Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1960, Page 19

Freyr - 01.11.1960, Page 19
FREYR 347 föll. Þegar þetta er haft í huga veröur þaö skilj anlegt, að þær virðast ekki hafa num- iö land í Rangárþingi og Skaptafellssýsl- um, þar sem vatnsföll taka við frá jöklum til sævar. Þess vegna fyrirfinnast engin bæjarnöfn sem minni á geitur, í þessum sýslum. Um örnefni á þessu svæöi er mér ekki kunnugt nema örnefnið Hafursey á Mýrdalssandi og Hafursá í Mýrdal. Getur hér verið um mannanöfn eða viðurnefni manns að ræða. Um það verður ekkert sagt. Já, nú eru geitur að deyja út í landinu. Sumir munu fagna því, þar sem reynt er að halda því fram, að þær skemmi gróður og stórskaði skóglendi. Hins vegar get ég hiklaust sagt það, og byggi það á minni 50 ára reynslu, að ég hef aldrei orðið þess var, að geitur skemmdu nytjaskóg. Þær halda sig aðallega í skógarjöðrum, en fara lítið sem ekkert í aöalskóginn, enda fyllist hann oftast snjó að haustinu og er ófær hverri skepnu mikinn hluta vetrarins. Mér er sama hvað skógræktarpostularnir segja. En ég sakna geitanna, og landið verður að mun fátækara, þegar geitur eru horfnar með öllu. Þær hafa löngum verið til hagsældar og blessunar og haldið líf- inu í mörgum fátæklingi allt frá land- námstíð og ef til vill hafa þær átt heima í landinu um langan tíma áður en það byggðist. Ef svo er, þá eru hér að deyja út elztu landnemar íslands. Benjamín Sigvaldason, fornbókasali. K artöf luuppskeran var í haust góð og ágæt víSast á landinu nema í sandjörð, en þar var það þurrkur, sem takmarkaði uppskeruna. Fregnir hafa borizt um, að uppskeran hafi sums staðar verið tvítugföld, svo sem á Svalbarðsströnd. Ekki eru enn fengnar tölur, sem eru svo fullkomnar, að tel.ja megi saman hve mikil uppskeran hefur verið samtals. Uppskerutölumar einar segja eigi allt, en kvilla hefur orðið vart með meira móti í uppsker- unni. Sunnanlands hefur borið allmikið á myglu og sums staðar mjög mikið, og ennfremur hefur stöng- ulveiki einnig verið nokkur á vissum svæðum. Mjaltarvélarnar eru ekki í lagi hjá öllum bændum Svíþjóð- ar þó að þar í landi sé hin fullkomnasta mjaltavélaíramleiðsla, sem þekkist. Jordbrukarnas Föreningsiblad skrifar um þetta efni m. a. þann 30. júlí s. 1. Vélgengið hefur sína galla, sem koma fram á bæði mönnum og skepnum. Júgur- kvillar hafa t. d. orðið mun algengari sið- an farið var að nota mjaltavélar, en áður gerðist. Auðvitað er þetta ekki vélunum að kenna, heldur hinu, að þær eru misnotað- ar og ekki rétt með farnar, en árangur- inn verður svo sá, að spenum og júgrum kúnna er misboðið. Algeng veila við mjaltirnar er að sog- skiptin eru allt of ör. Sogskiptir á að skipta 35—40 sinnum á mínútu og þessi hraði verður ekki ákveðinn nema staðið sé með úrið í hendinni til þess að sannfærast um hvort réttur sé. Þá er annar galli sá, að loftþynningin er ekki í lagi. Að minnsta kosti einu sinni í mánuði þarf að hreinsa loftleiðsluna, skola hana með vatni íblönduðu þvottaefni og síðan með heitu vatni og hreinu. Að því búnu skal setja vélar í gang og gegnlofta allt kerfið. Að sjálfsögðu þarf einnig að hreinsa loftvent 1. Sé notuð olíudæla þarf auðvitað að hreinsa hana við og við. Og svo er bakteríugróöurinn. Sumir láta mjaltavélina hanga á kúnni og halda á- fram að sjúga, löngu eftir að öll mjólk er sogin úr júgri hennar. Við þetta sogast spenahylkið upp á júgrið, lokunarvöðvinn merst, og innrás baktería er auðveld. Marg- ar tegundir af bakteríum geta valdið júgur- bólgu. Stundum kemur hún hægfara stund- um fer hún geyst. Ekki á mjaltavélin sök á allri júgurbólgu. Spenastig getur einnig verið upphaf hennar, stundum rífa kýrnar spenana á gaddavír eða öðru, er gefur opið sár og smitun. En einatt er það misnotkun mjaltavélanna, sem veldur alvarlegustu júg- urkvillunum. Svona er það þá í Svíþjóð. Ætli að ástæð- urnar séu nokkuð betri hjá okkur íslend- ingum?

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.