Washington Post tekur undir með fullyrðingum SBS [Special Broadcasting Services] um að fjöldi bandarískra fjölmiðla hafi haft þessar myndir undir höndum um Íangt skeið, en ekki birt. Blaðið út- skýrir ennfremur að ástæða þess hafi að mestu verið eðli myndanna, sérstaklega hvað nekt varðar. Blaðið viðurkennir einnig að SBS hafi einnig betri möguleika en bandarískir fjölmiðlar á að snið- ganga kröfur Bandaríkjastjórnar um að halda þessum myndum frá almenningi. SBS þarf nefnilega ekki að lúta þeirra stjóm. Ógeðfelldar myndir „Þetta er sannarlega amerískur ljótleiki sem engin önnur þjóð getur keppt við,‘‘ segir yemenski fréttamaðurinn Saleh al-Humaidi. „Bandaríkjamenn ættu að biðjast afsökunar fyrír þær lygar rílds- stjórnar þeirra um að þeir séu að berjast fýrir frelsi og að þeir hafi komið til Iraks til að frelsa þjóðina undan ógnarvaldi Saddams Husseins." Sum myndbandsskeiðanna sýna fanga berja höfði sínu upp við vegg. Aðrar sýna illa farin lík án þess að ljóst sé hvað hafi orðið mönnunum að bana. Aðrar sýna fanga í niðurlægjandi kynferðisleg- um stellingum. Ein þeirra sýnir það sem virðist vera bmnasár eftir sígarettur á rasskinnum eins fanga. Talsmaður SBS neitar að tjá sig um hvernig sjónvarpsstöðin komst yfir myndimar. Fjölmiðlar fylgja Sumir bandarískir fjölmiðlar hafa ákveðið að brjóta gegn boði ríkisstjórnarinnar og birt mynd- irnar sem SBS birti í fyrradag. Þeirra á meðal er vefblaðið Salon sem tekur fram að merkilegt sé að engir CIA-liðar hafi verið ákærðir í sambandi við hrottafengnar yfir- heyrsluaðferðir, þrátt fyrir að dauði í það minnst'a eins fraka sé rakinn til þeirra. Afstaða Bandaríkjastjórnar Bandaríkjastjóm hefur miklar áhyggjur af birtingu myndanna og afar slæmri tímasetningu. „Okkur finnst birting myndanna vera innrás á einkalíf fanganna sjálfra," segir John Bellinger, tals- maður bandaríska innanríkisráðu- neytisins og bætir við að „mögu- lega geti það kynt enn frekar undir ofbeldi." Það virðist ekki vera fjarri lagi, þar sem nú þegar hafa brotíst út óeirðir vegna málsins. haraidur@dv.is Þakinn brúnu efni Liklega erþettasaur sem maðurinn var látinn velta sér uppúr Skjóta fyrst - spyrja svo „Harry - ég vissi ekki að þú værir þarna!" „Þegar allt kemur til alls er ég maðurinn sem hleyptí af og skaut á Harry," sagði Dick Cheney, varaforsetí Bandaríkjanna, í fyrra- dag. Þá hélt hann sinn fyrsta blaðamanna- fúndi vegna slysaskots- ins síðastliðinn laugar- dag. Þá skaut hann vin sinn til margra ára, lög- manninn Harry Whitt- ington, með þeim af- leiðingum að flytja þurfti Whittington með þyrlu á gjörgæslu sjúkrahúss í suður- hluta Texas. „Það er hægt að ræða um aðstæð- urnar á staðnum, en það er ekki Harry að kenna," segir Cheney. „Það er engum um að kenna nema mér." Varaforsetínn lýsir atburðarásinni þannig að hann hafi hlaupið strax til Whittington og sagt: „Harry, ég vissi ekki að þú værir þama!" „Hann sýndi engin viðbrögð," segir Cheney. „Sú mynd sem ég hef af honum fallandi til jarðar hverfur aldrei úr huga mér." Forsvarsmenn sjúkra- hússins sem Whittington liggur nú á sögðu að hagl hafði farið í hjartavöðva Whittington. Það hafi komið af stað vægu hjartaáfalli. Það sem Cheney og ríkisstjóm Bush er legið á hálsi fyrir er upplýsingagjöf til almenn- ings. Það vom ekki stjómvöld sem upplýstu um málið, heldur vitni að slysinu og eig- andi landsins sem hringdi í bæjarblaðið með fféttaskot. í heila þrjá sólarhringa hefúr Hvíta húsið varist allra ffétta af málinu og Cheney engu svarað fyrr en á blaðamannafundinum í fyrra- dag. Spuming blaðamannanna er því þessi; Ef Hvíta húsið þegir um svona mál í þetta langan tíma, hversu lengi þegja þeir um það sem virkilega skiptir máli? Nýr brúðgumi í tæka tío Kona sem hætti með kærasta sínum, aðeins sex vikum fyrir áætlað brú- kaup, fann sér einn nýj- an í tæka tíð fyrir brúð- kaupið. Hin ríflega þrí- tuga Asia Ibrahim vildi eigi að síður ekki hætta við brúðkaupið sem þegar hafði kostað hana og foreldra hennar yfir milljón krónur. „Það var hvort eð er búið að bóka allt, salinn, fötin og veitingamar, svo ég hugsaði, því ekki?" sagði Ibra- him. „Reyndar bjuggust flestir gestanna við öðmm manni þarna uppi við altarið."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.