Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 Fréttir DV Friðrik Sandkorn • Dúettiim Sviðin jörð, þeir Magn- ús Einarsson og FreyrEyjólfsson, lékufyrirgesti í fertugsafmæli í Viðey um síð- ustu helgi. Tóku þeir meðal annars nokkur lög af nýrri plötu sem þeir hafa verið að vinna að undanfar- ið. Um var að ræða gömul þjóðlög með nýjum textum, meinfyndn- um og skemmtilegum. Þess ber að geta að það er sjálfur spaugfuglinn Davíð Þór Jónsson sem samið hefur textana fyrir Sviðna jörð á þessari plötu. Hins vegar mun ekld ákveðið hvenær gripurinn kemur fyrir eyru almennings... ) ÍHii r : iski (• Og talandi um þetta fertugsafinæli í Viðey, Íþá var það Sigurbj örg Hilmarsdóttir sambýl- iskona Karls Hjalte- sted fyrrverandi verts á Grand rokk sem hélt upp á dag- inn. Þótti afinælið frábærlega vel- heppnað enda veðurblíðan á laug- ardeginum með afbrigðum góð. Tvennt vakti þá mesta athygli gesta. Annars vegar var það að Karl dró fram hring og bað Sibbu sína um að trúlofast sér. Þótti tími til kominn enda ala þau nú upp fimm böm saman. Hins vegar var það þegar yngsti sonur þeirra, Kristján 5 ára, tók Baggalútslagið „Allt fyrir mig" við mikla hrifrúngu viðstaddra... íslendingar riðu ekki feitum hesti, frekar en fyrri dag- inn, frá leiknum gegn Dönumívikunni. Til sárabóta er hér ein skemmtisaga af Einari Benedikts- syni athafiiaskáldi á síðustu öld er hann var á ferð um ráðhústorgið í Köben. Lenti hann í rökræðum við Dana um hvor þjóð- in væri betri. Endaði þetta með því að Einar veðjaði við Danarrn um að hann gæti ekki borið sig yfir torg- ið. Um leið og Daninn var lagður af stað með Einar á bakinu kallaði Einar til viðstaddra: „Hér ríður ís- lenskur aðalsmaður á dönskum asna." Reiddist Daninn svo að hann kastaði Einari af baki. En veðmálið var unnið... Kvennaljóm- innMattDillonvar staddur hérumsíð- ustuhelgiviðopn- mi kvikmyndahátíð- arinnar „Icelandic Film Festival" ásamt ýmsu öðru þekktu fólki úr kvik- myndaheiminum. Matt skellti sér út á lífið eins og gengur og gerist og mátti kvenþjóðin vart halda vatni af hrifingu ef hann gaut augunum til þeirra. Það vakti hins vegar athygli að ein stúlka hafnaði rómantísku tilboði frá kvennaljómanum. Mun það hafa verið prestsdóttirin Sigríð- ur Hjálmarsdóttir... • Miklarfram- nrT*«rnr.T»ti»i kvæmdir hafa verið í gangi hér á athafna- svæði365miðlaí Skaftaltlíðinni. Búið er að fjarlægja öll trénálitlatorg- inumilfihúsanna tveggja en trén voru til skamms tíma aðalbakgrunnur í viðtölum fréttamanna á NFS. I stað- inn erbúið að helluleggja svæðið allt. Upphaflega var ætlunin að kalla svæðið Smáratorg í höfúðið á Gunn- ari Smára Egilssyni fyrrverandi for- stjóra Dagsbrúnar en hann er nú farinn úr embætti og af landi brott. í ljósi útiitsins á torginu er nú helst rætt um að kalla það Berangur... Danielson Alves Sousa varð fyrir hrottalegri líkamsárás síðastliðið laugardagskvöld þar sem tugir ungmenna réðust að honum eingöngu fyrir það að vera svartur. Skemmt- un hundruða ungmenna í Skeifunni um síðustu helgi virðist ætla að draga dilk á eftir sér. Lögreglan í Reykjavík segir þessa atburði vera mestu fjöldaóeirðir sem hún hefur lent í lengi. Svertingi lúbarinn í Skeifunni Danielson var að skemmta sér í einkasamkvæmi menntaskóla- nema í sal Húnvetningafélagsins í Skeifunni 11 þegar fjöldi ung- menna réðst á hann og kallaði hann öllum illum nöfnum. Hann var skorinn með brotnu gleri, kýldur og sparkað í hann liggjandi í stigagangi byggingarinnar án þess að nokkur maður kæmi honum til hjálpar. íslensk ungmenni virðast ekki vilja fólk af öðrum kyn- þætti á íslandi og sögðu honum að hypja sig til síns heimalands. Danielson kom til íslands frá Grænhöfðaeyjum ásamt móður sinni og tveimur bræðrum fyrir 9 árum síðan. Hann gekk í Seljaskóla í tvö ár og allan þann tfrna varð hann ásamt bræðrum sínum fyrir áreiti og lagður í einelti eingöngu vegna litar- háttar síns. Síðastíiðið laugardags- kvöld réðst hópur ungmenna á hann og kallaði að honum að hann væri „svartur skítur" og ætti að koma sér til síns heimalands. „Drullaðu þér heim negri" „Ég fór á klósettið og þar voru nokkrir strákar að kalla mig helvítís negra og einn þeirra kýldi mig í and- litið," segir Danielson. „Ég er hættur að láta þetta hafa eins mikil áhrif á mig og áður þannig að ég varði mig bara og kýldi ekki á móti enda er maður meiri maður ef maður gerir það ekki. Þegar ég fór út af klósettinu þá héldu strákarnir áfram að kalla á eftir mér að ég væri helvítis negri sem ætti að hypja mig út og þá bætt- ust margir í hópinn og spörkuðu í mig og lömdu mig í gólfið," segir Danielson. Hann segir að dyravörð- urinn hafi komið til að athuga hvað væri um að vera en hjálpaði hon- um ekki og ungmennin héldu áfram að sparka í hann og eitt þeirra skar hann illa á hendi með brotinni gler- flösku. Grýttur með steinum og flöskum „Ég varð hræddur þegar ég var skorinn með flöskunni og tókst að koma mér út af staðnum og faldi mig þar til hliðar við innganginn á með- an ég beið eftir frænda mínum sem var á staðnum. Þegar hann kom þá flýttum við okkur í burtu en þá kom annar hópur á eftir okkur og kastaði í okkur grjóti og glerflöskum. Frændi minn hringdi á lögregluna og ég stoppaði bíl á götunni til að verja mig. Ég veit ekki hvað hefði gerst ef löggan hefði ekki komið fljótíega," segir Danielson og er ennþá í áfalli eftir atburði helgarinnar. Hann seg- ir að lögreglan hafi keyrt sig á bráða- móttökuna þar sem hann var saum- aður á handlegg og í andliti og gert að meiðslum hans á hendi. Má ekki eiga hvíta kærustu „Ég var í ástarsambandi í fimm ár með íslenskri stelpu og þá lent- um við oft í því að fólk hrópaði á eft- ir henni að hún væri negratík og að ég væri svartur skítur. Faðir henn- ar var mjög á móti sambandinu og bauð mér fimm milljónir fyrir það að hætta með henni," segir Daniel- son. Hann segir að hann hafi ver- ið mjög ástfanginn af kærustu sinni og þau eignuðust barn saman sem dó vöggudauða aðeins tveggja mán- aða gamalt. „Það var mikið áfall fyrir okkur bæði og ég held að kynþátta- fordómarnir sem hún lenti í með mér ásamt bamsmissinum hafi orð- ið til þess að hún gafst upp og við hættum saman. Núna á ég mánað- argamla dóttur með íslenskri stelpu og það er það besta sem hefur komið fyrir mig og þess vegna vil ég byggja upp framtíð mína á Islandi til að geta verið sem mest með dóttur minni," segir Danielson og er auðsýnilega hrærður þegar hann talar um hana. Hræddur um dóttur sína Danielson segist þekkja nokkur tilfelli vina sinna sem eiga hörunds- dökk börn í skóla og þau lendi oft í einelti vegna þess. „Eg er hræddur um að dóttir mín lendi í því sama og ég þegar ég var hér í skóla og þess vegna er líka mikilvægt fyrir mig að vera til staðar fyrir hana. Móðir mín studdi okkurbræðuma í öllum okkar hremmingum vegna kynþáttahaturs skólafélaganna en hún gafst síðan upp og flutti með okkur til Banda- ríkjanna þar sem ég kláraði mennta- skóla," segir Danielson. Hann segir að þar sem hann var í Bandaríkjun- um hafi hann aldrei lent í neinu kyn- þáttahatri af einu eða neinu tagi og eini staðurinn sem hann hefur fund- ið fyrir því sé á íslandi. Hvítir fá hærri laun en svartir „Mig langar til að mennta mig meira og fara jafnvel í viðskiptafræði því minn heitasti draumur er að gera móður mína stolta af mér," seg- ir Danielson og þegar hann talar um hana þá vöknar honum um augun. Hann segir að sú atvinna sem hann Danielson Alves Sousa er illa farinn eftir líkamsárás tuga ungmenna „Ég vará klósettinu þegar hópur stráka réðst á mig og sagði mér að koma mér út.“ DV-mynd: Hörður hefur stundað á íslandi sé mjög illa borguð og á sumum vinnustöðum hafi hvítir íslendingar fengið hærri laun en hann fyrir sömu vinnu. „En ég er bjartsýnn og langar tíl að safna pening og kannski í framtíðinni fara með fjölskyldu mína til Grænhöfða- eyja og setjast þar að og stofna fyr- irtæki," segir Danielson og vonar að umræðan um þessi mál skili kannski því að umburðarlyndi fólks gagnvart öðrum kynþáttum aukist. f sal Húnvetningafélagsins i Skeifunni 11 var ráðist á Danielson Lögreglan í Reykjavík teluraö 150-200 manns hafi verið á staðnum. Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahússins „Padþarfað vinna með skó/um og fyiirtækjum þvi lordómarnir hverfa ékkial sjallu sét: Alþjóðahús gætir réttinda útlendinga Fordómar eru til staðar „Við fáum til okkar meira um heimilisofbeldi en beinar árásir á út- lendinga vegna fordóma," segir Ein- ar Skúlason framkvæmdastjóri Al- þjóðahúss. „Útíendingar sem eiga hvort sem er íslenskan eða útlensk- an maka leita til okkar vegna ofbeld- is heima við og síðan hafa borist til okkar kvartanir frá útlendingum vegna þess að þeir eru upphrópað- ir eða vegna látbragðs og framkomu fólks í þeirra garð sem gefur í skyn vanþóknun. Stundum fá útlending- ar ekki eins góða þjónustu og Islend- ingar," segir Einar. Hann segir að það sé mjög mik- ilvægt að útíendingar láti Alþjóða- húsið vita þegar um beina fordóma í þeirra garð er að ræða. „Við vilj- um gjarnan taka á þessum málum og vinna með fólki með því að fara í skóla eða fyrirtæki með fyrirlestra okkar. Fordómarnir hverfa ekki af sjálfu sér." Einar segir að Alþjóða- húsið sé með túlka fyrir 60 tungumál og lögfræðing í fullu starfi og allir séu meira en velkomnir að leita rétt- ar síns og fá upplýsingar um stöðu sína í íslensku þjóðfélagi. „Á síðast- liðnum tíu árum hefur útíending- um fjölgað úr 1,7 prósentum í 4,6 prósent og þróunin hefur verið svo hröð að samfélagið var ekki und- ir þetta búið og þess vegna er mikill skortur á upplýsingum fyrir útíend- inga á þeirra tungumáli," segir Ein- ar. Hann segir að það sé vöntun á því að íslenska ríkið gefi út upplýsinga- bækling um rétt útíendinga á íslandi á þeirra eigin tungumáli. „Það tekur tíu til tólf ár að læra tungumál sem er ekki þitt móðurmál og ekki hægt að ætíast til að fólkið skilji íslenskuna strax," segir Einar að lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.