Nýr Stormur


Nýr Stormur - 30.06.1967, Blaðsíða 2

Nýr Stormur - 30.06.1967, Blaðsíða 2
UTVARPIÐ — Framhald af bls. 1. ur Ragnar Grímsson, hafði ver ið rekinn frá útvarpinu, fyrir upptóku harðrar gagnrýni á heilbrigðismál, án þess að sjón armið heilbrigðismálaráð- herra kæmi fram. Var þó í þeim þætti enginn persónuleg árás á heilbrigðismálaráð- herra, heldur á sleifarlag heil- brigðismála almennt, í hans tíð og fyrirrennara hans. Það kom mönnum spanskt fyrir sjónir, þegar þátturinn „Daglegt ).íf“ í umsjá ungkrat- ans Árna Gunnarssonar hóf göngu sína á því, að Magnús Kjartansson lék hálftíma einleik með endalausum árás um á Bannibal Valdimarsson og fylgismenn hans og ein- hliða frásögn af deilumálum í Alþýðubandalaginu frá sjón- armiði Magnúsar. RANGFÆRSLUR FRÉTTA- MANNSINS Stjórnandi þáttarins lét þess getið, að Hannibal hefði ver- ið boðin þátttaka, en hafnaði því, fyrr en hann hefði „ráð- fært sig við sína menn“. Nýr Stormur náði ekki í Hanni- bal, en hefur aflað sér upplýs- inga um þetta efni frá góðum heimildum. Hið rétta er, að Hannibal sagði fréttamannin- um, að hann gæti ekki tekið þátt í slíkum umræðum með- an kjörbréf hefðu ekki verið gefin út, enginn formlegur þingflokkur þannig verið myndaður, hvað þá komið sam an og rætt þessi mál. Enn fremur gæti hann ekki sem formaður Alþýðubandalagsins tekið þátt í deilum frammi fyr ir alþjóð við einn þingmann flokksins, sízt af öllu mann, sem hefði í blaði sínu krafizt brottreksturs síns, og að hann yrði dæmdur utanflokka. Á þessi rök féllst fréttamaður- inn, og taldi Hannibal málið þar með úr sögunni. Hann var aldrei látinn vita, að tæki hann ekki þátt í umræðum fengi Magnús EINN tímann til umráða! Á ÁBYRGÐ ÚTVARPSRÁÐS Með þessum þætti var svo ^&ÍORMUR FÖSTUDAGUR 30. júní 1967 — OPIÐ BREF — !• rr.riib -f w'.s, i, bili. Ósigur flokksins í tveim undanfarandi kosningum hljótum við Sjálfstæðismenn að verða að skrifa að rtliklu leyti á þinn persónulega reikning. Þér hefur tekizt svo óhönduglega til um stjórnarforyst- una, að þú hefur látið Alþýðuflokkinn um að framkvæma flest þau mál, sem vinsæl hafa orðið, en sjálfur látið flokk okkar framkvæma það, sem miður hefur til tekizt og bera þar með höfuðábyrgðina á því ástandi, sem nú þjakar þjóð okkar. Gagnrýnin á ríkisstjórnina hefur að mestu lent á okkar flokki, en Alþýðuflokkurinn hefur fleytt rjómann ofan af. Þetta er þín sök fyrst og fremst, og við viljum ekki una því, að sá flokkur, er við höfum starfað f af heilum hug í áratugi, undir farsælli stjórn Ólafs heitins Thors, skuli nú gjalda afhroð í hverjum kosningum á fætur öðrum, en til hags fyrir samstarfsflokk okkar, sem engu síður ber ábyrgð á stjórn landsins en við. Ég ásaka þig fyrir breytta stjórnarhætti í okkar eigin flokki. Við elskuðum og virtum fyrrverandi foríngja okk- ar, en þú hefur stefnt að því, að við óttumst þig, en ekki gætt þess um leið, að við glötuðum virðingunni fyrir þér, sem við höfðum óneitanlega um skeið. Ekki jókst virðingin fyrir þér við þjóðhátíðarræðuna, sem þú fluttir þann 17. júní. Við höfðum búizt við því, að þú flyttir eitthvað jákvætt, einhvern boðskap til jíjóðar- innar, sem þér bar vissulega skylda til. Þess í stað fluttir þú fúkyrði í garð vikublaðanna og varð ekki annað skilið, en þú álitir þau eiga sök á óförum flokks okkar. Þú hefur ekki áður tekið þau svo til bæna og hefði þó oft verið iull ástæða til. Sum þessara blaða hafa komið út í mörg ár og verið full af rógburði, klámi og kjaftæði, enda fengið á sig ótal meiðyrðamál, en þú hefur þagað. Ég er einn af þeim „seku“ mönnum, sem oft kaupa þessi blöð.^gn það hefur ekki verið til að lesa það, sem þú ert að fordæma, heldur vegna þess, að þau hafa oft stungið á kýl- um, sem önnur blöð hafa ekki minnzt á. Ótrúlega oft hafa þau haft meira og minna rétt fyrri sér og þá einkum upp á síðkastið, þegar allt veður uopi a£ svfkum og prettum í þessu þjóðfélagi. Það er einmitt þessi svik og prettir, sem eru svartasti bletturinn á menningu okkar. Ef það væri ekki fvrir hendi, myndu þessi blöð ekki þrífast á að skrifa um slík mál. Það er okrið, vörusvikin, vinnusvikin, faktúrufalsanirnar og skatta- og tollsvikin, sem þarf að uppræta, forsætisráð- herra, og það er fyrst og fremst á þínu valdi. Allt þetta er á kostnað þeirrar stofnunar, sem þú veitir forstöðu, þ. e. þjóðfélagsins. Ef þú tækir þig til og upp- rættir þennan jarðveg, sem þessi blöð virðast þrífast í, þá myndir þú um leið svipta þau lífsmöguleikanum og þá þyrftir þú ekki að verja orku þinni í að berjast við vind- myllur. Mér er sagt, að þú munir einkum hafa stefnt ummælum þínum gegn þessu blaði, sem ég bið fyrir þessar línur til þín. Ástæðan sé sú, að það hafi komið óþægilega við kaun- in á ýmsum, sem hafi kvartað við þig, og þá ekki sízt við þig sjálfan. Ég skal taka það fram, að ég er því mjög ósam- mála um pólitísk skrif þess, flest, en það sem það hefur sagt um spillinguna í þjóðfélaginu, er flest satt og ég hef ekki getað fundið, að það færi þar með rangt mál. Að nota þjóðhátíðardaginn sem tilefni til að reyna að kveða niður slíka gagnrýni, sýnir, að þér eru enn einu sinni mislagðar hendur og hefur þetta nú aukið enn meir á óvin- sældir þínar. Við teljum okkur ekki þurfa að fara í smiðju til þín til að læra að velja á milli þess sem er rétt eða rangt. Sorinn verður metinn og léttvægur fundinn, en sannleikurinn blíf- ur, hver svo sem hann segir. Þú þiggur sennilega ekki ráðleggingar mínar, þótt þú þiggir ekki atkvaéði mitt og stuðning, en hann byggist nú orðið fremur af tryggð en sannfæringu. Aðeins eitt að endingu: Óttinn verður þér og bræðrum þínum ekki lyftistöng að eilífu. Flokksráðsmaður. langt gengið til hjálpar komm únistaklíkunni í baráttu henn- ar við Hannibal, að jafnvel Morgunblaðið er hrætt og tel- ur í leiðara á þriðjudag að um „mistök“, hafi verið að ræða, sem ekki megi endurtaka sig. En einn af ritstjórum Morgun- blaðsins situr í útvarpsráði og ber ábyrgð á þessum „mistök- um.“ Hér er greinilega brotið í bága við 5. gr. útvarpslaganna, sem hljóðar svo: „Útvarpsráð telur ákvarðan ir um það, hversu dagskrá skuli hagað í höfuðefnum og leggur fullnaðarsamþykki á dagskrá, áður en hún kemur til framkvæmda. Það setur reglur um fréttaflutning út- varpsins og aðrar þær reglur, er þurfa þykir til gæzlu þess, að við útvarpið ríki skoðana- frelsi og fyllsta óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í almennum málum, atvinnustofnunum, félögum og einstökum mönnum.“ Það er því útvarpsráð, sem ber ábyrgðina, skipað fulltrú- um allra flokka. ÞÖGN FRAMSÓKNAR Tíminn tók óstinnt upp hanzkann fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, þegar Þjóðlífsþátt- urinn var bannaður í vetur, enda bar það allan keim póli- tískra ofsókna. En þegar stjórnarflokkarnir endurreisa þáttinn og hefja hann með þessum endemum er lýðræðis ást Framsóknarmanna með öllu gleymd. Auðvitað er það gróft sið- leysi af fréttamanninum að halda áfram með þáttinn, eftir að sýnt var að aðeins annar málsaðilinn kæmi þar fram og það með grófar persónuleg- ar árásir. Hins vegar var ekki við öðru að búast af þessum nýkjörna þingmanni Alþýðubandalags- ins, en að hann gripi fegins hendi tækifærið til einhliða árása á formann flokksins, án samráðs við nokkrar stofnanir hans eða yfirvöld. Honum hef- ur jafnan látið „einleikurinn" bezt. ÚTVARPIÐ — EINKAÁRÓÐ- URSTÆKI KOMMÚNISTA? En hvað segir hinn almenni borgari. Lætur hann sér lynda, að þau fjölmiðlunartæki, sem eru SAMEIGN ÞJÓÐARINN- AR, séu notaðar sem einka- áróðurstæki kommúnista í við ureign þeirra við Hannibal? Þögn flokksblaðanna sýnir, ! að hér eru samantekin ráð flokksklíkuvaldsins. Það vill hjálpa kommúnistaklíkunni til að tryggja sér yfirráðin i Alþýðubandalaginu. Þetta er sú „barátta gegn kommúnist- um,“ sem málgögn „lýðræðis- flokkanna“ hafa hvað fjálg' legast talað um undanfarna áratugi! Svona á „uppgjör“ við kommúnista að fara fram! Af- henda þeim útvarpið sem einkamálgang, veita blaði Magnúsar Kjartanssonar 1200 þúsund krónur árlegan styrk af almannafé — fyrir náð Bjarna formanns! N ? R STORMUR býður vður úrvals efnl. erlent rm innTent. Greinar um biúðmál sem vekja athygli allra hugsandi manna,

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.