Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Side 32
52 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 Helgin DV Pétur Jóhann Sigfússon þykir langfyndnastur af öllum íslenskum karlmönnum. Pétur Jóhann er þakklátur og auðmjúkur yfir titlinum. Hann segist alls ekki alltaf hafa verið fyndinn og farið með veggjum í skóla. Gömlu skólafélagarnir séu því hissa á þeirri leið sem hann hafi valið sér. „Ég veit ekki hvað ég á að segja," segir Pétur Jóhann Sigfússon sem er fyndnasti karlmaður íslands að mati álitsgjafa DV. Pétur Jóhann seg- ist ekki geta annað en verið ánægð- ur með titilinn. „Ég er þakklátur og auðmjúkur," segir Pétur Jóhann sem var valinn fyndnasti maður fslands árið 1999 og er því ánægður með að vera aftur kominn með titilinn þótt keppnin sé önnur. Margir af álitsgjöfunum sem til- nefndu Pétur sögðu hann hafa útlit grínarans, hann þyrfti varla að opna munninn til að vera fyndinn. Pétur segir eflaust eitthvað til í því og tek- ur undir að hann eigi auðvelt með að gera grín á eigin kostnað. „Óneitan- lega verða grínarar að geta gert grín að sjálfum sér en þó ekki of mikið því það er sú leið sem flestír grínar- ar fara. Það er alltaf nauðsynlegt að hafa húmor fyrir sjálfum sér, ekkert bara í þessum bransa heldur í lífinu sjálfu." Fær útrás með gríni Pétur Jóhann hafði stúderað „stand-up" formið áður en hann skellti sér í keppnina um árið en hafði að öðru leytí enga reynslu af gríni. „Þetta listform er mjög skemmtilegt og ég var alveg heillaður af því og er ennþá," segir hann en bætír við að hann hafi aldrei ímyndað sér að hann ætti eftir að ná svo langt sem raun er vitni. „Ég fór bara í þetta til að fá útrás fyrir það sem ég var að hugsa dags- daglega," segir hann og bætír að- spurður við að hann hafi alls ekki verið trúðurinn í barnaskóla sem all- ir hafi hlegið að. „Alls ekki. í raun- inni held ég að ég hafi frekar ver- ið gaurinn sem fór með veggjum og því eru gömlu skólafélagarnir frek- Pétur Jóhann Sigfússon Segist fá útrás I grini. Fórnfús PéturJóhann og félagar hans, þeir Sveppi og Auddi iStrákunum, leggja ýmislegt á sig fyrir grinið. Þeir létu sig hafa það að fá rjómatertur iandlitið á Lækjartorgi - allt iþágu grínsins. ar hissa á þessu. Ég upplifi allavega að það hafi farið mjög lítið fyrir mér í skóla. Ég var ekkert að gaspra of mik- ið nema þá í lokuðum hópi á meðal góðra vina." Ekki alltaf að djóka Pétur Jóhann segist ekld segja brandara allan daginn, hann geti al- veg átt eðlilegar samræður við fólk án þess að grínast og gantast. „Fólk ætlast ekki til þess af mér að vera fyndinn alla daginn þótt það sé alltaf eitthvert grín á milli eins og eðlilegt er," segir hann en bætír við að hann hafi leitast eftír að vera hann sjálf- ur í þáttunum Strákarnir sem sýndir voru við mikinn fögnuð á Stöð 2 en hafa nú runnið sitt skeið. „í Strákunum reyndi ég eftír mesta megni að vera ég sjálfur en óneitanlega fer maður alltaf í ein- hvern karakter þegar maður kemur í sjónvarpið, sama hvort það er dags- daglega eða til að mæta í umræðu- þátt. Ég held að maður fari ósjálf- rátt í einhvern hjúp," segir hann og bætir við að þegar komi að því að troða upp komi hann sjálfum sér í J rauninni held ég að ég hafi frekar verið gaurinn sem fór með veggjum og því eru , gömlu skólafélagarnir frekar hissa á þessu" stuð sama hvernig skapi hann er í þá stundina. Þetta sé náttúrulega eins og hver önnur vinna. Bessi Bjarna í uppáhaldi Vegna vinnunnar er Pétur Jó- hann alltaf með hugann við grín- ið og reynir að bæta sig eins og aðr- ir í slíku starfi. „Ég er alltaf að hugsa hvort mögulega sé hægt að nota þá hluti, sem mæta mér í hinu daglega lífi, í því sem ég er að gera." Aðspurður hvaða grínisti hafl haft mestu áhrifin á hann þegar hann var lítill nefnir hann Bessa Bjarna- son. „Ég hafði alltaf gaman af Bessa heitnum, blessuð sé minning hans. Ég held að aðalmálið fyrir þá sem Pétur Jóhann Sigfússon „Ég held að aðaimálið fyrirþá sem ætla að leggja grínið fyrir sig sé að finna barnið i sjálfum sér og passa sig á því að fara eigin leiðir. Þá blessast þetta allt,“segir PéturJóhann, fyndnasti maður ístands. ætla að leggja grínið fyrir sig sé að sig á því að fara eigin leiðir. Þá bless- finna barnið í sjálfum sér og passa ast þetta allt." indiana@dv.is „Nobody becomes an unbeaten bishop, that lies in the eyes upstairs...“ Fátt er skemmtilegra en að heyra fólk fara með íslenska málshætti á rangan hátt og þar kemst enginn með tærnar þar sem Bibba á Brávallagötunni hefur hælana. En það er líka gaman að heyra fólk snúa íslenskum setningum yfir á ensku, sérstak- lega ef fólk er ekki með enskuna alveg á hreinu. Rúsfnan í pylsuendanum: The raisin at the end ofthe hot-dog. Nú duga engin vettlingatök: Now there won't do any mitten-takes. Ég kem alveg affjöllum: I come completely fromthemountains. Þakka þér fyrlr hlýorðí minn garö: Thank you for warm words into mygarden. Það gengur allt á afturfótunum: Everything goes on the back-legs. Hann er alveg úti að aka: He is completely out driving. Það liggur í augum uppi: It lies in the eyes upstairs. Hún gafmér undir fótinn: She gave me under the leg. Hann stóð d öndinni: He stood on the duck. Ég kenni i brjósti um hann: I teach in breast of him. Áfram með smjöriðl: On with the butter!!! Ég kem í grænum hvelli: I 'II come in a green bang. Stappa stálinu íþá: Stomp steel into them. Enginn verður óbarinn biskup: Nobody becomes an unbeaten bishop. Ég tók hann í bakariið: I took him to the bakery. Ég mun finna þig í fjöru: I will findyou on a beach. Ég skal koma honum fyrir kattarnef: I will put him before a cats nose. Ég borga bara með reiðufé: I onlypay with an angrysheep. Hann gengur ekki heill til skógar: He does not watk whole to the forrest.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.