Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 Fréttir DV Hraðaksturá Flókagötu íbúar á Flókagötu hafa sent borgaryfirvöldum kvartanir vegna aukins umferðarhraða um þami hluta Flókagötu sem liggur milli Lönguhlíðar og Rauðarárstígs, það er að segja meðfram Mikla- túni. Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í umhverfis- ráði bogarinnar lögðu af þessu til- efni til að skoðaðar yrðu leiðir til að minnka umferðarhraða á þessu svæði. Afgreiðslu tillögunnar var frestað á síðasta fundi umhverfis- ráðsins. Nýr bíósalur í Laugarási Bæta á nýjum sal við Laugar- ásbíó. Til þess að koma fyrir nýrri 540 fermetra viðbyggingu und- ir salinn hafa eigendur bíósins óskað eftir heimild skipulagsyf- irvalda til að fá að rífa núverandi snyrtingar austan við bíóið. Klæða á nýbygginguna með steinflísum og álplötum. Byggingarfulltrúi frestaði afgreiðslu málsins þegar það var tekið fyrir á þriðjudag. Námuvinnslaí sumarparadís Félag sumarbústaðaeigenda í nýju sumarhúsahverfi í Útey í Blá- skógabyggð vill að sveitarstjómin láti loka efnisnámu nærri hverfinu. Byggðaráð Bláskógabyggðar hafii- aði þessum óskum en samþykkti að koma kvörtunum um ástand og ff ágang námunnar til eigendanna. Náman er í landi Austureyjar. Þá var hafnað ósk sumarhúsaeigend- anna um fjárstyrk til að viðhalda vegi. Ónæðissamt tjaldstæði Þjónustu- og fasteignanefhd Fljótsdalshéraðs tekur undir ábendingu sem sveitarfélaginu barst frá Oddi Eiríkssyni vegna hávaða sem stafar ff á umferð við tjaldstæðið á Egilsstöðum. „Er það brýnt að íbúar sem og aðrir sýni gestum tjaldstæðisins fyllstu tillitssemi. Unnið er að því um þessar mundir að finna tjaldstæð- inu nýjan stað," segir nefndin um þetta mál. Ákæra á hendur lögmanninum Jón Gunnari Zoéga var þingfest í Héraösdómi Reykja- vikur í vikunni. Lögreglustjórinn í Reykjavík ákærir hann fyrir fjársvik og brot gegn lögmannalögum. Jón Gunnar segir málið misskilning. Virtur lögmaður segir fjársvika- ákæru á misskilningi byggða í Héraðsdómi Reykjavíkur var í vikunni þingfest ákæra á hendur hæstaréttarlögmanninum Jóni Gunnari Zoéga. Varðar ákæra lög- reglustjórans í Reykjavík bæði fjárdrátt og brot gegn lögmanna- lögum. Jón Gunnar segir málið á misskiiningi byggt og að hann haíi ekki búist við ákæru. Jón Gunnar mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í vikunni og tjáði sig ekki um ákæruna sem þingfest var. Hann segist vona að málinu verði vísað frá sökum þess að það sé á misskilningi byggt. Kröfurnar afturkallaðar Fjárdrátturinn og brotin gegn lögmannalögum varða tímabilið frá mars 1996 til janúar 2003 þegar Jón Gunnar var stjórnarmaður og fram- kvæmdastjóri Innheimtuþjónust- unnar ehf. Honum er gefið að sök að hafa „...eigi haldið aðgreindu frá eigin fé og dregið að sér fé, er hann hélt eftir við innheimtu á fjárkröfum og stóð ekki lögmæt skil á, og not- að það í eigin þágu og fyrirtækisins, samtals að fjárhæð 7.785.735 kr", eins og segir í ákæru. Hin meintu brot eru alls 17 tals- ins og spanna sem fýrr segir þetta tæplega sjö ára tímabil. Heildar- upphæð meints fjárdráttar er sem fyrr segir ríflega sjö og hálf milljón króna, í hvert skipti allt frá rúmum 30 þúsund krónum og upp í millj- ón. Engar bótakxöfur eru lagðar fram í málinu og segir Jón Gunn- ar það vera sökum þess að engin sé skuldin. „Allir þeir aðilar sem tengj- „Allir þeir aðilar sem tengjast þessu máli hafa afturkallað kröf- ur sínar og það er engin skuld. Þetta mál er bara vitleysa." ast þessu máli hafa afturkallað kröf- ur sínar og það er engin skuld. Þetta mál er bara vitleysa.“ „Einn kærir - allir af stað" „Ég er ákærður persónulega vegna vinnu minnar fýrir hlutafé- lag," segir Jón Gunnar og vísar til þess að hann hafi ekki innheimt sem sjálfstætt starfandi lögmaður heldur sem starfsmaður Innheimtu- þjónustunnar ehf. „Það er fýrirtæk- ið sem tekur að sér að innheimta og er það gert eftir ákveðnu kerfi og hefur verið svo í 14 ár. Ágreining- ur varð milli eins aðila í viðskiptum við fyrirtækið um uppgjör. Sá kærði og í kjölfarið fóru allir af stað," seg- ir Jón Gunnar og bendir á að hann hafi starfað við innheimtustörf síð- an árið 1974. Héraðsdómur Reykjavikur MálJóns Gunnars varþingfest á miövikudag. Vel liðinn af kollegum Jóni Gunnari er lýst sem góð- um og traustum manni af kollegum hans í lögmannastétt. Iiann hefur starfað í fjölda ára sem lögmaður og hlaut árið 1985 málflutningsréttindi í Hæstarétti. Hann hefur unnið ötullega í þágu íþróttahreyfinga hér á landi og hlotið fjölda heiðursmerkja og eru þar á meðal gullmerki Knattspyrnu- félagsins Vals, ÍSÍ, knattspyrnu- ráðs Reykjavíkur og KSÍ fýrir störf í þágu hreyfinganna. Að ógleymdu heiðursmerki Heimdalls, en þar var hann varaformaður um tíma. Þá hefur hann starfað sem ræðis- maður fslands í Úkraínu og verið lofaður sem slíkur. Málið var sem fyrr segir þing fest í vikunni og verður fram haldið á næstunni. Jónas Jó- hannsson héraðsdómari mun kveða upp úr um hvort Jón sé sýkn eða sekur í máli þessu. gudmundur@dv.is Jón Gunnar Zoega „Ég geri mérgrein fyrirþvi að lögreglunni berað rannsaka kærur en hélt jafnframtað máliðyrði látið niður faiia: Með töskuna sem skjól Jón Gunnarmætti fyrir dómara í héraðsdómi I vikunni. Hann tjáði sig ekki um ákærurnar við dómara og segir I samtali við DVað málið sé á misskiiningi byggt. DV-mynd Stefán Taldi að málið yrði fellt niður „Misskilningur er kurteislega orðað og það verður gerð frávísun- arkrafa í þessu," segir Jón Gunn- ar. „Lögmönnum ber að halda eig- in fé aðskildu frá fé viðskiptavina sinna en innheimtufélagi ekki. Það er mögulega refsivert að lögmaður taki á móti fé án þess að halda því aðskildu frá eigin fé en ég hef aldrei tekið á móti fé sjálfur eða skilað því af mér persónulega í þessu." Jón Gunnar segist ekki hafa bú- ist við því í upphafi að hann yrði ákærður. „Mér datt ekki annað í hug en að þetta yrði fellt niður eft- ir rannsókn. Ég geri mér grein fýrir því að lögreglunni ber að rannsaka kærur en hélt jafnframt að málið yrði látið niður falla," segir Jón og vísar jafnframt í að rannsókn máls- ins hafi lokið fyrir hátt í öðru ári. Erlendir borgarar með ökuskírteini frá sínu landi þuifa sumir að taka próf upp á nýtt en aðrir ekki Útlendingum á fslandi mismunað Útlendingum sem setjast að á ís- landi er mismunað hvað varðar öku- réttindi og ekki er sama frá hvaða landi fólk kemur. Fólk frá Austur- löndum, að Japan undanskildu, þarf að taka bílpróf upp á nýtt þrátt fyrir að vera með alþjóðlegt ökuskírteini frá sínu landi. Úmferðarstofa segir að listinn yfir löndin sem ekki þurfa að taka próf upp á nýtt sé kominn frá Danmörku og sum lönd eru ekki á listanum vegna þess að prófkröfur þar eru ekki ásættanlegar. Útlendingar geta keyrt á fslandi í sex til tólf mánuði áður en þeir þurfa að skipta sínu skírteini yfir í ís- íenskt skírteini. Að þeim U'ma lokn- um þurfa einstaklingar frá ákveðn- um löndum að taka bæði verklegt og bóklegt próf til að fá ökuréttindi sín aftur. Margir útlendingar eiga erfitt með að taka bóklega prófið því það er ekki á þeirra tungumáli og orða- lag spurninga er oft á tíðum snúið og villandi og gerir túlkum erfitt með að þýða spurningarnar. Margir falla þess vegna mörgum sinnum á bók- lega prófinu og þurfa að bera allan kostnað vegna þess sjálfir. „Konan mín er frá Filippseyjum og þegar hún féll í þriðja sinn á bók- lega prófinu bað ég um að fá að sjá úrlausn hennar og var neitað um það," segir Maron Bergmann sem er giftur Emily Catin frá Filippseyjum. „Þegar hún réð túlk með sér í fjórðu tilraun spólaði hún í gegnum próf- ið. Prófin eru sett upp til að villa um fýrir fólki og spurningarnar eru sér- hannaðar tíl að fella fólk. Þeir sem taka ekki próf á sínu tungumáli eiga sérstaklega erfitt með að ná próf- inu," segir Maron. Hann gagnrýnir að bóklegt og verklegt bílpróf séu í höndum einkaaðila en ekki ríkisins. „Einkaaðilar hafa ekki sömu skyld- ur og opinberir aðilar og ættu þess vegna ekki að hafa yfirumsjón með þessum málum," segir Maron. „Mér finnst engin skynsemi í Maron Bergmann og kona hans Emily Catin Emily féll þrisvar á bóklega prófmu þar tiihúnfékksértúik. þessum lögum," segir Grímur Bjarn- dal ökukennari. „Það ætti að vera nóg að láta þetta fólk fara í hæfnis- próf hjá löggiltum ökukennara og annað hvort eiga allir útlending- ar sem sækja um að skipta skírteini sínu út fyrir íslenskt að fara í próf eða enginn," segir Grímur. Hann segir að það séu ekki samræmd lög um þetta hjá öllum sveitarfélögum landsins og hjá sumum sýslumannsembætt- Grfmur Bjarndal ökukennari „Það er engin skynsemi I þessum lögum.“ um úti á landi þarf fólk ekki að taka ökupróf uppá nýtt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.