Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.02.1982, Síða 25

Símablaðið - 01.02.1982, Síða 25
vegna. Við byrjum hérna sem ungar, hraust- ar stúlkur og gætum þá aukið tekjur okkar með því fyrirkomulagi, en slíkt gæti aldrei gengið til lengdar. Þá gæti komið upp vöðvabólga og annað sem fylgir svipuðum störfum þessum. Stundum erum við illa upp- lagðar og vinnum þá undir því sem kallast getur meðalhraði. Oftast erum við hins veg- ar vel upplagðar og þá færum við mikli fleiri færslur en normalt getur talist. Ég er hrædd um að bónuskerfi myndi skaða bæði sál og líkama. Símabl.: Af hverju eruð þið hér ennþá? Guðrún: Ja, þetta er góð spurning. Ætli skýr- ingin sé ekki sú að við byrjum hérna korn- ungar og þá er spurningin ekki um launin, heldur einfaldlega það að fá vinnu. Síðan fellur allt í bönd vanans og maður bara bíð- ur eftir að eitthvað stórkostlegt gerist í launamálum eða að gullna tækifærið komi. Ætli ég fari ekki þegar starf býðst hjá Jóni Jónssyni úti í bæ. Ingunn: Ég er sammála Guðrúnu. Eins og þú heyrir, þá höfum við litið vandlega í kring- um okkur og má raunar segja að við séum ávallt í viðbragðsstöðu. Ég bíð spennt eftir sérkjarasamningnum. En, af hverju ert þú ennþá hér. Símabl: Ja, þetta var góð spurning. Símablaðið hafði samband við Þórunni Andrésdóttur, talsímavörð, en hún á að baki 30 ára starf hjá Stofnuninni og hefir verið fulltrúi 1. deildar (deild taisímavarða í Reykjavík) í mörg ár, svo að hún er vel inni í þeirra málum. Eins og allir vita eru störf talsímavarða mjög krefj- andi, en illa launuð. — Þórunn, hvað segir þú um kjaramál og stöðu talsímavarða í dag? — Við talsímaverðir erum að sjálfsögðu mjög óánægðir með stöðuna í dag. Mér finnst ætíð, að talsímaverðir eigi inni hjá ríkinu einn Ifl. sbr. starfsmatið sem gert var fyrir rúmum * ! Þórunn Andrésdóttir Lciðrétting ^Jyndavíxl urðu á bls. 23 og 25 með viðtölum A-ndrésdóttur og Jóhönnu Elíasdóttur. áratug, en þá var skrifað undir samninga á ell- eftu stundu, þó vitað væri að samkv. starfs- mati ættum við að vera einum launaflokki hærri, en samningar gerðu ráð fyrir. Mér finnst það til háborinnar skammar, bæði fyrir ríkið og F.Í.S. að talsímaverðir skulu vera grunn- raðaðir í 7. lfl. Eftir 30 ára starf hjá ríkinu, er ég komin í 9. lfl. skv. starfsaldurshækkunum og kemst ekki hærra miðað við sama starf, og hljóta allir að sjá að af þeim launum er ekki lifandi í dag. Ef við tökum dæmi, þá hefi ég í laun núna kr. 7.095.- Fyrirframgreiðsla í skatta er kr. 1.360,- ef ég greiddi húsaleigu væri hún lágmark kr. 2.000.- ljós og hiti kr. 500,- strætisvagnagjöld kr. 200,- Lífeyrissjóð- ur kr. 284,- félagsgjöld kr. 71,- og eru þá eftir kr. 2.680.- fyrir fæði, klæðnaði og öðrum kostnaði. Það má því segja, að eftir 30 ára starf, er maður vart matvinningur. Þegar fólk er komið hátt á sextugsaldur hlýtur að vera tímabært að leggja til hliðar og búa í haginn fyrir efri árin, en slíkt er útilokað með þeim launum sem okkur talsímavörðum er skammt- að í dag. Þótt einhverjir talsímaverðir njóti óþæg- SÍMABLAÐIÐ 23 við Þórunni

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.