Freyr - 01.03.1959, Page 22
80
FREYR
Lesendur Freys
eru beðnir að tilkynna aðsetursskipti til blaðsins og
tilgreina bæði garala og nýja heimilisfangið.
Frá hrútasýningunum 1958.
Á aðalhrútasýningum Bf. ísl„ er haldnar voru í Eyja-
firði, Skagafirði, Húnaþingi, Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu, var meiri þátttaka í sýningum en nokkru sinni
fyrr, og alls sýndir 4111 hrútar. Af þeim voru 2771 2
vetra og eldri og vógu þeir 90,6 kg að meðaltali og 1330
veturgamlir, er vógu 73,9 kg til jafnaðar. I. verðlaun
hlutu 1334 hrútar, 1121 tveggja vetra og eldri og 213
veturgamlir, en dæmdir voru ónothæfir 510 hrútar. Um
sýningarnar verður skrifað ítarlega 1 Búnaðarritið.
Mjólkurgeymar í staff mjólkurbrúsa.
Á árinu 1959 verður meira en helmingur mjólkur-
framleiðslu í Bandaríkjunum fluttur á geymum frá
framleiðendum til mjólkurbúa. Hitt verður sem áður
flutt í venjulegum brúsum.
Ný fræffslurit Bf. ísl. á leiffinni.
Fræðslurit Búnaðarfélags íslands eru nú orðin 32 og
á þessu ári munu verða gefin út nokkur í viðbót. Næsta
fræðslurit nefnist Fóður og búfé i 40 ár og er eftir Pál
Zóphóníasson, fyrrv. búnaðarmálastjóra. Fjallar það,
eins og nafnið bendir til um þróunina í búfjáreign og
heyöflun landsmanna síðustu 4 áratugina. Einnig er
væntanlegt með vorinu rit um Matjurtarækt eftir Ola
Val Hansson, garðyrkjuráðunaut Bf. Isl.; er það rit
framhald af ,,Matjurtagörðum“, sem gefið var út á s.l.
ári. Enn er að nefna ritið Súgþurrkun, eftir Harald
Árnason, vélaráðunaut, og bækling um eldhúsinnbúnað,
eftir Sigríði Kristjánsdóttur, húsmæðrakennara.
Freyr vill hvetja menn til að halda vel saman fræðslu-
ritunum, því ekki er víst, að unnt sé að bæta sér það
upp, ef einhver týnast. Þegar eru nokkur fyrstu fræðslu-
ritin þrotin hjá Bf. Isl. og ófáanleg með öllu.
Tilraunir meff gírfeiti.
Þýzkur rannsóknari, W. Kiene að nafni, skrifar, að
meirihluti dráttarvélaframleiðenda ráðleggi ennþá SAE
90-gírfeiti, þrátt fyrir það, að þynnri tegundin SAE 80
sé algerlega fullnægjandi fyrir nýtízku tanndrif. Kornið
hefur í ljós við tilraunir, að orkunýting í tanndrifi á
venjulegri heimilisdráttarvél, með 30% meðalálagi, eykst
um 5,5% með því að nota þynnri gírfeiti, jafnframt því,
sem 3,3% sparnaður verður á eldsneyti.
Eyrnamörk.
I fyrra birtist grein í Frey nr. 7—9 um eyrnamörk
ásamt myndum af þeirn. Lesendur blaðsins eru vin-
samlega beðnir að lesa grein þessa að nýju og gera blað-
inu aðvart í bréfi ef þeir vita um eða eru vanir öðrum
heitum á mörkum en þeim, sem nefnd eru í greininni,
svo og senda blaðinu athugasemdir í því sambandi, er
einhverjar eru.
Jarffeðlisfræðingar
í Rússlandi telja, að nú sé hægt að bræða allan
Grænlandsís og annan ís í heimskautalöndunum, því að
kjarnorka sé til umráða í nægum mæli til þess. Við
það mundi loftslag á norðurhveli hlýna mjög og land-
búnaðarskilyrði á norrænum slóðum eflast að sama
skapi.
Danskt búnaðarblað skýrir frá rússneskum ráðagerð-
um um þetta, en bætir við, að hugmyndin valdi ekki
hrifningu þar né í öðrum löndum, er liggja lágt yfir
sjávarmál, því að ef heimskautaísinn bráðnaði mundi
yfirborð hafsins hækka svo að Danmörk, Holland og
Austur-England sykkju í sæ, svo og mörg beztu land-
búnaðarsvæði í ýmsum öðrum löndum.
c------------------------------------------------------------------------------------------------------^
Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. - Útgáfunefnd: Einar
Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. - Ritstjóri: Gisli Kristjánsson. -
Ritstjóm, afgreiðsla og innh.: Lækjarg. 14 B, Reykjavlk. Pósth. 390. Sími 19200.
BÚNAÐARBLAÐ Áskriftarverð FREYS er krónur 75.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f.
k______________________________________________________________________________________________________y