Nýr Stormur - 30.06.1967, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 3 0. JÚNI 1967
I
Wifr®
HMNUB
|
1
1
I
/ I
ViMal við
Lyndon B. Johnson
á bls. 4
i
p
3- árgangur
Reykjavík
24. töluBlað
UTVA
ll
NISTA!
Freklegt hlutleysisbrot Útvarpsins í
þágu kommúnistaklíkunnar í Alþýðu-
— bandalaginu! —
Ötvarpið gerir þaff ekki endasleppt í lýðræöisást sinni og óhlutdrægni. Með samkomu-
,afi milli flokkanna var lista Hannibals Valdimarssonar meinaður aðgangur að útvarpi og
sjónvarpi í kosningahríðinni. Áður gerðri samþykkt um að formenn flokkanna skyldu
^°ma fram í útvarpi var breytt í „formenn ÞINGFLOKKANNA til að útiloka Hannibal. —
Áð kosningum loknum bauð syo útvarpið Magnúsi Kjartanssyni, ritstjóra málgagns Sósíal-
!staflokksins, að koma fram með formönnum flokkanna og lýsa kosningaúrslitum. Og s.l.
laugardag gaf það Magnúsi enn hálftíma þátt í útvarpinu til árása á Hannibal og liðs-
menn hans!
Álafoss gjaldþrota?
Klæðaverksmiðjan Álafoss, eitt af elztu og traustustu fyrir-
tækjum landsins, er nú á heljarþröminni. Kvittur hefir gosið
upp við og við um það að þetta fyrirtæki, sem löngum var
talið einn af hornsteinum íslenzks iðnaðar, væri á barmi
gjaldþrots og myndi verða gert upp þá og þegar. Mun hér
verða um að ræða eitt af stærstu gjaldþrotum, sem enn
hafa orðið á íslandi. Talið er að gjaidþrotið muni verða upp
á 70—80 milljónir króna, og verði svo, fær íslenzka ríkið
verulegann skell, þar sem ríkisábyrgðir vegna fyrirtækisins
munu vera um 50 milljónir. <
Hér er „Þjóðlífs“-lineykslið
endurtekið með öfugum for-
merkjum. — Og nú þegir
framsókn!
Einn svartasti bletturinn á
nÝafstaðinni kosningabaráttu
var útilokun I-listans í Reykja
vík frá útvarpi og sjónvarpi.
Hvernig sem á jnálin er litið
var sú ákvörðun hins pólitíska
útvarpsráðs óverjandi. Skv.
úrskurði yfirkjörstjórnar um
OPIÐ BREF
til formanns Sjálfstæðisflokksins, hr. Bjarna Bene-
diktssonar, frá flokksráðsmanni, sem af auðskyldum
ástæðum getur ekki látið nafns síns getið.
Herra forsætisráðherra!
Þótt ég hafi verið einn af þeini, er stutt liáfa þig til
valda, æði fyrr og síðar, þá get ég ekki stillt mig um að
senda þér örfáar lfnur í tilefni þess, að við munum sjást
V1Ö allhátíðlcgt tækifæri í þessari viku.
Ég veit um gagnsleysi þess að skrifa þér einkabréf og við-
ræður reyni ég ekki lengur við þig. Ég hef tekið það ráð
að biðja Nýjan Storm fyrir þetta bréf, því að ég vil ekki
leita á náðir Framsóknar eða kommúnista og auk þess hef
ég beðið ritstjóra Nýs Storms um að endurrita þetta bréf
íyrir mig, (il þeSs að þú þckki)- ckki irthátt minn, því að
ög vil ckki búa undir reiði þinni og bræðra þinna meii en
orðið cr.
Aðalerindi mitt er að biðja þig að draga þig í hlé frá for-
tnennsku og forsætisráðherrastörfum, að minnsta kosti í
F’ramhn'f -'s 2
að listinn væri utanflokka, bar
honum auðvitað réttur til að
túlka mál sitt í fjölmiðlunar-
tækjum þjóðarinnar til jafns
við aðra. Skv. úrskurði lands-
kjörstjórnar, sem byggður var
á lagaákvörðum um að bera
mætti fram fleiri en einn lista
í nafni sama flokks, ÁN sam-
þykkis flokksstjórna, náði
auðvitað engri átt að leggja
það á vald valdaklíku kommún
ista, hvort listinn fengi að
koma þar fram eða ekki.
Enda kom það í ljós, að hér
voru samantekin ráð flokks-
klíkna ALLRA FLOKKA, þeg-
ar áður gerðri samþykkt um
sérstakan sjónvarpsþátt „for-
manna flokkanna“, var breytt
í „formanna þingflokkanna“,
en í Alþýðubandalaginu einu
er annar formaður þingflokks-
ins en flokksins.
Það tók þó út yfir allan
þjófabálk þegar sjónvarpið
svo EFTIR kosningar bauð
Magnúsi Kjartanssyni, að
korna fram við hlið formanna
flokkanna til að ræða úrslit
kosninganna!
Ekki er vitað til að Magnús
Kjartansson hafi haft til þess
neitt umboð frá Alþýðubanda-
laginu, enda gegnir hann engri
Framkvæmdabankinn sál--
ugi jós miklu fé í þetta fyrir-
tæki, til kaupa á vélum o. fl.
Álafoss hafði um langt skeið
verið þjóðþrifafyrirtæki, und-
ir stjórn Sigurjóns heitins Pét
urssonar, og vann fyrirtækið
góða vöru úr íslenzku ullinni.
Með harðnandi samkeppni
við erlenda vöru, jukust kröf-
urnar um gæði íslenzku fram-
leiðslunnar og einnig mun ætl
un forráðamanna verksmiðj-
unnar hafa verið að auka fjöl-
breytni framleiðslunnar og
hófu þeir framleiðslu á gólf-
teppum, en þá kom í ljós, að
verksmiðjan gat ekki spunn-
ið nægilega vel úr ullinni. Var
þá gerður samningur við
danskt fyrirtæki, en nú fer
eitthvað að vandast málið.
Margt af erlendu verkafólki
trúnaðarstöðu á vegum þess
annarri heldur en að sitja í
framkvæmdastjórn þess ásamt
14 öðrum.
EINLEIKUR MAGNÚSAR
S.l. laugardag hóf göngu
sjna nýr þáttur í útvarpinu,
sem nefndur er „Daglegt líf..‘
Bæði nafn þáttarins og snið
bera meö sér að hér er verið
að endurvekja þáttinn Þjóðlíf,
sem lagður var niður í vetur,
eftir að stjórnandi hans Ólaf-
Framh. á bls. 2.
hefur unnið á Álafossi og mun
þar hafa verið misjafn sauður
í mörgu fé. Bankastjórum
Landsbankans mun hafa ofboð
ið vinnubrögðin er þeir fóru
þangað til eftirlits fyrir
skemmstu og liggur nú Ijóst
fyrir að þetta gamla og gróna
fyrirtæki mun verða lagt á
höggstokkinn innan skamms.
Munu margir eiga um sárt
að binda í þessu máli, en rík-
issjóður þó mest. Er einkenni-
legt hversu lítið hefir orðið úr
mörgum fjárfestingum undan-
farinna ára og þá einkum
þeirra er Framkvæmdabank-
inn átti hlut að, en hann hafði
eins og kunnugt er, yfir að
ráða hinni svokölluðu Mars-
hallaðstoð, eða andvirði henn-
ar í íslenzkum peningum.
Er hér eitt dæmið um ó-
stjórn þá og skipulagsleysi
sem einkennt hefir íslenzkt
athafnalíf á undanförnum ár-
um. Einkaframtakið er fyrr
en varir komið yfir á ríkið ef
hallar undir fæti og ríkisfyrir-
tæki og ríkisframkvæmdir eru
rekin með svo furðulegum
hætti, að engu er líkara en að
forsvarsmenn þeirra þurfi eng
urn að standa reikningsskap
gerða sinna.
En viðreisn er viðreisn og
hvaða nafn hún hlýtur að fjór-
um árum liðnum, er óráðin
gáta í dag.