Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Page 19
DV Fréttir
FÖSTUDÁGUR 8. SEPTEMBER 2006 19
undan
Ingvar Sigurðsson og Agústa Eva
Erlendsdóttir Stúrstjörnur í Mýrinni.
staða stjórnvalda að standa í vegi
fyrir umtalsverðum hækkunum til
þessa geira. Fullorðna mun Vest-
urport frumsýna um miðjan febrú-
ar en Astrópía sem Júlíus Kemp
er að framleiða er nú á lokastigi í
framleiðsluferlinu.
enn að klippa. Við reiknum með að
frumsýna Fullorðna í lok janúar en
endanleg dagsetning er ekki kom-
in. Það á eftir að leggja lokahönd á
myndina, blása hana upp á 35 mm
og hljóðmixa," sagði Ragnar.
Erlendur og dóttir hans
Varla var forkynning hafin á
Börnum þegar tekið var til við að
kynna vinnslu og væntanlega frum-
sýningu á Mýrinni sem Baltasar
Kormákur er að leggja lokahöndina
á um þessar mundir. Mýrin verður
frumsýnd í október og nýtur þess
að hafa verið óhemjuvinsæl saga og
komist í útvarpsflutning. Má leiða
að því sterkum líkum að með svo
víðtækri forkynningu og spennandi
hlutverkaskipan hafi framleiðand-
inn og leikstjórinn kastað netum
sínum víða um íslenskt samfélag:
Ingvar Sigurðsson og Ágústa „Silvía
Nótt" eru þar mest áberandi.
Hafa markaðsforkólfar gert því
skóna að Mýrin verði stóraðsókn-
armynd á íslenskan mælikvarða
og geti sem slík haft áhrif á aðra
spennumynd sem fýrirhuguð er
í frumsýningu um áramót: Kalda
slóð eftir Björn Brynjólf Björnsson.
Saga film aftur í framleiðslu
Því er oft haldið ffam að áhugi
á íslenskum kvikmyndum geti ver-
ið smitandi: þannig muni gangur á
Mýrinni, nema þess verr takist til og
myndin valdi vonbrigðum, kveikja
áhuga á krimma Björns Brynj-
ólfs sem Magnús Viðar Sigurðsson
framleiðir fyrir Saga film en það er í
fyrsta skipti í langan tíma sem þetta
elsta kvikmyndafyrirtæki landsins
sendir frá sér íslenska mynd.
„Klippingu á Kaldri slóð lýkur
núna öðru hvoru megin við helgina
og svo fer hún í hljóðvinnslu, lit-
greiningu og þetta venjulega ferli.
Við reiknum með að ffumsýna um
jólin eða áramótin þótt nákvæm
dagsetning sé ekki komin enn. Við
höfum svolítið verið að kanna við-
brögð og fólk er almennt mjög hrif-
ið. Þetta er spennumynd, sem ger-
ist í virkjun á hálendinu og afar
einangruð yfir vetrarmánuðina og
það er þarna blaðamaður, sem fer
að kanna dularfullt dauðsfall og
lendir þar í kröppum dansi. Leikar-
arnir standa sig frábærlega, Þröst-
ur Leó í aðalhlutverkinu og svo
Elva Ósk en við höfum líka Anítu
Briem í litlu hlutverki, sem er nú að
leika í bandarískri stórmynd í Kan-
ada, The Journey to the Center of
the Earth, sem byggir á sögu Jules
Verne. Ég er sjálfur mjög ánægður
með útkomuna og vinna við dreif-
ingu erlendis er komin í gang. Sena
sem er meðframleiðandi ásamt
Angel Productions í Danmörku
sinnir henni að miklu leyti og alfar-
ið hérlendis," sagði Kristinn Þórð-
arson framleiðandi hjá Saga film.
Mynd á mánuði
Það er því útlit fyrir að næstu
mánuði komi ekki færri en sex ís-
lenskar leilcnar myndir fýrir augu
bíógesta og allar eru þær sviðsett-
ar í nútímanum. Enn standa yfir
viðræður milli menntamálaráðu-
neytis, fjármálaráðuneytis og fé-
laga í kvikmyndabransanum um
fyrirkomulag og fjárhæðir í nýj-
um samningi milli stjórnvalda og
framleiðenda. Hrein hending mun
ráða að þessi kvikmyndafjöldi rað-
ast svo skemmtilega á mánuð-
ina á kosningavetri og verður erfið
Astrópía í kjölfar
verðlaunamyndar
„Ég er afar ánægður með mynd-
ina en hún er langt komin í klipp-
ingu og styttist í að lokafrágangur
hefjist. Ég reikna með að Astróp-
ía verði frumsýnd snemma á árinu
2007. Norsk-íslenska myndin Den
brysomme mannen (The Bother-
some Man), sem við framleiddum
í fyrra hefur gengið rosalega vel og
er að fá verðlaun á hátíðum. Hún
var frumsýnd í Cannes og vann
þar gagnrýnendaverðlaunin ACID
prize. Undanfarið hefur hún ver-
ið að keppa á Karlovy Vary-hátíð-
inni í Tékklandi og hlaut þar verð-
laun fyrir bestu leikstjórn og var
kosin þar besta myndin á Brussel
European film festival í Belgíu og
líka í Neuchatel í Sviss. Nýverið var
hún valin á hina virtu hátíð í Tor-
onto/Kanada nú í september, The
Contemporary Wörld Cinema og
Discovery programm," sagði Júlí-
us Kemp í viðtali við DV. Myndin
var tekin upp á Islandi og Noregi
2005 og er samframleiðsla íslands
og Noregs. Framleiðendur á íslandi
eru Ingvar Þórðarson og Júlíus
Kemp en leikstjóri er Jens Lien. The
Bothersome Man er svört kómedía
þar sem fylgst er með 40 ára göml-
um manni sem sem kemur í und-
arlega borg og uppgötvar smátt og
smátt að hann er kominn í h'f eftir
dauðann. Áætlað er að frumsýna
myndina um jólin á íslandi.
Didda og Dagur
Þá eru ótalin verk sem eru í
burðarliðnum og enn á stigi fjár-
Astrópía Verður frumsýnd um áramótin en myndin er f leikstjórn Gunnars Björns
Guðmundssonar.
mögnunar: Friðrik Þór er enn að
vinna að fjármögnun á Óvinafagn-
aði eftir sögu Einars Kárasonar;
Marteinn Þórisson hefur lýst yfir
að hann vinni nú að handriti fyrir
Pegasus eftir Roklandi Hallgríms
Helgasonar. ZikZak, fýrirtæki Skúla
Malmquist og Þóris Snæs Sigur-
jónssonar, vinnur að frágangi á
samningum fyrir næstu mynd Dags
Kára og einnig munu þeir hafa tek-
ið að sér framleiðslu á næstu kvik-
mynd Sólveigar Anspach, sem mun
skarta Diddu í aðalhlutverki. „Við
erum nú á lokastigum undirbún-
ings á tökum á næstu mynd Dags
Kára, The Good Heart, sem tekin
verður upp í Bandaríkjunum og hér
á íslandi. Myndin gerist í óræðri
stórborg í Bandaríkjunum en Ryan
Goshng (Half Nelson, The Note-
book) og Tom Waits (Short Cuts,
Down By Law) munu fara með
helstu hlutverkin í myndinni. Þá
er langt kominn undirbúningur að
mynd Sólveigar Anspach, Skrapp út
eða Back Soon, hún verður alfarið
tekin upp hér með íslenskum leik-
urum og á íslensku. Við vonumst til
að tökur geti hafist á vormánuðum
eða snemma sumars á næsta ári
en það er meira listræn ákvörðun
en fjárhagsleg. Þá vinnum við að
myndinni Brim ásamt Vesturporti
en hún er nú á handritsstigi. Að lok-
um má nefna að heimildarmynd-
in Act Normal í leikstjórn Olafs de
Fleur Johannessonar verður frum-
sýnd í Janúar en Zik Zak er með-
framleiðandi að henni," sagði Skúli
Malmquist í DV viðtali.
„Jú, það er rétt að við hjá Stormi
keyptum kvikmyndarétt að f upp-
hafi var morðið eftir Árna Þórar-
insson og Pál Kristin Pálsson fyrir
sameininguna við Saga film. Hand-
ritið er tilbúið og ég reikna með að
við förum í tökur á henni næsta
sumar," sagði Kristinn Þórðarson
hjá Saga film.
Þá standa nú yfir tökur á Snæ-
fellsnesi á mynd Guðnýjar Hall-
dórsdóttur Veðramót með Hilmi
Snæ Guðnasyni og Atla Rafni Sig-
urðssyni í aðalhlutverkum og þá
hófst í gær kvficmyndahátíðin mikla
í Toronto en þar eru Blóðbönd eft-
ir Árna Óla Árnason kynnt sérstak-
lega með tilstyrk evrópskra pen-
inga.