Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.02.1982, Side 20

Símablaðið - 01.02.1982, Side 20
Einar: Voðalega rýr launabót. Og með henni fengu símvirkjar enga leiðréttingu í átt við þann mikla launamismun sem er á okkar kjörum og félaga okkar á almennum launa- markaði. Símabl: Vinnur þú eitthvað samhliða rafiðn- aðarmönnum í þínu starfi? Einar: Já - talsvert og m.a. með mönnum frá IBM. Símabl: Þú þekkir þá vel kjör á almennum vinnumarkaði. Einar: Já — það fer ekki milli mála. Símabl: Gerirðu þér þá grein fyrir því hve mikið símvirkjar þyrftu að hækka í launum í sérkjarasamningum til þess að hafa eitt- hvað í átt við það sem menn í sömu störfum hafa almennt hér á landi? Einar: Ég tel lágmark að við fáum 25% til 30% kauphækkun til þess að ná eitthvað í átt við það sem greitt er á almennum vinnu- markaði. Ögmundur Frímannsson Starf — tæknifulltrúi Laun — 16. lfl. + 1 Kr. 9.349.- Símabl: í hverju er þitt starf fólgið. Ögmundur: Ég er yfirverkstjóri yfir sérbún- aða- og heimasímadeild Hússtöðvadeildar. Símabl: Hús — stöðva — deildar. Hvað er nú það?? Ögmundur: Það er nokkurskonar tæknideild símstöðvarinnar í Reykjavík, þar sem vinna yfir 50 tæknimenn. Símabl: Heyra margir menn undir þig? Ögmundur: Um það bil 30 til 35 þar af tveir verkstjórar og fjórir flokksstjórar. Símabl: Við hvað starfa þeir aðallega? Ögmundur: Þeir setja upp og flytja skipti- borð, símstöðvar, raðsíma, síma í heima- húsum meðal annars. Þetta er vinna hjá fyr- irtækjum, stofnunum og einstaklingum á stór-Reykjavíkursvæðinu. Símabl: Hver eru laun þinna manna? Ögmundur: Línumenn skv. 7. til 8. lfl. kr. 5.948,- til 6.829.-, símsmiðir skv. 9. til 10. lfl. allt að kr. 7.292.-, flokksstjórar kr. 7.605,- og verkstjórarnir kr. 8.429,- og 8.727,- Símabl: Hvernig gengur að fá menn til starfa á þessum launum? Ögmundur: Það eru 9 lausar línumanna- eða símsmiðastöður og ein staða flokksstjóra. Símabl: Hafa margir sótt um? Ögmundur: Ég veit það ekki. Einn hefur talað við mig. Ögmundur Frímannsson Símabl: Er mikið að gera? Ögmundur: Það er óhætt að segja að það sé allt kolbrjálað. Það hrúgast upp verkbeiðnir frá fyrirtækjum, stofnunum og einstakling- um. Stór verkefni sem smá. Símabl: Hvernig ætlið þið að mæta þessum vanda? Ögmundur: Nú — menn eru beðnir að vinna yfirvinnu. En það er ekki hægt að mæta öll- um vanda með því. Það sem hefur bjargað okkur gegnum árin er að við höfum vel þjálfaða og góða starfsmenn sem þekkja vel sín störf og svæðið sem þeir starfa á. En nú 18 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.