Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.02.1982, Page 5

Símablaðið - 01.02.1982, Page 5
það vel, að ekkert vandamál værí að hækka laun starfsmanna ríkisins, enda sýnist það augljóst þegar höfð er í huga 20% yfirborgun ríkisins í formi fastrar yfirvinnu, auk unninnar yfirvinnu til félagsmanna í BHM. 2. Röðun einstaklinga í launaflokka. 2.1 Við röðun einstaklinga í launaflokka, verði sérstaklega metið til hækkunar aukning á um- fangi og ábyrgð starfa vegna ýmissa breytinga, svo sem vegna tölvuvæðingar og annarrar tækniþróunar. 2.2 Starfsmenn sem vinna einir sér skulu flokkaðir einum launafiokki hærra en ella. 3. Breytingar á skipulagi og starfsháttum. 3.1 Um allar skipulagsbreytingar og breytingar á starfsháttum í stofnuninni sem hafa áhrif á störf félagsmanna F.Í.S. skal samið við félagið hverju sinni. 4. Samningur um tölvumál. 4.1 Gera skal sérstakan samning milli F.Í.S. og Póst- og símamálastofnunar um tölvumál, sem kveði m.a. á um eftirfarandi atriði vegna tölvuvæðingar: — að F.Í.S. fái rétt til íhlutunar og meðákvörðunar á öllum stigum. — að hagnaðurinn af hægræðingu komi starfsmönnum til góða. — að tölvuvæðingin leiði ekki til minnkandi atvinnu. — að allir starfsmenn, sem eiga að vinna við tölvuskerma, eða sem tölvukerfið snertir skulu fá fræðslu um notkun skermanna, tölvukerfið og umhverfisvernd. — að samið skuli um lágniarkskröfur um aðbúnað á þeim vinnustöðum, þar sem unnið er með tölvuskerma eða annan tengdan búnað og reglur um eftirlit á sjón, heyrn og almennri heilsu þeirra, sem við það vinna. — að þegar verði teknar upp námsgreinar um tölvutækni, bæði hugbúnað og vélbúnað við Póst- og símaskólann. — að starfsmenn fái upplýsingar strax og hugmynd um tölvuvæðingu verður til og síðan samfelldar upplýsingar á öllum stigum málsins. 5. Akstur til og frá vinnu. 5.1 Fyrir hverja ferð á vinnustað í Gufunesi, á Vatnsenda og á Rjúpnahæð skulu starfsmenn skv. ákvæðum 5.4.1. í aðalkjarasamningi fá greiddar 20 mínútur með viðeigandi yfirvinnu- kaupi, en starfsmenn á Jörfa 15 mínútur. 6. Mistalningsfé. 6.1 Mistalningsfé til verkstjóra, sem annast ýmsar greiðslur fyrir Póst- og símamálastofnun, skal vera >/4% af heildarfjárhæð greiðslnanna. 7. Starfsréttindi. 7.1 Ekki er heimilt að ráða í störf símamanna, þar sem krafist er sérmenntunar frá Póst- og símaskólanum aðra en þá, sem lokið hafa prófi frá skólanum eða eru í námi, nema með samþykki F.Í.S. 7.2 Þeir starfsmenn, sem lokið hafa námi á vegum Póst- og símaskólans skulu jafnan eiga kost á fastri stöðu. 8. Menntun starfsmanna. 8.1 Starfsmenn skulu jafnan eiga kost á námskeiðum í Póst- og símaskólanum til viðbótar- og endurmenntunar í sínum greinum. SIMABLAÐIÐ 3

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.