Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 4
Fréttir D* Hallbjörn vill sjóstangaveiði Hallbjöm Hjartarson kúreka- söngvari hefur snmg- ið upp á því við lirepps- ne&idina á Skagaströnd að komið verði upp sjóstangaveiði frá bænum. I bréfi Hallbjamar segir að góður árangur hafi orðið á Vestfjörðum af mark- aðssetningu á slíkum valkosti fyrir ferðamenn. Hreppsnefndin vísaði tillögu Hallbjamar til atvinnu- og ferðamálanefndar hreppsins. Borgin hopar fyrir Mikael Reykjavíkur- borg hefur afsal- að sér um áttatíu fermetra reit á Vesturgötu 26 til íbúðaeigenda þar. Ágreiningur var um eignarhald á skikanum. Kom það húseigend- um í opna skjöldu þegar borgin vildi taka skikann sem þeir höfðu nýtt sem bíla- stæði. Kröfðust þeir skaðabóta. Á endanum afsalaði stjórn skipu- lagssjóðs borgarinnar sér lóðar- partinum. Einn eigenda hússins þar til fyrir skemmstu er Mikael Torfason, aðalritstjóri hjá Birtingi, nýs útgáfufélags tímarita Fróða. Bifhjólamaður ákærður Ríflega þrítugur bifhjólamað- ur hefur verið ákærður fýrir að aka of hratt miðað við aðstæður og al- menn tímamörk á leið norður Frí- kirkjuveg í Reykjavflc í september í fýrra. Er mánninum gefið að sök að hafa ekið Fríkirkjuveginn á um 80 km hraða á klst þar sem leyfð- ur hámarkshraði er 50. För hans endaði í árekstri við bfl sem ekið var vestur Skálholtsstíg. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar samkvæmt umferðar- lögum. Hrottaleg árás á Boomkikker ÚlfarKári Guðmunds- son, 26 ára maður, sætir ákæru lög- reglunnar í Reykjavíkfyrir hrottalega lflc- amsárás. Úlf- ar er ákærður fyrir að hafa veistað öðr- ummanniá veitingastaðnum Boomkikker í maí í fýrra. Atvikalýsing ákærunnar er hrottaleg en Ulfari er gefið að sök að hafa ráðist á manninn, slegið höfði hans við barborð, gefið honum fjölda hnefahögga, sem og sparka. Eftir það dregið hann á hárinu eft- ir góífi staðarins og misþyrmt. Af- leiðingamar urðu þær að maður- inn sem fyrir árásinni varð brotnaði bæði á hrygg og rifi, nefbromaði og tognaði á úlnlið, ásamt því að hljóta skurði og brotnar tennur. Þess er krafist að Úlfar verði dæmdur til refsingar auk greiðslu á bótum upp á 1,2 milljónir til maimsins sem fyr- ir árásinni varð. Leikarinn Gísli Orn Garðarsson lagöi mikið á sig fyrir hlutverk sitt sem handrukkari í myndinni Börn. Hann gekk í gegnum tveggja mánaöa geðveikisprógramm hjá einka- þjálfara og breyttist ótrúlega. Breyttist í helstrípaðan og köttaðan FM-hnakka á tveimur mánuðum Leikarinn Gísli Örn Garðarsson er dökkur yfirlitum og loðinn á líkamanum. Hann ákvað hins vegar að breyta algjörlega um stíl fyrir hlutverk sitt sem handrukkari í kvikmyndinni Börn sem verður frumsýnd á morgun. Gísli Örn fór í tveggja mánaða geð- veikisprógramm með einkaþjálfara og breyttist í massaðan, tan- aðan, strípaðan FM-hnakka. „Ég tók þetta alla leið. Ég fór í ræktina þrisvar á dag og gekk í gegn- um geðveikisprógramm hjá Sigurpáli einkaþjálfara. Ég fór í brúnkumeðferð, fékk strípur og var með demtans- eymalokka í báðum eyrum. Þetta varð svona FM-hnakki mætir líkamsrækt- armanni og var hluti af því að koma sér í karakterinn,“ sagði Gísli Öm í samtali við DV í gær um hlutverk sitt í myndinni Böm. Hann leikur reynd- ar afar ólflca tvíbura í myndinni, ann- ars vegar handrukkara með FM-útlit og síðan skeggjaðan einfara. Enginn bjór með félögunum Gísli sagði það hafa verið gríðarlega erfitt í fyrstu að breyta um lífsstil til að komast í toppform. „Þetta var hrika- lega erfitt enda tók ég þetta alla leið. Ég æfði eins jáA '\ i og ég væri að FM-hnakkinn Gísli Breyttisérl strfpaðan FM- | hnakka/ handrukkara á tveimur mánuðum. ■ „Ég tók þetta alla leið. Ég fóríræktina þrisvar á dag og gekk í gegnum geðveikisprógramm hjá Sigurpáli einkaþjálfara. Ég fór í brúnkumeðferð, fékk strípur og var með demantseyrnalokka í báðum eyrum." fara að taka þátt í fitnesskeppni, borð- aði epli klukkan hálf m'u á kvöldin og fór svo út að skokka á eftir. Svo mátti ég ekkert borða né drekka eftir það. Ég þurfti að kúpla mig út úr öllu á meðan á þessu stóð. Það þýddi ekkert að skreppa á barinn með félög- unum á meðan þessu stóð eða borða eitthvað utan pró- grammsins, heldur sner- ist allt um æfingar og mat - réttan mat," sagði Gísli Öm en viðurkenndi að eft- ir nokkum tíma hafi hann orðið háðurþessu. „Ég fann að ég varð að fara í ræktina og var með samviskubit ef ég var ekki þar. Það var eins og líkam- inn öskraði á að fara að lyfta jámum. Ég breyttist lflca og ég er ekki frá því að ég hafi orðið árásargjamari. Kannski af því að þetta vom svo snögg skipti á lífs- stfl. Eg lék fýrst *- - - il skeggjaða gaurinn og þá gerði ég í því að vera með mjög vont mataræði og hreyfa mig ekki neitt. Svo hafði ég rúman mánuð til að koma mér i topp- form, fara í gegnum algera persónu- breytingu. Þannig að á einum degi gjörbreytti ég um lífsstíl og mataræði, skellti 50 cents í iPodinn og byrjaði að lyfta. Ég var alltaf að gefast upp fyrstu 2 vikumar og eðlilega fer það í skapið á manni. Ég varð pirraður og hataði Sig- urpál sem hringdi á hverju kvöldi til að kanna hvort ég væri búinn að skokka. Það passaði reyndar vel við karakter- inn í myndinni," sagði Gísli og hló. Sig- urpáll leikur lflca í myndinni svo þetta var gott fyrir samband okkar þar Iflca. Áhugaverður heimur Gísli Öm sagði að hugmyndin að myndinni hefði komið ffam nokkm áður en DV fór að fjalla af alvöm um handrukkara á borð við Annþór Kristj- án Karlsson, sem afþlánar nú þriggja ára dóm fyrir lflcamsárás. „Þessi heimur er mjög fjarri manni og því þótti mér áhugavert að kafa ofan í hann. Ég spáði mikið í það hvað það er sem fær menn til að rukka fólk með öllum tiltækum ráðum. Þeir sem ég talaði við vom á því að þetta væri ekkert persónulegt held- ur bara viðsldpti. Ég skoðaði sögur, las allt sem DV skrifaði um þessa menn og ór og menn sem starfa við þetta. Einn sagði að fyrsta djobbið væri erfiðast en síðan yrði þetta auðveldara," sagði Gísli Öm. Fjögur brotin nef Gísli öm sagði að töluvert ofbeldi væri í myndinni, enda væri það óhjá- kvæmilegt þegar ein af aðalpersón- unum er handrukkari. „Ég held ég bijóti flögur nef í myndinni. Þannig að það er vissulega eitthvað um ofbeldi í myndinni. Þetta er samt ekki ofbeld- ismynd heldur mynd um fólk. Fólk úr Reykjavík nútímans. Það var reynt að gera þetta eins raunverulegt og heið- arlegt og hægt er," sagði Gísli Öm. Hann segir það hafa verið skrýma upplifurt' að vera með - þetta FM hnakka/handrukkara útlit sem lýst er hér að ofan. „Við skutum nokkrar senur á bar og ég fékk mikla athygli frá konum. Allt í einu fann ég fyrir því aðþað væri ver- ið að reyna við mig. Erfitt að útskýra, en eymalokkar og aflitað hár. Greinilega eitt- hvað við það!" oskar@dv.is Skeggjaður Gísli Lék einnig skeggjaðan einfara i myndinni. Minibusinn er málið Svarthöfði hefur verið einn traust- astí fylgismaður strætós undanfarna áratugi. Þessir gulu vagnar hafa ver- ið traustir og trúir fylgisveinar Svart- höfða frá því að hann var smápolli og verið hans helsta hjálparhella við að komast á milli a og b. f gegnum tíðina hefur Svarthöfði séð þverskurð af íslensku samfé- lagi troðfylla vagnana á öllum tím- um dags en það er liðin tíð. Á tíð- um strætisvagnaferðum Svarthöfða undanfarið hefur hann tekið eftír því að það em þrenns konar þjóðfélags- hópar sem nota strætó reglulega ef undan eru skildir menntaskólanem- ar sem nota vagnana á morgnana yfir vetrartímann. í fyrsta lagi eru það einstaka sérvitringar eins og Svart- höfði, í öðru lagi er það fólk af asísk- um uppruna sem er alið upp við al- menningssamgöngur í heimalandi sínu og í þriðja lagi öryrkjar sem hafa Svarthöfði hreinlega margir hverjir ekki efni á því að reka og eiga bfl. Þessir þrír hópar eru ekki stórir og því mega þessi gulu ferlíki líða um götur borg- arinnar hálftómir nær allan daginn. í ljósi bágrar fjárhagsstöðu Strætós er Svarthöfði hins vegar kominn með lausn á vandamálinu. Svarthöfði leggur til að öllum risastóru strætísvögnunum verði lagt nema á álagstímum þegar skóla- fólk þarf að nota vagnana og í stað- inn verði notast við minibusa sem eru í dag notaðir á einhverjum leið- um. Með því myndi sparast heill hell- ingur í rekstrarkostnað auk þess sem sætanýting yrði væntanlega mikið, mikið betri. Svarthöfði hefur reyndar ekki mikla trú á því að forsvarsmenn Strætós muni grípa til einhverra ráða sem duga til að lækka rekstrarkostn- að. Þeirra helsta tromp er að leggja niður leiðir og láta vagna standa á bflastæði í staðinn. Svarthöfði ætti sennilega að taka við rekstrinum af Ásgeiri Eiríks. Þá væri boðið upp á ódýrari ferðir með litlum rútum því minibus er málið. Svarthöjði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.