Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2006, Qupperneq 58
*
i£
■*»
78 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006
Siðasten ekkisíst DV
dagatali i
ardagur
Kominnvetura Kopaskeri
Svo virðist sem kominn sé vetur
á Kópaskeri. Fyrirtækið Fjallalamb
á Kópaskeri þakkaði landsmönn-
um fyrir grillsumarið í aug-
lýsingu. Fjallalamb sér-
hæfir sig í að framleiða
grillvörur og þykja lær-
, issneiðarnar frá
þeim mjög góð-
““.....ar. Það skýtur
svolítið skökku við þeg- ., í
ar íbúar á höfuðborgar-
svæðinu líta út um glugg-
ann og sjá þá rjómablíðu sem
hefur verð undanfarið að íbúar
Kópaskers séu búnir að gefast upp á
Ha?
sumrinu. Það getur vel verið að það
sé orðið mjög kalt á Kópaskeri en
þó er nokkuð snemmt að blása
sumarið af. Samkvæmt
er fyrsti vetr-
laugardag-
urinn 21. október.
getur vel verið að
ardagurinn fyrsti
| *** sé haldinn hátíðleg-
ur 1. mars á Kópa-
.! * skeri.
immtu. '*
11
Furðufréttin
Mýsnarvilja
ekki ost
Svo bregðast krosstré sem
önnur tré. Ein af staðreyndum
lífsins um að mýs elski ost er
víst röng. Þetta er allavega inn-
takið í furðufrétt dagsins sem
kemur af vefsíðunni ananova,-
com.
Fréttin er á þessa leið:
„Tomma og Jenna-ímyndin um
að mýs elski ost er þjóðsögn,
þessu heldur vísindamaður
fram.
Dr. David Holmes, frá
Manchester Metropolitan há-
skólanum segir að mýs vilji
heldur fæðu sem innihaldi
mikinn sykur eins og til dæm-
is súkkulaði. Hann segir: „Mýs
bregðast við lykt, áferð og
bragði af mat. Ostur er nokk-
uð sem ekki er á borðstólum
í náttúrulegu umhverfi þeirra
og því nokkuð sem þær myndu
ekki bregðast við."
Náttúruleg fæða músa er að
mestu korn og ávextir en báðar
þessar fæðutegundir eru með
hátt sykurhlutfall.
Þessi niðurstaða fékkst
sem hluti af stærri rannsókn
á því hvaða fæðutegundir eru
aðlaðandi og hvaða eru frá-
hrindandi fyrir dýr. Rannsókn-
armenninrir fundu út að mat-
seðill músa er að mestu korn
og ávextir. Þeir segja að raun-
veruleg mús myndi fúlsa við
einhverju sem lyktar eins mik-
ið og ostur og er jafn bragð-
mikill."
Þá vitum við það. Senni-
lega þarf að endurhanna þess-
ar klassísku músagildrur þar
sem ostbiti er settur á fjöður-
ina. í staðinn þarf sennilega
að hanna þær svo epli eða
appelsína komist þar fyrir.
Gefið
manninum eld!
Fallinn stjörnublaða
Nikótíntrípp á Balka
„Ég skammast mín fyrir að segja
það en ég reykti eiginlega eins og
strompur," segir Eiríkur Jónsson,
fyrrverandi stjörnublaðamaður á
D\4 sem féll nú í ágúst eftir ellefu
mánaða tóbaksbindindi.
Eiríkur byrjaði
snemma að fikta við
sígarettur. „Ég byrj -
aði að reykja um
leið og ég hafði
vit til og linnti
ekki látum
fýrr en ellefta
september í
fyrra," segir
Eiríkur sem
þann dag
hættiaðreykja
ásamt nokkr-
um félögum sín-
um og konu sinni
Petrínu Sæunni
Ólafsdóttur. í staðinn
fyrir sígarettur tók hann að
sjúga sérstaka nikótínstauta
sem fást hér í apótekum og
hann segir vera frábæra, hreinlega
heilsusamlega.
Flestir entust stutt í bindindinu.
„Jón Óskar myndlistarmaður
byrjaði aftur eftir korter og margir
voru byrjaðir eftir einn og hálfan sól-
arhring. Það erum bara ég og kon-
an mín sem byrjuðum ekki aftur að
reykja," segir Eiríkur.
Það var í Evrópureisu Eiríks
með konu sinni Petrínu sem ógæf-
an dundi yfir. Hann gáði ekki að sér
og tók aðeins fjögurra daga birgðir
af nikótínstautum með sér úr landi
þótt ferðin ætti að standa í fjórar vik-
ur. Fyrsti áfangastaður var Berlín.
„Það reykja allir í Berlín og það
þykir bara viðkunnanlegt
enda er þetta heims-
borg. Enþarhöfðu
menn aldrei
heyrt um nik-
ótínstauta,
bara tyggjó
og plástra,"
segir Ei-
ríkur og
útskýrir
að tyggjó
og plástra
geti hann
ekki not-
að. Það skýr-
ist með því
að tóbakið sé
ekki aðeins fíkni-
efni heldur sé það líka
ávanabindandi: „Nikót-
ínið er fíknin og hreyf-
ingin að bera sígarettuna að vörun-
um er ávaninn. Þetta hvort tveggja
fær maður með stautunum."
Eiríkur varð uppiskroppa með
nikótínstauta á næturklúbbi í Berlín
en komst þó áfallalaust niður á Balk-
anskaga. Þar reyndi hann að synda
af sér fíknina í sólinni en ógæfuský-
ið vofði yfir.
„Ég þraukaði út daginn en um
kvöldið gekk ég sem í leiðslu og
keypti pakka af Marlboro og kveikj-
ara. Og kveikti í. Þar með var ég kol-
fallinn," segir Eiríkur.
Þær þrjár vikur sem eftir lifðu af
Evrópuferð Eiríks liðu í reykjarkófi.
„Ég keðjureykti eins og þær þjóðir
sem ég heimsótti og í takt við inn-
Ekki mjög svæsnar spurningar
Gamla myndin
Gamla myndin að þessu sinni er
tekin í sjónvarpssal í nóvember árið
1981 er þar fór fram Spurn-
ingakeppni sjónvarps-
ins. Þeir Traustí
Jónsson og Guðni
Kolbeinsson
voru spyrl-
ar og stjórn-
endur þess-
arar keppni
en örnólfur
Thorlacius og
Sigurður Richt-
er voru dómarar.
Og eins og sjá má á
myndinni skörtuðu þeir
Ömólfur og Sigurður forláta bresk-
um dómarahárkollum í tilefni dags-
ins.
„Þetta voru ekki mjög svæsn-
ar spumingar að ég held þótt ætíð
sé erfitt að vera dómari í eigin sök,"
segir Trausti Jónsson um keppnina.
„Við Guðni sömdum spurningarnar
í samvinnu við dómarana og
við lögðum upp með að fólk
heima í stofu gæti svarað
þeim, eða héldi að það
ættiaðvitasvarið."
í máli Trausta kem-
ur fram að þessi keppni
hafi aðeins verið þenn-
an eina vetur og að alls
hafi átta þriggja manna
lið tekið þátt í keppninni
sem verið hafi með útslátt-
arsniði svipað og Gettu betur.
„Þetta voru sjö þættir sem sýnd-
ir voru þennan vetur og síðan ekki
meir," segir Trausti. „Ég man ekki
lengur hverjir stóðu uppi sem sig-
urvegarar eftír allan þennan tíma
en það var örugglega sómafólk."
Dv-Myndir: Úr einkasafni.