Nýr Stormur - 30.06.1967, Blaðsíða 6
o
"fftoimim
FÖSTUDAGUR 30. júní 1967
M annkynssagan
Framhald af bls. 3.
•
verkamanni. Rhöm er höfuíídur
hins sterka varðliðaflokks SA.
Ennisgreiðsla og yfirskegg
Ríkisþingkosningarnar árið
1930 voru stórsigur fyrir flokkinn
sem fékk rúmlega 6 milljónir
atkvæða og 107 þingmenn út á
stefnuskrá, sem slær allt út, sem
áður hefir þekkst í fjarstfeðu-
kenndri og forskrúfaðri pólitískri
hugsun.
Hitler sjálfur er lágvaxinn
maður, með sérkennilega enn
is|;reiðslu og stingandi augna-
ráð og ferkantað yfirskegg. —
Hann kemur fram í einkennis
búningi nazistaflokksins, —
brúnni skyrtu og reiðbuxum
OfP leggstígvélum.
Það má ekki gera of lítið úr
mælskulist hans. Á suma tilheyr
endur sína virkar hann aðeins
hlægilega, með sinni hásu rödd,
yfirdrifna látæði og hoppandi yf
irskegg, meðan hann virðist hafa
dáleiðsluvald yfir öðrum sálum.
Hann hefir sérstakan hæfileika
til að tala til fjöldans og undir-
býr stórkostlegar senur á fund-
um sínum og hefir áhrif á flesta
Þjóðverja í æsingaræðum sínum.
Um einkalíf hans er ekkert vit-
að. En áform hans eru ljós. Þau
^ru skráð í „Mein Kampf“ og
það er sök Þýzkalands og Evrópu
ef þau geta ekki lesið þar um,
hvað bíður hins svokadllaða
Menntaða heims frá hendi þessa
litla Austurríkismanns, sem
byrjaði sem málarasveinn en er
nú kanzlari lands síns og mun
án efa verða innan skamms ein-
einvaldur.
Hvíta húsið —
Framh. af bls. 4.
ekkert heldur, en hann er þó
heiðarlegur og íhaldsamur í
eðli sínu.
Þú ert nú að berja á þess-
um kommaskríl, þessum villi-
mönnum í Víetnam. Er þetta
ekki voða dýrt. Þið eruð víst
búnir að missa 500 flugvélar,
það gerir mikið í peningum.
Til þess að halda þjóðarskút-
unni hjá mér á kili þyrfti ég
andvirði einnar B-52 sprengju
flugvélar á ári, hún kostar um
1000 milljónir. Finnst þér ekki
þetta smart reiknað. Andvirði
fjögurra flugvéla, 4000 milljón
ir mundu duga í 4 ár allt kjör-
tímabilið, eftir það fer ég á
Bessastaði og verð forseti eins
og þú, og þá segjum við bara
sæll nafni.
Lindon: Þú ert stór snjall
Bjarni minn, mig munar ekk-
ert um fjórar flugvélar, það er
eins og keppur í sláturstíðinni.
Skrifa bara MacNamara á
miða mínus fjórar flugvélar til
Víetnam. Það er eins og upp
í nös á ketti í öllum stríðs-
rekstrinum.
Þú ert nú víst Bjarni minn,
að loka okkur að nota þennan
að lofa okkur að nota þennan
Rússarnir bakka ekki rétt t. d.
næstu hundrað árin.
Bjarni: Alveg guðvelkomið,
Johnson minn, Hólmaskömm-
in er víst jafn góður þó þið
tyllið ykkur á hann. Þið mynd
uð þá muna eftir okkur, ef síld
in bryggðist og heylaust yrði,
tala nú ekki um ef rétta þarf
við fjárhaginn.
Lindon: Við hendum ein-
hverju í ykkur. Það er ekki
meira fyrir okkur en að gefa
hesti heytuggu. — Vertu sæll.
Á 7idegi —
Frh. aí bls. 5.
Mesta hugsanlega tala
starfsmanna við þessa verk-
smiðju er aðeins um 400
manns. Það eru nú öll ósköp
in. Forsætisráðherra belgdi
sig mikið í fyrra yfir því að
Wilson hinn brezki, væri
vísvitandi að skipuleggja at
vinnuleysi á Bretlandi. Það
væri þó munur á íslenzku
ríkisstjórninni. Engin hætta
væri á atvinnuleysi á ís-
landi, svo væri fyrir að
þakka frábærri stjórn hans
sjálfs.
Nú er annað kömið á dag
inn. Ráðherrann er svo
heppinn að geta kennt að
einhverju leyti markaðs-
hruni á íslenzkum afurðum.
Einn af fremstu mönnum á
sviði útflutnings á fiskaf-
urðum, hefir látið í ljós í
viðtali við þetta blað, að hið
háa verð á útflutningsafurð
um íslendinga á undanförn
um árum hefði verið óeðli-
legt og fyrir ofan raunveru
légt heimsmarkaðsverð.
Hefði verið alveg ljóst, að
þetta verð myndi ekki hald
ast til lengdar, sem og hef-
ur komið á daginn. Taldi
hann engar líkur á því að
verðið hækkaði, nema að
stríðsást^nd yrði, en blöð
stjórnarinnar létu að því
liggja fyrir kosningar, að
líkur væru fyrir að verðið
hækkaði á ný. Þannig voru
blekkingarnar notaðar út í
yztu æsar fyrir kosningar.
Einu afsakanirnar fyrir
því, að þetta hefði ekki ver-
ið „vituð ósannindi“ er sú,
að þeir er að þessu létu
liggja séu fávitar og fara
þá að skýrast ástæðurnar
fyrir því kreppuástandi sem
nú er að skapast á íslandi.
FILISTEAR
Framh. af bls. 8.
hann er.
Menn sem fyrir slíku verða
eru ekki líklegir til að gjalda
keisaranum meira en það, er
þeir geta minnst komizt af
með, með illu eða góðu.
Það má því búast við að
hagnaður af þessum ránsher-
ferðum þess opinbera sé vafa-
samur. Þetta er ekki á margra
vitorði annarra en þeirra er
í komast og því er rétt að þetta
komi fram. Geti einhver rétt-
lætt þetta mál, er honum til
þess heimilt rúm í blaðinu.
uð mönnum atvinnu við að
þjóna útlendingum. Það er
þó athyglisvert, að enn
starfa færri menn við bygg-
ingu verksmiðjunnar, en
sagt var upp í einni járn-
smiðju hér í borginni, —
vegna verkefnaskorts!
/ þjónustu Islendinga
Fullkomnasta farartæki nútímans.
Forysta í íslenzkum flugmálum
o