Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Blaðsíða 49
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006 69
Alveg eins Ed Kowalczyk úr hljómsveitinni
Live og Magni eru mjög svipaðir. Magni söng
líka alltaf best er hann tók Live-lög.
með Bítlunum og voru kappamir í Su-
pemova frekar sáttir. Síðan tók hann
frumsamið lag sem að hann tók fram
að væri þýtt yfir á ensku. íslending-
um brá smá og bjuggust örugglega
við þýddu Á móti sólar-lagi. En svo
var ekki. Það var rokkað í alla staði -
svo rokkað að ailar æðar á höfði hans
þöndust út. Stákamir í Supemova
vom sæmilega sáttir en Tommy Lee
fannst bæði lögin hljómað of svipað.
Magni svaraði þá að það væri vegna
þess að hann söng þau bæði. Á end-
anum var það Storm Large - ofurtöff-
ari með mefru sem kvaddi þáttinn.
Strákamir í Supemova vom ekki sátt-
ir að senda hana heim.
0 RS LITAÞÁTTU RIN N
Hvemig fer þetta með Magna
okkar. Það er alveg á hreinu að
íslenska þjóðin er búin að halda
kappanum á floti síðastliðna tvo
þætti. Aðeins fjórir söngvarar
eru eftir: Dilana, Magni, Lukas
og Toby. Supemova virðist vera
rosalega hrifm af Toby allt í einu
- miklu meira en Lukas og Dil-
önu. Ef marka má síðasta þátt
fór Magni hrikalega í taugamar á
Gilby Clarke, en Jason Newsted
hefur alltaf verið mjög jákvæður
í garð Magna. Hver hentar best
fyrir Supemova. Margir myndu
segja Lukas - þó að hann sé langt
frá því að vera besti söngvarinn.
Hann hefur allt hitt. Dilana er ekki
að fara að vinna þessa keppni.
Það verður ekki kvennmanns-
söngvari. Tekst Magna að klára
dæmið? Sumir segja að Magni
ætti frekar að túra með húsband-
inu, sem er mega öflugt, en þeir
munu koma til með að hita upp
fyrir Supernova. öllum þessum
spumingum verður svarað næsta
þriðjudag. Gangi þér vel, Magni.
Langt er þangað til
hægt verður að segja
að sainfélag okkar sé
uppiskroppa með
efnilegt og spennandi
fólk. Þetta er lítið land
og andlit hins ókunna
kemur oft kunnuglega
fyrir sjónir en hvort
maður viti eitthvað
bitastætt um einstakl-
inginn er allt annað
mál. DV fór á stúfana
og fékk þrjá frækna
einstaklinga úr samfé-
laginu til að opna sig
eilítið. Svörin eru
hnittin og forvitnileg
og má með sanni segja
að nú viti maður meira
um andlitið en áður.
(ris María
Stefánsdóttir
dansari
Hvað á hug þinn allan þessa dagana? „Ég verð að segja að það sé
nýja JSB-húsið og allur undirbúningurinn við það. Það á að opna nýtt
húsnæði hjá JSB núna á sunnudaginn þannig að ég er þar allan
daginn. Þetta heltekur mann allan en það verður stuð á sunnudag-
inn og að sjálfsögðu eru allir velkomnir."
Besta stund sumarsins? „Besta tímabilið mitt var þegarég
fór til Krítar með kærastanum mínum, það var alveg yndisleg
ferð. Þar var hiti og sól, bara alveg yndislegt líka að komast
loksins í sumarfrí."
Hver er þinn helsti löstur? „Ég verð eiginlega að segja að
það sé hversu óttalegur nammigrís ég er, en ég er að
reyna að hætta því."
Hver er þinn helsti kostur? „Ég reyni alltaf að
vera jákvæð og líta á björtu hliðarnar."
Hvað óttastu mest? „Ég er rosalega loft-
hrædd, ég reyni að yfirstiga það en ég komst til
dæmis ekki upp á toppinn á Esjunni núna í
sumar. Ég fékk svo rosalegt kvíðakast þegar ég
átti tvo metra eftir að ég ríghélt í einhvern gulan
fána eða prik og færði mig ekki næstu tíu
mínúturnar."
Trúirðu á líf eftir dauðann? „Ég trúi því að
það sé eitthvað eftir dauðann en hvað það er
veit ég ekki. Ég trúi ekki að þetta sé bara búið."
Veistu þetta
um þessa?
Hvað á hug þinn allan þessa dagana? „Við skulum segja ástin og
leikhúsið, það er verið að koma Hafinu bláa aftur á laggirnar eftir að það
vann áhorfendaverðlaunin. Svo það er verið að vinna á fullu í því þar sem
frumsýningin verður um helgina. Síðan er ég á fullu að fá fólk til að sjá
Afganga í Austurbæjarbíói."
Besta stund sumarsins? „Ætli það hafi ekki verið Grímuverðlaunaafhend-
ingin, að taka á móti áhorfendaverðlaunum og síðan ferðalag á Langjökli."
Hver er þinn helsti löstur? „Minn helsti löstur er sá að hafa of gaman af
því sem ég geri."
Hver er þinn helsti kostur? „Ég er með fullt af góðum kostum en ég á
erfitt með að meta það sjálfur svo við skulum bara láta aðra meta það. En
minn aðalkostur sem ég get nefnt er hvað ég er vel giftur og á fallega og
góða fjölskyldu."
Hvað óttastu mest? „Minn mesti ótti er lofthræðsla sem kom upp úr
tvítugu en ég var klifurköttur sem varð svo lofthræddur."
Trúir þú á líf eftir dauðann? „Svo sannarlega í alls konar myndum en
það fer eftir því hvaða dagur er."
Agnar Jón Egilsson
leikstjóri
Fram að þeirri stund hafði hann bara legið eins og
klessa og slefað yfir sjálfan sig. En viti minn, dag
einn stóð hann upp á litla fæturna og gekk...
alveg Hollywoodefni þar á ferð! Svo gaf ég út
plötu með hljómsveitinni minni Reykjavík! Það
þótti mérfrábært, ástarsamband Reykjavíkur! og
12tóna er einn af hápunktum sumarsins. Strákar
ég elska ykkur eins og ég elska ristað brauð."
Hver er þinn helsti löstur? „Ég er rosalega
þver og það fer í taugarnar á sumum. Það fer
ekkert í taugarnar á mér og kannski er það stór
löstur. Svo er ég fáranlega upptekinn af því að
reyna að láta öllum finnast ég vera fínn gaur. Það
eralgerandlegfötlun."
Hver er þinn helsti kostur? „Ég lem aldrei
neinn og býð stundum upp á skemmtilegan
félagsskap, sé sá gállinn á mér."
Hvað á hug þinn allan þessa dagana? „Ég
er með popptónlist á heilanum. Ég er búinn að
vera að hlusta dálítið á nýja smellinn hans Justins
vinar míns, Sexyback. Svo er ég hrifinn af ofbeldi í
kvikmyndum, ekkert svona yfir strikið ofbeldi eins
og í Irréversible. Heldur meira í átt við Oldboy og
jafnvel bara svona Bruce Lee, Evil Dead-ofbeldi,
strákslegt glens í formi líkamsmeiðinga. Samt ekki
í raunheimum. Já og svo er ég mjög hugfanginn
af Ingu sem er konan mín, hún er mögnuð og
hefur líka gaman af ofbeldi. Já og tímavélar, ég
væri alveg til í að eiga svoleiðis. Ég er búinn að
vera að„googla" tímavélar í svolítinn tíma núna.
Þær eru alveg töff^!
Besta stund sumarsins? „Þær eru nokkrar.
Mér þótti rosaleg upplifun að sjá drenginn minn,
hann Dalí, standa upp og ganga. Það var svolítið
svona eins og að verða vitni að Biblíu-kraftaverkí.
Hvað óttastu mest? „Þegar ég var barn þá
þjáðist ég af„Jawssyndrome", sem lýsti sér þannig
að ég vildi ekki fara í sund og jafnvel ekki í baðker
af ótta við stóra, illa mannætuhákarla. Ég var þess
fullviss um að ég yrði étinn. Ég er enn svolítið
hræddur við hákarla en fer alveg í sturtu. Svo er
ég skíthræddur við smáhunda."
Trúir þú á líf eftir dauðann? „Auðvitað trúi ég
áframhaldslíf. Það erfullt af fólki sem að upplifir
aldrei í þessu lífi það sem það þráir og sumir fá
aldrei tækifæri til þess sökum ýmissa utanaðkom-
andi þátta. Fólkfæðist inn i sára fátækt, ömurlegar
aðstæður heima fyrir, lönd sem rekin eru af illsku
og harðræði og svo mætti lengi telja. Ég tel
klárlega að sumir eigi gott í vændum eftir lífið hér
og nú. Aðrir koma til með að eyða hundruðum ára
í einhverjum helberum viðbjóði. Svo var ég alltaf
að hanga með draugum sem barn."