Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Qupperneq 42
62 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 Veiöimál DV U Umsjón: Jón Mýrdal (myrdal@dv.is) Allar ábendingar eru vel þegnar; veiðisögur, óvænt veiði, hverjir voru hvar við veiðar... Alltsem við kemur veiðum og veiðimennsku. Mokveiði í Breiðdalsá Þann 31. ágúst hófst veiði á spón og maðk í Breiðdalsá og var þar á ferð hópur spænskra veiðimanna. Fyrsta daginn komu 49 laxar á land sem er metveiði í ánni á einum degi, síðan fengust 29 laxar og þá 27. Hafa því yfir 100 laxar veiðst á fyrstu þremur dögunum. Megnið veiddist á spón og var þeim löxum flestum sleppt aftur í ána. Fiskur er kominn víða á vatnasvæðið og er enn að ganga svo það lítur vel út með framhaldið. Nú eru samtals komnir um 570 laxar á land í Breiðdalsá sem er svipað og í fyrra en þá endaði áin í rúmlega 800 löxum þrátt fyrir erfið skilyrði í september, svo búast má við enn meiri veiði nú í mánuðinum ef aðstæður verða í lagi. Veiðimaður vikunnar að þessu sinni er enginn annar en stórveiðimaðurinn og tónlistar- maðurinn Engilbert Jensen. „Ég er nýbúinn að fara í Bjarnarfjörð sem er norðan við Hólmavík, í Bjarnarfjarðará. Það gekk bara ansi vel. Ég þurfti aðeins að leita að bleikjunni. Það endaði með því að ég þurfti að elta hana niður í ós en þá náði ég flott- um bleikjum. Þetta var allt ný- gengin, silfruð sjóbleikja. Ég hef ekki farið neitt í vötnin hérna í kringum Reykjavík í sumar. Það er alveg ógurlega lítið um bleikju núna á þessu sumri. Ég veit það samt að það er allt fullt af bleikju í Hraunsfjarðarlóninu og ég ætla mér að kíkja þangað næstu daga. Svo ætla ég að kíkja aðeins í Staðarána á Snæfells- nesi. Kannski maður kíki svo aðeins í Þingvallavatn. Það lok- ar fljótlega en það má byrja aft- ur 20. desember og það er mjög spennandi. Ég hef náð bleikj- um þar fýrir jól. Það hefur verið mjög gaman en ég hef þá veitt í Skálabrekku." Frítt að veiða í Ytri Rangá á sunnudag og mánudag Lax-á og agn.is hafa ákveðið í samstarfi við landeigendur við Ytri Rangá að bjóða fólki að veiða frítt á efri svæðunum í ánni á sunnudag og mánudag, 10. og 11. september. Svæðin sem um ræðir eru Heiði/Bjalla- lækur og Réttarnes. Það hefur verið ágætiskropp síðustu daga og í vikunni heyrðum við af manni sem veiddi þrjá laxa við Hrólfstaðarhelli sem er einmitt á veiðisvæði Heiði/Bjallalækj- ar. Það eina sem menn þurfa að gera til þess að fá að veiða er að mæta í veiðiskráningarhúsið að morgni sunnudags eða mánu- dags og skrá sig hjá Jóhannesi veiðieftirlitsmanni til að fá veiöileyfið og svo í enda dags verða menn að hitta Jóhannes og gefa honum skýrslu. Þetta er því tilvalið tælcifæri fyrir þá sem vilja kynna sér svæðið og kíkja í smá sunnudagsrúnt í leiðinni. Hægtað veiðaí góðrísiluné fýrir einn dag í særj Það þarf varla að kynna Stefán Jón Haf- stein en eins og allir vita er hann ekki bára stjórnmálamaður, hann er líka einn af bestu fluguveiðimönnum íslands. Stefán segir frá kolaveiðum og því hvernig hann fékk veiðibakteríuna. Við ákváðum að byrja á að spyrja Stefán að því hvenær áhuginn á veiðinni hafi vaknað. „Sem strákur í Vogunum var ég svo heppinn að Haukur Óskarsson rakari bjó í sama raðhúsi og ég og bauð okkur strákunum sem þar vor- um vinir að koma niður á höfn að dorga, honum fannst að við úthverfa- guttarnir yrðum að kynnast bryggju- lífinu eins og það var upp á sitt besta þegar „Gvendur Jóns og ég“ bækurn- ar voru skrifaðar. Það var farið í Ell- ingsen sem þá var við Jtliðina á Bæj- arins bestu og keypt færi með öngli og beitt hraustlega fýrir kola," segir Stefán um sínar fyrstu veiðar. Frændinn kom veiðibakteríunni í strákinn „Fyrstu stóru ferðirnar með stöng og flugu voru með föðurbróður mín- um og stórveiðimanni Jakobi V. Haf- stein. Hann sagðist ætla að koma veiðibakteríunni í strákinn og gerði það svikalaust. Ég dró minn fyrsta lax í Elliðaánum 10 ára, en hafði áður rot- að þá marga fýrir Jakob. Síðar fór ég með honum í Aðaldalinn og í ferm- ingargjöf gaf hann mér fýrstu flugu- stöngina. Það var hins vegar ekki fýrr en eftir háskólanám erlendis að ég kom heim fullur af þrá eftir að byrja að veiða. Þá var ég svo heppinn að einn helsti flugnahöfðingi landsins, Kolbeinn Grímsson, tók mig í fóstur. Eftir að hann kom mér í fýrsta veiði- túrinn á urriðasvæðinu í Laxá í Mý- vatnssveit hefur bakterían sem Jakob kom í mig náð að grassera. „Skemmtilegast að veiða þar sem ég er staddur hverju sinni" Mér finnst skemmtilegast að veiða þar sem ég er staddur hverju sinni! í alvöru. Ég veiði mest silung en fer líka í lax. Þetta er einfalt reilcn- ingsdæmi með lax eða silung: fyrir hvern sæmilegan laxadag í dýrri á er hægt að veiða 3-5 daga í silungi og allt upp í rúma viku! Og silungsveið- in er ekki síður krefjandi. En föstu ferðirnar mínar eru árvissar í Mý- vatnssveitina, Veiðvötn, Hofsá og nú upp á síðkastið í haustveiði í Þverá. Ég veiði hvert sumar í Elliðavami og Flottur urriði Þetta erstærsti urriöinn semStefán Jón hefur fengiðút Laxál Mývatnssveit. reyni svo á hverju ári að ldkja á nýj- an veiðistað sem ég hef ekki kynnst áður. í sumar var það Fnjóská sem heillaði mig. Ég hef víða veitt, en allt- af er skemmtilegast að hitta gamlar ástkonur í veiðinni, ég er trygglynd- ur að eðlisfari. Fyrsti flugufiskurinn Ég hef lifað margar góðar stund- ir í veiðinni. Ég man alltaf eftir fyrsta flugufiskinum mínum, sem ég veiddi „alveg einn". Þá var ég í sveit á Tjör- nesi, á Máná, þar sem rennur lítil á sem geymdi eitt sinn litla silunga. Ég var 10 ára. Veiðilánið hafði síður en svo elt mig, því ég vildi alltaf veiða á flugu þegar allir í sveitinni notuðu háf eða maðk'með góðum árangri. Ég var með flugustöng og flugu frá Jakobi, Black Ghost. Ég var einn að ráfa í þrjósku minni og trú á fluguna, þegar ég kom þar að sem lítil bleikja lá á lygnu. Ég trúði varla eigin aug- um! Lét fluguna detta fýrir hana þar sem ég stóð á bakkanum og þorði ekki að anda, og litla greyið tók, og þar með var fýrsti alvöru flugufiskur- inn minn staðreynd. Þetta var stóra stundin." 11 þúsund skráðir notendur Stefán er stofnandi vefsíðunnar flugur.is sem er einn stærsti vefur- inn um fluguveiði á fslandi í dag. „Ég stofnaði flugur.is fyrir sex árum þegar það rann upp fyrir mér að slíkur vefur var einmitt það sem vantaði þegar ég var að byrja að veiða. Ég átti meira en 200 pistla á lager sem ég hafði skrif- að í blöð og þeir urðu uppistaðan, en nú eru á vefnum mörg hundruð greinar, 700 uppskriftir að flugum og gríðarlegt efnismagn. Ég hef gefið út „Flugufréttir" í sex ár, sem er rafrænt vikurit um fluguveiðar, en áskrif- 1 í í J : ■j { É? 1>-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.