Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Síða 54
74 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006
m
Helgin 0V
\\
Eldheitar
Dömurnar í Desperate
Housewives eiga eftir
aðlendaiýmsui
vetur. Dramatikin nær
hámarki.
I vetur sátum viö límd við sjónvarpið. Flóra
sjónvarpsþátta hefur aldrei verið meiri og
bíðum við spennt hérna á klakanum. DV
rýnir í nýjustu seríur Desperate House-
wives, Prison Break og Nip Tuck.
Það er fátt skemmtilegra en að sitja
uppi í sófa og horfa á góðan sjónvarps-
þátt. Þættirnir Desperate Housewi-
ves og Prison Break hafa heldur betur
tröllriðið íslensku sjónvarpi. Við fáum
bara ekki nóg.
Prison Break betra
Önnur sería af Prison Break er nú
þegar hafin í Bandaríkjunum og segja
sjónvarpsáhorfendur seríu tvö sem
kallast Manhunt ekki gefa þeirri fyrstu
neitt eftir. Spennan magnast með
hverjum þættinum en það er búið
að sýna fyrstu þrjá þættina nú þeg-
ar. Leikarinn William Fitchner sem er
best þekktur fyrir að leika í Hollywood-
myndum á borð við Armageddon leik-
ur alríkislögreglumanninn Alexander
Mahone sem ætlar ekki að gefa neitt
eftir í leitinni að föngunum. Fitchner
er svolítið spúkí karakter og hann á
eftir að sóma sér vel í þættinum.
Ástir og örlög hjá aðþrengdum
eiginkonum
Þriðja þáttaröð af Desperate Hou-
sewives veldur okkur engum von-
brigðum, en mörgum þótti sería tvö
frekar slöpp. I fyrstu seríu fylgdum við
einu plotti í gegnum alla þáttaröðina
- hver var í kistunni? En í annarri ser-
íu gerðist voðalega lítið. Þriðja serían
verður því mun meira spennandi en
fyrri tvær og án þess að segja of mikið
fáum við að sjá eldheit ástarsambönd,
mannrán og nýja unga fola mæta á
svæðið.
Nip Tuck slær öllu við
Nip Tuck-þættirnir eru í alla staði
rosalegir. Síðasta sería sló öllu öðru
við. Vandaðra sjónvarpsefni er varla
til. Ef marka má sjónvarpsrýnendur
í Bandaríkjunum verður fjórða ser-
ía kynþokkafyllri, meira spennandi
og sjúklegri en allar hinar til samans.
Þættirnir hafa getið sér góðs orðspors
vestanhafs og í komandi þáttaröð
verður fjöldinn allur af gestaleikurum,
þar á meðal: Rosie O' Donnell, Brooke
Shields, Larry Hagman, Mario Lopez
og Sanaa Lathan.
Larry Hagman er nýr eigandi Mac-
Namara/Troy og leikur Sanaa Lathan
unga eiginkonu hans. Karakter Hag-
mans verður afar skrautlegur og mun-
um við eflaust hlæja mikið að kallinum.
Mario Lopez leikur gestahlutverk í
þáttunum en hann lék í hinni vinsælu
unglingaþáttaröð Saved By the Bell.
Mario leikur lýtalækni og fáum við að
sjá frískandi sturtuatriði með honum
og Christian. Nip Tuck verður rosalegt
í vetur. Nú höfum við eitthvað til þess
að hlakka til.
Larry Hagman aftur í sjónvarp
Ofurtöffarinn Larry Hagman úr Dallas og I
dream ogJeanie ersnúinn aftur. Hann
leikurnýjan eiganda MacNamara/Troy.
Sanaa Lathan leikur eiginkonu hans.
Alríkislögreglan
William Fitchner leikur alríkislögreglu-
manninn Alexander Mahone. Hann ætlar
ekki að sleppa þessum gaurum.
Sálfræðingurinn
Brooke Shields leikur sálfræðing Christians.
Flottir gestaleikarar Rosie O'Donneii
leikur gestahlutverk I þáttunum.
Vel tekið Serlu tvö hefur verið vel tekið í
Bandarlkjunum. Við verðum ekki fyrir vonbrigðum.
’.turtu.jtriöi
n i1 /7 11, !• .' ' u j ' ln r.ll'II i /<•//■ l"'i "'
\(J\7MnluJhföÍ'n\ttnHÍnrij
,liirUuilii()i inýiii'.lu '.fr/i/nn/.