Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006
Fréttir DV
• Alþingismaðurinn Bjarni Bene-
diktsson, sem er formaður allsherjar-
nefndar Alþingis og einnig stjómar-
formaður Olíufélagsins,
er maður alþýðunn-
ar. Þannig sásthann
dæla sjálfur bensíni á
BMW-glæsikerm sína
á bensínstöð Esso uppi
á Höfða og greiða fyrir
það 7.500 krónur. í nútímaviðskiptum,
þar sem allt snýst um gróða, fær eng-
inn neitt frftt - ekki einu sinni stjóm-
arformaðurinn...
• Fjölskylduhátíðin Ljósanótt var
haldin í Reykjanesbæ um síðustu
helgi og fór afskaplega vel fram eins
ogvenjulega. Á laugardeginum var
fjölmenn skrúðganga
þar sem fólk, fornbíl-
ar og mótorhjólamenn
gengu og óku fyiktu liði
í gegnum bæinn. Vél-
hjólamenn úr hinum
alræmda klúbbi Fáfhi ráku lestina,
tattóveraðir og fulskeggjaðir en vakti
kannski mesta athygli að fyrir þeim
fór enginn annar en ofbeldismaður-
inn Jón Trausti Lúthersson. Fantur
og fúlmenni á fjölskylduskemmtun.
Það passar einhvem veginn ekki...
• Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri og
faðir Búbbanna, er með þrautseigari
mönnum. Hann hefur verið að þróa
þessa hugmynd að brúðuþáttiun og
bræða með sér i yfir tíu
ár en það er ekki fyrr
en nú sem hugmynd-
in lifhar við á skjánum.
Bragi Þór hefur ekið
um á fábrotnum Toyota
CoroUa öll þessi ár sem
Búbbamir hafa verið í fæðingu en er
nú kominn á glæsilegan Dodge Dur-
ango-jeppa. Þetta gerðist strax eftir
að Búbbarnir fóru í framleiðslu enda
varla hægt fyrir leikstjóra og hug-
myndasmið þessara frábæm þátta að
aka urn á öðm en almennilegum bfl...
* Blaðið hefur lengi haft þann sið að
birta heilu dálkana af eigin skoðunum
og vangavelftim eins af blaðamönn-
unum þess. Hér er að
sjálfsögðu átt við Andrés
Magnússon. Flestir sem
renna yfir þessa pistla
taka þeim með talsverð-
um fyrirvara. Enda er
iðulega um að ræða einhvers kon-
ar málsvöm fyrir kunningja blaða-
mannsins eða árásir á andstæðinga
þessara sömu kunningja...
* Sumir verða fyrir fleiri skotum hjá
Andrési en aðrir. Fyrstan má nefiia
Ágúst Ólaf Ágústsson, varaformann
Samfylkingaritmar, sem reglulega
verður fyrir dylgjum
blaðamannsins. Þing-
flokksformaður Sam-
fylkingarinnar Mar-
grét Frímannsdóttir fær
sömuleiðis sinn skammt
af skítabombum. Það
skyldi ekki vera að ástæðan fyrir þess-
um pillum væri kunningsskapur
blaðamannsins við Lúðvík Bergvlns-
son, þingmann Samfylkingarinnar,
sem hefur tekist á við þau Ágúst og
Margrétí og tapað iila í tvígang...?
# En Andrés Magnússon á fieiri vini
en Lúðvík og er Eyþór Arnalds þeirra
á mcðal, Andrés fiefur ekki dregið af
sér í málsvöm fyrir Eyþór
vin sirm. Vinátta þeirra
er ekki leyndarmál og gaf
Andrés til dæmis um-
sögn um vin sinn í DV
í kjölfar frægs ölvunar-
aksturs Eyþórs. Það vakti atliygli að í
fréttaskrifum sínum um málið í Blað-
inu tók Andrés fram að Eyþór hefði
ekki einn einasta punkt í ökuskírtein-
inu. Þetta gat blaðamaðurinn fullyrt í
fféttinni þrátt fyrir að hann tæki skýrt
fram að ekki hefði náðst í Eyþór...
„Það er náttúrulega fáránlegt að
það sé bara opið fyrir hvern sem er.
Þetta er það sem er kallað þjóðar-
dýrmæti," segir Tryggvi P. Friðriks-
son, framkvæmdastjóri Gallerfs
Foldar um altaristöflu sem hang-
ir uppi í ólæstri Bakkagerðiskirkju í
Borgarfirði eystra.
Altaristaflan er eftir Jóhann-
es Kjarval og var máluð árið 1914.
Taflan olli nokkrum deilum á sín-
um tíma fyrir þær sakir að myndir
af áheyrendum Jesús Krists undir
fjallræðunni þóttu vera nokkuð lík-
ar mönnum sem bjuggu á Borgar-
firði á þeim tíma sem myndin var
máluð. Sagt er altaristaflan hafi
ekld fengist vígð þar sem Kristur er
látinn flytja fjallræðuna í Álfaborg-
inni í Borgarfirði eystra með Dyr-
fjöll að bakgrunni.
I Bakkagerðiskirkju eru guðs-
þjónustur aðeins einu sinni í mán-
uði að jafnaði en kirkjan dregur að
sér marga ferðamenn og er höfð
ólæst til að auðvelda aðgengi. Þyk-
ir mörgum það skjóta skökku við
því þar innandyra er altaristaflan
sögufræga sem í raun er ómetan-
leg, hvort sem er í listsögulegu sam-
hengi eða á fjárhagslegan mæli-
kvarða. Eins og staðan er í dag getur
hver sem er gengið inn í kirkjuna
og númið altaristöfluna á brott eða
unnið skemmdir á verkinu.
spurning hver vildi kaupa þetta
verk og ég held reyndar að það væri
útilokað fyrir þjófa að koma þessu f
verð. En sumt lið er bara svo rugl-
að að maður veit aldrei hvað gerist,
myndin gæti jafnvel verið skemmd,"
segir Tryggvi.
Fyrsta opinbera verkið
„Þetta verk er mjög merkilegt
verk fyrir þær sakfr að Jóhannes
var nýbyrjaður í skólanum, þetta er
skólaverk. Þetta er fyrsta opinbera
verk Kjarvals," segir Kristín Guðna-
dóttir, listfræðingur og sérfræðing-
ur í Kjarval.
Kristín segir að altaristaflan hafi
verið fyrsta verkið sem var pantað
hjá Kjarval sem sjálfur fluttist sem
barn í Borgarljörð eystra og dvaldi
þar fram á unglingsár.
„Þetta var þannig að konurnar í
sókninni pöntuð Kjarval til að koma
og mála altaristöfluna. Hann gisti
þarna í skólahúsinu og konum-
ar sáu honum fyrir mat og þvoðu
þvottinn hans," útskýrir Kristín,
sem tekur undir orð Tryggva um að
verkið sé ómetanlegt og að betur
þurfi að passa upp á það: „f öllu falli
þá ætti einhver að vinna í kirkjunni
til að passa upp á verkið. Það geta
alveg komið upp óhöpp."
Treysta á nágrannavörslu
„Hjá okkur þá bera rnenn meiri
virðingu fyrir kirkjum en svo að þeir
fari að skemma þær," segir Margrét
I. Benediktsdóttir, formaður sókn-
arnefndar í Bakkagerðissókn.
„Það eru hús nálægt þannig
að við erum með góða nágranna-
gæslu," segir Margrét og bætir við
að við sérstakar aðstæður sé reynd-
ar gripið til varúðarráðstafana, til
dæmis um verslunarmannahelgar
þegar mikill mannfjöldi sé á staðn-
um:
„Þegar mikið gengur á þá er
kirkjan höfð læst."
myrdal@dv.is
gar@dv.is
Óbætanlegt tjón
„Taflan á heima í kirkjunni en
það væri óbætanlegt
tjón ef verkinu
væri stolið eða
það skemmt.
Það er mjög erf-
l| IgPf itt að segja ná-
jw ' kvæma tölu um
. — i i verðmæti þess en
þetta verk er
gj§Kfa<w milljóna
HapUtw virði.
Það er
Bakkagerðis-
kirkja
Þessi fallega og
óiæsta sveitakirkja
geymir einn af
helstu dýrgripum
^ islenskrar
Imálaralistar.
DV-Mynd: LH.
Ómetanleg altaristafla eftir Jóhannes Kjarval er í ólæstri
kirkju á Borgarfirði eystra. ..Fáránlegt." segir Tryggvi P. Frið-
riksson hjá Gallerí Fold. Treystum á nágrannavörslu
segir Margrét I. Benediktsdóttir formaður sóknarnefndar.
Mikael Torfason, aðalritstjóri Birtings, eignaðist sitt þriðja barn á dögunum
Finnst ég vera brjálæðislega ungur
Mikael Torfason aðalritstjóri út-
gáfufélagsins Birtings og kona hans
María Una Ólafsdóttir eignuðust
sitt þriðja barn síðastliðinn þriðju-
dag. Það var 14 marka strákur sem
fékk nafnið Jóel Torfi. Þau eiga fyr-
ir Gabríel Darra, 11 ára, og Kristínu
Unu, 9 ára.
„Fæðingin gekk mjög vel og það
sem kemur mér mest á óvart er að
þrátt fyrir að mér finnist ég vera
brjálæðislega ungur þá finnst mér
eins og að eldri börnin okkar hafi
fæðst á öðru árþúsundi," segir Mika-
el. „Þá fóru pabbarnir bara heim eft-
ir fæðinguna og komu síðan í sér-
staka pabbatíma. Núna var ég með
þeim á spítalanum yfir nóttina og fór
svó með þeim heim daginn eftir sem
mér fannst mjög skemmtilegt," seg-
ir Mikael.
Mikael tók nýlega við aðalrit-
stjórastarfi Birtings sem gefur meðal
annars út tímaritin Mannlíf, Gest-
gjafann og Séð og Heyrt. „Það er
mjög góð stemning í fyrirtækinu og
mikill hugur í fólki enda erum við að
gefa út megnið af vinsælustu tíma-
ritum landsins og spýtum í lófana
og einbeitum okkur að því. Blaðið og
Fréttablaðið berjast um að sinna öll-
um lesendum sínum eitthvað smá-
vegis á meðan við gefum út sértæk
blöð eins og til dæmis Gestgjafann
sem er mest lesna mánaðarrit lands-
ins," segir Mikael. Hann segir að út-
gáfufélagið Birtingur gefi út gæða-
vöru fyrir sértæka.
Mikael og fjölskylda hans eru ný-
flutt af Vesturgötunni í Grafarvog-
inn. „Það er mikið fjölskylduvænna
að búa í Grafarvogi en í miðbæn-
um, Það er búið að skemma miðbæ-
inn með stefnu þessara vitleysinga
sem stjórnuðu borginni í 12 ár. Þeir
byggðu hús í garðinum hjá mér og
Hamingjusömfjölskylda
\_ Nýfæddur sonur þeirra hjóna
heitir JóelTorfi.
kölluðu það þéttingu byggðar," seg-
ir Mikael.
Það er mikið búið að gerast í
lífi Mikaels undanfarna mánuði.
Nýtt barn, annað heimili og nýtt
starf. „Öll ár eru svona hjá mér og
við María erum alltaf að gera eitt-
hvað nýtt. Við höfum búið á Hellu,
í Portúgal og Danmörku. Við vilj-
um að lífið sé skemmtilegt og þor-
um að taka áhættur því maður lifir
bara einu sinni," segir Mikael og er
auðsýnilega alsæll með lífið og til-
veruna.