Freyr - 01.03.1959, Qupperneq 7
FRE YR
65
Dráttarvél með vökvaknúnum hreyflum i afturhjólum, smiðuð i tilraunastöðinni i Silsoe, BretlancLi. Vélin er ennþá
á tilraunastigi og verður naumast á markaðnum i bráð.
stundum er hætt við birtingu skýrslunnar,
ef framleiðandi eða seljandi skrifar undir
skjal, þar sem hann lofar að láta vélina
ekki á markað í landinu. Um nokkur ára-
bil eftir síðustu heimsstyrjöld var það nefnd
nokkurra manna, sem ákvað í samráði við
innflutningsyfirvöldin, hvaða vélar væru
hæfar til að flytjast inn í landið. Á þeim
tíma var að sjálfsögðu ekki hægt að kom-
ast yfir að prófa rækilega allar þær vélar,
sem sótt var um innflutning á, en hins veg-
ar kom nefndin mjög oft saman, og sér-
fræðingar skoðuðu vélarnar og gerðu á þeim
athuganir og prófanir, ef möguleikar voru
fyrir hendi og kváðu svo upp úrskurð um
það, hvort vélarnar væru hæfar til inn-
flutnings og notkunar í dönskum landbún-
aði. í þessu sambandi má geta þess, að
stundum hafa heyrzt raddir um það, að inn-
flytjendur búvéla til íslands ættu að vera
skyldugir til að afhenda allar vélar verk-
færanefnd til prófunar. Þetta virðist við
nánari athugun vera með öllu ógerlegt, því
að verkfæranefnd hefur hvorki starfskrafta
né fjárráð, né neinar aðstæður til þess að
framkvæma slíkar prófanir á öllum þeim
vélum, sem inn eru fluttar. Til þess myndi
þurfa mörg ár, og marga starfsmenn þyrfti
að þjálfa í þessu skyni, og mikið fé þyrfti
að nota til þessara prófana. Hins vegar virð-
is verkfæraprófun sú, sem hér hefur farið
fram og þá kannske ekki sízt vinnuathug-
anir, sem gerðar hafa verið á vegum verk-
færanefndar, vera í fullu samræmi við það,
sem gert er erlendis, og á að geta staðizt
fyllilega samanburð við það, sem erlendis
er gert.