Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 Fréttir DV Nakin mótmæli gegn nekt Nakið fólk úti á götu er það sem maður getur vænst að sjá í bænum Brattleboro í Bandaríkj- unum. Þetta „nakta æði" hófst í sumar þegar ung kona klæddi sig úr öllu í hitanum og settist á næsta bekk. Brátt tók fleiri sig til og innan skamms varð ekki þverfótað fyrir nöktu fólki. Bæjaryfirvöld fengu nóg og skipuðu lögreglunni að gera eitthvað í málinu. Þegar það spurðist út íjölgaði nöktum tölu- vert á götum bæjarins, ekki vegna hitans, heldur til að mótmæla því að fá ekki að ganga um göturnar án klæða. Skrifborð Hitlers til sölu Skrifborð og hæg- indastóll úr lúxusíbúð Hitlers í Múnchen eru til sölu og reiknað er með að um 60 milljón- ir króna fáist fýrir. Það er uppboðshald- arinn Minas Kat- chadorian sem býður þessa gripi upp. Hann seg- ir að um einka- uppboð sé að ræða og hugsanlega muni borðið og stóllinn enda á safni ef enginn kaupir þau. Banda- ríski herinn lagði hald á húsgögnin í lok ársins 1945 og síðan voru þau seld á uppboði á vegum hersins í upphafi áttunda áratugarins ásamt ýmsum öðrum munum sem her- inn hafði gert upptæka í stríðinu. Lögmaðurseldi mellur Lögmað- urinn Davy Tang, tveggja barna fað- ir í London, var nýlega dæmdur í eins árs fang- elsi fyrir að gera út mellur á netinu. Hann var jafnframt sviptur lögmannsrétt- indum. Mun Davy hafa þénað allt að 2 milljónum á viku á stúlkun- um. Uppáhaldið hans, „Sonia", skaffaði honum 70 þúsund kr. á tveimur dögum og tekjurnar af „Madelaine" námu 200 þúsund- um á viku. Á fjórum árum er tal- ið að tekjur Davys af mellunum hafi numið um 65 milljónum kr. Hann keypti hús í Surrey og þar fyrir utan voru Porsche, Benz og BMWbílar. Ópíumframleiðslan í Afganistan hefur aldrei verið meiri en í ár. Bandarikjamenn súpa nú seyðið af þvi að hafa átt samvinnu við helstu eiturlyfjakónga landsins við að koma talíbönum frá völdum. Að sögn Antonio Maria Costa yfirmanns Glæpa- og eiturlyfja- skrifstofu Sameinuðu þjóðanna hefur ópíumframleiðslan aukist um 50% í Afganistan frá því i fyrra. Valmúaakur Valmúaræktin í Afganistan hefur aukist um 50% frá því i fyrra. Afganistan erstærsti framleiðandi á ópíum í heiminum og talið er að um 35% landsframleiðslunnar þar séu ópíumsala. Aukningin nú kemur einkum frá suðurhéruðum landsins þar sem talíbanar hafa aukið árásirsínar að undanförnu. Sameinuðu þjóðirnar segja að tölurnar um ópíumframleiðsluna séu ógnvænlegar og mjög slæmar fréttir þar sem afganska stjórnin og alþjóðlegir samstarfsaðilar hennar hafa eytt tugmilljónum á tug- milljónir ofan til að reyna að draga úr framleiðslunni undanfarin ár. Það er endurkoma talíbanskra uppreisnarmanna í suðurhluta landsins sem talin er orsök hinnar miklu aukningar. Þeir hvetja nú bændur til að framleiða valmúa eða ópíum sem aldrei fyrr. segja að það sé farið úr böndunum," segir Maria Costa. Forseti Afganist- an, Hamid Karzai, lýsti yflr vonbrigð- um sínum með framangreindar tölur og hvatti jafnframt alþjóðasamfélag- ið til að veita meira fjármagni til að byggja upp her og lögreglu lands- ins. Stjórn Bush hefur gert eyðingu ópíumakranna að einu höfuðmark- miði sínu í Afganistan og hún gagn- rýnir Karzai fyrir að gera ekki meir til að standa í hárinu á dópkóngum Á fréttamannafundi sem Anton- io Maria Costa hélt um málið í vik- unni og greint var frá í The New York Times kom meðal annars fram að ópíumuppskeran verður 6.100 tonn í ár sem er 30% umfram heimsneysl- una. Það er því augljós hætta á að ódýrt heróín flæði yfir alla helstu dópmarkaði heimsins. Stjórnlaust „Ástandið er mjög slæmt, það má ópíumframleiðslunni. Gerspilltir héraðsstjórar eiga þar einnig hlut að máli. Costa tekur sem dæmi íyrrver- andi héraðsstjóra í Helmand-héraði, Sher Muhammad Akhund, en hann hvatti bændur undir sinni stjórn til að rækta meira ópíum mánuðina áður en honum var vikið úr embætti. „Það eru sannanir fyrir því að hann hafi beitt bændur miklum þrýstingi til að auka framleiðslu sína," seg- ir Costa en framleiðslan jókst um 160% í þessu héraði ffá fýrra ári. Þá var Costa einnig harðorður í garð stjórnvalda í Afganistan vegna þess að Sher Muhammad Akhund fékk sæti í efri deild afganska þingsins um leið og honum hafði verið bolað úr embætti héraðsstjóra. þeim sem standa að framleiðslunni. 35% landsframleiðslu er ópíum Afganistan er stærstí framleið- andi á ópíum í heiminum og talið er að um 35% landsframleiðslunnar þar séu ópíumsala. Aukningin nú kemur einkum frá suðurhéruðum landsins þar sem talíbanar hafa aukið árás- ir sínar að undanförnu. „Suðurhluti landsins er við það að hrynja saman með aukningu í eiturlyfjasölu, upp- reisn og hryðjuverkum, glæpum og spillingu," segir Costa. „Við sjáum bein tengsl á milli aukinnar starf- semi uppreisnarmanna og aukning- ar á ópíumframleiðslunni." Ekki bara talíbanar En það eru ekki bara talíban- ar sem eiga sök á aukningunni í Ódýrt heróín Sökum mikillar ópfumframleiðslu I Afganistan má reikna meðaðódýrt herófn flæðiyfir dópmarkað- inalEvrópuogAslu. Þjónustustúlka á Applebee-grillinu í Kansas datt í lukkupottinn Rændu rangan strák Fékk 700.000 krónur í þjórfé Þrír 17 ára ræningjar í Ham- borg enduðu á sjúkra- húsi eftir að hafa reynt íp) að stela farsíma af jafnaldra sín- V/ \ \ um. „Fórnarlambið" JpiC reyndist vera Þýska- < \. landsmeistari ungl- ~r inga í kick-boxi og -■* karate og var að tala við bróður sinn í símann þegar þre- menningarnir réðust að honum. Hann var ekki á því að láta símann og enduðu samskiptin með því að ræningjarnir lágu lemstraðir á götunni en karatekappinn hélt sína leið, enn að tala við bróður sinn í símann. Kúnninn fékk sér málsverð fyrir 1500 krónur en hann var svo ánægð- ur með þjónustuna að hann gaf þjónustustúlkunni 700.000 krónur í þjórfé. Þetta áttí sér stað á Applebee Bar and Grill í Kansas í Bandaríkjun- um. Stúlkan, Cindy Kienows, var að sjálfsögðu ánægð með þetta en um var að ræða fastagest á staðnum. „Hann er vanur að skrifa undir reikinginn sinn og snúa honum svo á hvolf," segir Cindy Kienows. „En í þetta skipti lagði hann reikninginn niður með framhliðina upp og sagði: „Ég vil að þú vitir að þetta er ekki brandari." Algengt þjórfé í Banda- ríkjunum er um 15% en í þessu tíl- viki var það 38.000%. Viðkomandi kúnni er annars þekktur á Applebee fýrir að vera ör- látur á þjórfé. Hins vegar varð Cindy fyrir töluverðu áfalli þegar hún sá upphæðina sem kúnninn vildi að hún settí á kortið hans. „Ég varð stjörf og vissi ekki hvað ég átti að segja. Hann sagði hins vegar róleg- ur að ég ættí að kaupa mér eitthvað fallegt fýrir upphæðina," segir Cindy. „Ég hef þjónað honum til borðs í ein þrjú ár og við höfum oft rætt saman yfir barborðið. Hann er verulega við- kunnanlegur maður." Rhodri McNee, eigandi Applebee, segir að Cindy sé vel að þessu þjórfé komin. „Hún hefur unnið hjá okkur í átta ár og er duglegur starfsmaður sem vinnur sína vinnu af alúð," seg- ir McNee.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.