Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2006, Page 2
36 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2006
Sport DV
oskar@dv.is
búitmgsldefanum
• Þó nokkurs taugatitr-
ings er að verða vart í
Hafnarfirðinum og þá
sérstaklega hjá þjálfara
liðsins, Ólafi Jóhannes-
syni. FH-ingar hafa nú
klúðrað tveimur tæki-
færum í röð til að tryggja sér íslands-
meistaratitilinn og á meðan hafa lið-
in, Valur og KR, í öðru og þriðja sæti,
unnið sína leiki. Þegar tveir leikir eru
eftir eru Valsmenn fimm stigum á eftir
FH en KR sex og eiga aðeins stærð-
fræðilega möguleika á titlinum. FH-
ingar fá Víkinga í heimsókn næst og
geta með sigri tryggt sér íslandsmeist-
aratitilinn en hafa skal í huga að liðið
hefur aðeins fengið eitt stig úr tveimur
leikjum gegn þeim í ár...
í * Rflóssjónvarpið gerði
íh þau leiðu mistök á laugar-
daginn að hætta útsend-
/■< ingu á bikarúrslitaleik
tlk tt- Hh Va]s og Breiðabliks í
VISA-bikar kvenna á
Laugardalsvelli skömmu áður en víta-
spymukeppnin, sem réði úrslitum,
hófst. Það var gert til að aðalfrétta-
tíminn riðlaðist ekki. Hart hefur ver-
ið deilt á RÚV íyrir þetta og hefur Páll
Magnússon útvarpsstjóri beðist af-
sökunar opinberlega. Neyðarlegast er
þetta þó fyrir Samúel Öm Erlings-
son, yfirmann íþróttadeildar RÚV
sem fékk gullpenna KSÍ í fyrra fyrir
frábæra umijöllun um kvennalöiatt-
spymu...
• Ljóst er að litlir kær-
leikar em á milli krafta-
karlanna Hjalta Úrsusar
Árnasonar og Magnús-
ar Vers Magnússonar.
Það kristallaðist í myndinni um Jón
Pál sem frumsýnd var í
síðustu viku. Ekki var rætt
neitt við Magnús Ver í
myndinni og honum brá
aðeins einu sinn fyrir í
mynd. Það er sérstaktþar
sem Magnús Ver var jafnvel sigursælli
aflraunamaður en Jón Páll og sorg-
legt til þess að vita að þeir hafi ekki
getað lagt ágreining sinn til hliðar fyr-
ir minningu sameiginlegs vinar, Jóns
Páls Sigmarssonar...
• Framheijinn Marel
Baldvinsson, markahæsti
leikmaður Landsbanka-
deildarinnar, er með sjálfs-
traustið í lagi eftir fr ábæra
ffammistöðu með Breiða-
bliki í sumar. Hann spilaði sinn fyrsta
leik með Molde á sunnudaginn gegn
Viking í norsku deildinni og lagði upp
tvö mörk. Molde fékk vítaspymu í
leiknum og var Marel fljótur að grípa
boltann og gera tilkafi til að taka
spymuna. Hann þurfti hins vegar að
láta boltann af hendi til vítaskyttu liðs-
ins til undanfarinna fimm ára...
Umboðsmaöurinn Ólafur Garðarsson er sá umsvifamesti á ís-
landi. Hann hefur komið um 50 leikmönnum úr landi og samið
um háar Qárhæðir fyrir þeirra hönd. Nýjasti samningurinn var
fyrir Hermann Hreiðarsson sem færði honum rúmar 300 millj-
ónir í árslaun samkvæmt heimildum DV.
Hefur samið
um laun fyrir
f ■ n
5 milljar
Ólafur Garðarsson hefur verið löggiltur FIFA-um-
boðsmaður síðan 1997. Hann hefiir komið um 50 leik-
mönnum á samning hjá erlendum félagsliðum og samið
aftur fyrir marga þeirra. Alls hefur hann samið um laun
upp á fimm milljarða fyrir leikmenn sína á þessum níu árum.
Ólafur
Garðarsson
Reyndasti
umboðsmaður
Islands sem hefur
sent um 50 islenska
knattspyrnumenn til
erlendra liða á
undanförnum
niu árum.
iÞað er erfitt að skjóta á þetta en
mér reiknast það til að ég hafi sam-
ið fyrir mína leikmenn um laun upp
á rúma fimm milljarða, sagði um-
boðsmaðurinn Ólafur Garðarsson að-
spurður um það hver upphæðin væri
sem hann hefði samið um fyrir leik-
menn sína væri.
jÞetta eru um fimmtíu leikmenn
sem ég hef komið til útlanda og fyrir
marga þeirra hef ég samið upp á nýtt,j
sagði Ólafur í samtali við DV í gær.
Jóhann sá fyrsti
Ólafur fékk réttindi löggilts FIFA-
umboðsmanns síðla árs 1997 og
segir að hann hafi sent sinn fyrsta
leikmann út vorið 1998. jFyrstí leik-
maðurinn sem ég sendi út var Jóhann
B. Guðmundsson sem fór frá Keflavík
til enska 1. deildarliðsins Watford. Síð-
an þá hafa margir leikmenn farið frá
mér og ég hef afitaf átt í mjög góðum
samskiptum við félög og leikmenn. Ég
man bara ekki eftír því að skugga hafi
borið á samstarf mitt við leikmenn eða
félög, j sagði Ólafur.
Margir landsliðsmenn hjá Ólafi
Margir af bestu knattspymumönn-
um þjóðarinnar eru á mála hjá Ólafi
og má þar nefna Hermann Hreiðars-
son hjá Charlton, Ivar Ingimarsson
og Brynjar Gunnarsson hjá Reading,
Gunnar Heiðar Þorvaldsson hj á Hann-
over og Brann-leikmennina Kristj-
án Öm Sigurðsson, Ólaf Öm Bjama-
son og Ármann Smára Bjömsson.
Auk þess em efnilegustu knattspymu-
„Ég er kannski ánægð-
asturmeð samninginn
sem ég gerði fyrir Her-
mann Hreiðarsson við
Ipswich viku áður en
enska úrvalsdeildin
hófst árið 2000."
menn þjóðarinnar, Bjami Þór Viðars-
son hjá Everton og Rúrik Gíslason hjá
Charlton, á samningi hjá Ólafi. jÞað
er gaman að fylgjast með þessum
ungu strákum sem munu marg-
ir hverjir mynda framtíðarlands-
lið íslands. Þeir em afar efnilegir
og hafa alla burði til að ná langt, j
sagði Ólafur og nefnir þar sérstak-
lega Bjama Þór, Rúrik og Theódór
Elmar Bjamason og Kjartan Henry
Finnbogason sem em hjá Celtic.
Ánægðastur með Hermann
Aðspurður um hvaða samning-
ar stæðu uppúr sagði Ólafur erfitt
að gera upp á mifii. jÉg er kannski
ánægðastur með samninginn sem
ég gerði fyrir Hermann Hreiðars-
son við Ipswich viku áður en enska
úrvalsdeildin hófst árið 2000. Nýi
samningurinn hans við Charlton
er líka góður en ég er líka gríðar- I
lega ánægðm með samninginn
sem ég gerði fyrir Gunnar Heiðar
hjá Hannover, j sagði Ólafur.
oskar@dv.is
W'
m
Hermann Hreiðarsson
Ólafur Garðarsson hefur
samið fyrirhann undanfarin
ár, og gerði nú síðast þriggja I
ára samning vlð Charlton sem
færir honum milljarð ílaun
samkvæmt heimildum DV.
Getty Images/Nordic Photos H
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Ólafursamdi fyrir Gunnar
Heiðar þegar hann fór frá
sænska liðinu Halmstad til
þýska liðsins Hannover i
sumar. Heimildir DV herma að
árslaun Gunnars Heiðars séu
ekkiundir lOOmilljónum.
Draumalið Snorra Steins Guðjónssonar
I landknattleikskappinn Snorrí
Steinn Guðjónsson er einn af lykil-
mönnum íslenska landsliðsins sem
tekur þátt í heimsmeistarainótinu í
Þýskalandi í byrjun næsta áfs. Snorri
Steinn hefur undanfarin ár leikið í
þýsku deildinni, fyrst með Gross-
wafistadt og nú Minden og þekkir því
hvem krók og kfina í þessari bestu
deild heims. DV Sport fékk Snorra
Stein til að stilla upp draumaliði sínu
íþýsku l.deildinni.
Markvörður:
Carsten Lichtlein, Lemgo
„Hann er þýskur landsliðs-
maöur sem spilaði með mér
tvö ár f Grosswallstadt. Hann
ergriðarlega efnilegur. Hann
átti reyndar ekki sitt besta
timabil á síðasta ári en ég á
von á þvíað hann verði
sterkur í ár.“
Vmstri hornamaðun
Guðjón Valur Sigurðsson,
Gummersbach
„Hann er einfaldlega besti
hornamaðurinn i heiminum I
dag. Hann erótrúiega fijótur
og frábær I hraðaupphlaup-
Vinstri skytta:
Nikola Karabatic, Kiel
„Hann var lykilleikmaöur hjá
Kiel i fyrra sem og franska
landsliðinu. Hann er
grlðarlega öflug skytta og
sterkur vamarmaður!1
Miðjumaðun
Stefan Lövgren, Kiel
„Þessi sænski snillingur er
frábær leikstjórnandi og mikill
leiðtogi."
Hægri skytta:
Einar Hólmgeirsson,
Grosswallstadt
„Hann er skotfastasti
leikmaöur I heiminum. Það
nægir mér.“
Hægri homamaður:
Alexander Peterson,
Grosswallstadt
„Það er ekki hægtað finna
betri mann til að vera meðl
liði. Hann er ótrúlega
vinnusamurog frábær
varnarmaður."
Línumaðun
MarcusAhlm, Kiel
„Svii sem er að minu mati
besti linumaður í heiminum í
dag, bæði i vörn og sókn“
Varamenn:
Snorri Steinn Guðjónsson,
Minden og Róbert
Gunnarsson, Gross-
wallstadt
J fyrsta lagi til aöhafa
húmorinn í liöinu i lagi og i
öðru lagi erum við ágætirí
handbolta."
Ole g Veleky, Kronau-
Östringen
„Hann er besti sóknarmaður-
inn I deildinni i dag.“
Þjáifari:
Alfreö Gíslason, Gummers-
bach
„Ég þekki hannnú ekki mjög
mikið afeigin raun en það
sem ég þekki til hans er alveg
toppur. Hann erfrábær
þjálfari i alla staði. Svo er
hann mjög virtur hér i
Þýskalandi. Það er nánast
sama hvern ta/að er við og
það segir meira en mörg orð.“
Guðjón Valur
Sigurðsson
amaBB—n
Carsten
Lichtlein
Alexander
Peterson
Nikola
Karabatic
Markus
Ahlm
Stefan
Lövgren
Einar
Hólmgeirsson