Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2006, Síða 7
DV Sport
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2006 41
hjá stóru liði
Hún er besta knattspyrnukona landsins í besta knatt-
spyrnuliði landsins. Margrét Lára Viðarsdóttir átti ekki
venjulegt knattspyrnusumar því hún bætti markametið
og varð bæði íslands- og bikarmeistari með Val. Hún er
búin að skora 113 mörk á tveimur sumrum með Val.
ir sína hönd sem og sinna liða. Þetta á
líka við um landsliðið.
„Þetta var mjög gott sumar þó að
landsliðið hafi verið viss vonbrigði.
Maður vann það upp í leikjunum
með Valsliðinu. Við klúðruðum þessu
á móti Tékkum og það var mjög mik-
ið svekkelsi fyrir okkur. Það eru miklar
mannabreytingar í landsliðinu og það
eru ungar að koma inn og það tekur
ailtaf tíma að finna rétta liðið og réttu
leikmennina sem hentar best að spili
saman. Ég héld að framtíðin sé björt,
við erum margar ungar þama með
síðan eldri stelpur í bland þannig að
við eigum bara eftir að fara upp á við
með landsliðið," segir Margrét Lára og
það er ljóst að hún ætíar sér að kom-
ast inn á stórmót.
Eigum góða möguleika
„Það er draumur okkar allra stelp-
nanna í landsliðinu að komast með
liðinu inn á stórmót og ég vona að
það gangi eftir. Ég held að við eigum
mjög góða möguleika á að komast
inn á næsta stórmót. Ef fólk h'tur á ár-
angur 21 árs landsliðsins í sumar þá
er framtíðin mjög björt," segir Margrét
Lára en bætir við að til þess þurfa fleiri
stelpur að komast í sterkari deildir.
„Ég vona að fleiri en ég séu að
hugsa um að fara út og það var til
dæmis mjög gaman að sjá Hólmfríði
Magnúsdóttur fara út. Það var frábært
fyrir hana og gott skref fyrir íslenska
landsliðið að hún sé að prófa eitthvað.
Ég vona að fleiri fylgi í kjölfarið því við
erum með það sterka leikmenn héma
heima að þær geta aliflestar spilað í
sterkari déild erlendis."
Gerði 4. flokk að meisturum
Það er ekki nóg með að Margrét
Lára sé Islandsmeistari sem leik-
maður hún er einnig annar þjáhari 4.
flokks Vals sem varð íslandsmeistari í
sumar.
„Ég er reyndar aðstoðarþjálfari
hðsins en það var mjög gaman að
vinna með þeim. Þetta em mjög efni-
legar stelpur og þær sýna og sanna
efniviðinn sem er á Hhðarenda. Það
er rosalega gaman að þjáha og ég hef
mikinn áhuga á því," segir Margrét
sem nýtur sín einnig sem þjáhari.
„Ég reyni bara að þjáhá þær eins
og ég get best og reyni bara að brýna
fyrir þeim og æfa vel og hugsa vel um
sig. Þessar stelpur hafa mildnn metn-
að og það er rosalega gaman að sjá
þær vera að æfa sig aukalega. Það er
frábært fyrir þær að sjá meistaraflokk-
inn ná svona góðum árangri í sumar
og þær langar að ná svona langt líka,"
segir Margrét og bætir við.
„Það er líka nauðsynlegt fyrir þess-
ar stelpur að sjá leikmenn fara út og
sjá hvað sé hægt. Ég man eftir því þeg-
ar ég var yngri þá voru ekki marg-
ir leikmenn að fara út og maður vissi
ekki hvað væri í boði fyrir mann. Ég
„Beta er búin að vera
frábær. Hún erbúin
að stilla okkursvo vel
saman og fara í öll
þessi atriði sem skipta
máli bæði varnarlega
og sóknarlega og ég
held að það sjáist á ár-
angrinum.Viðerum
búnarað bæta okkur
mjögmikið."
held að það sé mikilvægt fyrir þess-
ar ungu stelpur að vita hvað þær getí
náð langt og að þær séu líka að fara út
eins og strákamir."
Ætlar að reyna að komast til
Þýskalands
Framtt'ðin er ekki nema að hálfu
leyti klár hjá Margréti Lám sem hefur
aldrei farið leynt með það að hún ætl-
aði að fara út eftir þetta sumar.
„Ég reikna með því að fara út hvort
sem það verður í janúar eða núna í
haust því það á bara eftir að koma í
ljós. Ég horfi mikið til Þýskalands og
langar að prófa það og sjá hvort ég
bæti mig ekld þar. Það væri lfábært að
komast að hjá stóru liði. Ég er 100%
viss að mig langar út og er tilbúin að
taka því sem kemur upp á þar. Ég er
mjög spennt fyrir því að fara út og
prófa eitthvað nýtt, setja mér ný mark-
mið og fá ný tækifæri," segir Margrét
sem setur stefnuna hátt.
„Ég held að maður geti alveg sett
stefnuna svohtið hátt, maður á að gera
það og reyna að komast sem lengst.
Aðalmálið hjá mér núna er að kom-
ast út í gott hð og finna mig vel þar. Ég
þarf náttúrulega að sanna mig í þeirri
deild sem ég spila í og það er meira
en að segja það. Maður er ekkert nafh
þama úti, þarf að leggja hart að sér og
það er mjög spennandi," segir Mar-
grét Lára að lokum, en ef við þekkjum
hana rétt þá verða þær ekld margar
vikumar þar sem Viðarsdóttir verður
óþekkt nafn í þýska boltanum.
ooj@dv.is
„Ég og Fríða erum þekktar fyrir það
að rífast eins og hundur og köttur á
æfingum. Hún er með brjálað keppn-
isskap og hún er einn af þessum leik-
mönnum sem ég myndi velja einna
fyrst í liðið mitt. Fríða fer svo langt á
keppnisskapinu og það er gaman að
fylgjast með baráttunni hjá henni."
PÁLAM. EINARSDÓTTIR
Varnarmaður 13 leikir, 1 mark
„Pála er jaxhnn í liðinu með því-
líkar tækhngar og þú ferð ekkert svo
glatt framhjá henni. Pála hefur ver-
ið að koma sterk inn í sumar eftir að
hafa glímt við erfið meiðsli og það er
búið að vera gaman að sjá hana rífa
sig upp úr þeim. Hún var mjög mikil-
væg fyrir okkur í lok sumars."
RAKEL LOGADÓTTIR
Miðjumaður 13 leikir, 13 mörk
„Rakel er líka mjög fyndinn og
skemmtilegur karakter. Hún er ahtaf
léttíynd og er líka ein af þessum upp-
öldu Völsurum sem eru með þvflíkt
Valshjarta og hún er alltaf fyrst til að
gera eitthvað fyrir félagið eða liðið.
Hún er mikilvæg fyrir liðið enda einn
af þessum reynsluboltum. Hún skor-
aði mörg mikilvæg mörk í sumar sem
skiptu miklu máh fyrir okkur."
THELMA ÝR GYLFADÓTTIR
Sóknarmaður 9 leikir, 5 mörk
„Thelma kom frá Skaganum ög
hefur verið að koma sterk inn í okk-
ar lið. Hún er ein af þessum efnilegu
leikmönnum sem ná vonandi langt
og hún ætti að geta það."
JULIA FLEETING
Sóknarmaður 2 leikir, 4 mörk
TATIANA MATHEILIER
Miðjumaður4 leikir, 1 mark
VIOLA ODEBRECHT
Miðjumaður 5 leikir, 1 mark
„Útíendingarnir hjálpuðu okk-
ur heilmikið en ég vil samt meina
það að það hafi verið kjaminn í okk-
ar hði og liðsheildin sem hafi unnið
þessa sigra í sumar. Þær spiluðu bara
nokkra leiki með okkur en gáfu okk-
ur mikið sjálfstraust og maður vissi
að maður væri að spila við hliðina á
þýskri landsliðskonu. Það var gaman
að spila með leikmanni eins og Violu
og í raun mikil forréttindi. Þær unnu
ekki titihnn fyrir okkur það voru leik-
mennirnir sem voru með okkur aht
tímabilið sem gerðu það."
ELÍSABET GUNNARSD.
Þjálfarl
„Beta bindur þennan hóp alveg
frábærlega vel saman. Hún er góð-
ur vinur ahra í liðinu en nær samt að
halda þessari Ijarlægð sem þarf að
vera á milli leikmanna og þjálfara.
Hún gerir það ótrúlega vel og það
skilur það enginn hvernig hún fer að
því. Að mínu mati er Beta bestiþjálf-
ari landsins og ég held að hún sé ein
af bestu kvennaþjálfurunum í Evr-
ópu."
ooj@dv.is