Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1959, Blaðsíða 6

Freyr - 01.03.1959, Blaðsíða 6
64 FREYR sambandi við ræktun kartaflna o. fl. Áburð í upplausn í vatni í gróðurhúsum o. fl. o. fl. NIAE hefur smíðað dynamometer (afl- mæli), sem er mjög lítill fyrirferðar, ætl- aður til þess að mæla aflþörf tengidrifinna véla og verkfæra. Hann er settur á tengi- drifsöxulinn aftan á traktornum. All-miklar tilraunir hafa farið fram á hey- og kornþurrkun. Athyglisvert fannst mér, að Bretar telja nauðsyn á miklu meira loftmagni pr. flatareiningu í hlöður en flestir aðrir. Enn fremur er varla talað um súgþurrkun nema með upphituðu lofti. Innanhússprófanir fara fram aðeins á traktorum, áburðardreifurum, sáðvélum og vögnum. Áburðardreifari (skáladr.) er í margra ára prófun þannig, að hver skál hefur í upphafi fengið sína meðhöndlun, galvani- seringu eða einhverja aðra húðun. Með hon- um er dreift áburði á tveggja mánaða fresti. Þá er hann smurður eins og leiðbeint er, annað ekki gert fyrir hann, aldrei hreins- aður. Holland. Hollenzka verkfæraprófunarstöðin í Wageningen er að sjálfsögðu miklu minni en sú brezka í Silsoe, en eigi að síður eru þær framkvæmdar fullkomnar verkfæra- prófanir. Ekki er ástæða til að fjölyrða um tæknileg atriði í sambandi við verkfæra- prófanir þar, frekar en annars staðar, því að tæknin er sú sama að mestu leyti á þess- um stöðum, aðeins virðist vera misjafnlega mikið lagt upp úr hagnýtri reynslu af vél- unum. Þessi stofnun í Hollandi hefur ekki eingöngu með höndum prófun á vélum og verkfærum, sem framleiddar eru af ýmsum framleiðendum í Hollandi og öðrum lönd- um, heldur eru þarna búnar til nýjar vélar og endurbættar gamlar vélar með sérstöku tilliti til hollenzkra aðstæðna.. Einnig eru starfsmenn stofnunarinnar á stöðugum ferðalögum um allt landið, sem að vísu er nú ekki ýkja stórt, og fylgjast þeir mjög rækilega með skurðahreinsun og framvindu í smíði alls konar véla, sem notaðar eru við skurðahreinsunina. Skurðahreinsun er eitt aðalvandamál Hollands í sambandi við landbúnað. Danmörk. Vegna þess, hve verkfæraprófanir eru lík- ar í hinum ýmsu löndum, er hægt að fara hér fljótt yfir sögu og mun ég nú koma að dönsku verkfæraprófunarstöðinni í Byg- holm við Horsens á Jótlandi. Sú stöð er að mínum dómi ef til vill einna bezt rekin af þeim verkfæraprófunarstöðvum, sem ég skoðaði og heimsótti. Þar vinna ekki mjög margir menn, húsakynni eru ekki sérlega hentug, en þeim vinnst ótrúlega mikið. Dönsku prófanirnar eru ekki eins „teore- tiskar“ og prófanir í Englandi, Hollandi og víðar, en þær eru mjög hagnýtar. Öll verk- færi og vélar, sem tekin eru til prófunar, eru margreynd og þrautreynd við hagnýtar aðstæður á búi stofnunarinnar, sem er 150 hektarar að flatarmáli og hefur með hönd- um ræktun á korni, grasfræi og fjölda mörgu öðru. Enn fremur er þar kúa- og svínabú. í þessari stöð hafa verið smíðaðir 2 aflmælar fyrir traktora, (dynamometer), sem eru ætlaðir til þess að lána ráðunaut- um hér og þar í Danmörku. Ráðunautarnir fá þessa dynamometra lánaða og gefa út tilkynningar um, að á vissum stöðum verði traktorar prófaðir fyrir bændur fyrir ákveð- ið gjald á ákveðnum degi. Á þennan hátt er hægt að komast yfir að prófa nokkuð marga traktora yfir daginn. Með þessari prófun er fundið út, hvort traktorarnir skila fullri orku á tengidrifsás. Dynamometrar þessir eru mjög einfaldir. Þeir eru í raun og veru aðeins loftbremsur, blásarar, mjög sterkbyggðir og viðkomandi mæliækjum er komið í samband við þessar loftbremsur. í dönsku verkfæraprófununum gildir sú regla, að enginn er skyldugur til að láta prófa vélar eða verkfæri, en flestir fram- leiðendur og innflytjendur senda þó vélar sínar til prófunar í Bygholm. Niðurstöður prófana eru alltaf birtar, hvort sem þær eru hagstæðar eða ekki, en þó hefur framleið- andi eða seljandi tækifæri til að láta fresta útgáfu og gera vélina betur úr garði, áður en endanleg prófun fer fram. En af hinni endanlegu prófun verða úrslitin birt, en ekki af hinum fyrri prófunum, ef endur- bætur hafa farið fram á vélinni á meðan. Þó er hér til undantekning á, sem sé sú, að

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.