Freyr - 01.06.1966, Page 8
270
FREYR
Nýtl mœlaborð er á Ferguson dráttarvélunum,
með öllum nauðsynlegum mœlum.
í verði, vegna gengislækkunarinnar, að
bændur treystu sér þá ekki almennt til að
kaupa nýjar dráttarvélar — eins og með
þurfti. Þessvegna var það, sem við útveguð-
um notaðar dráttarvélar frá Bretlandi. Þær
voru keyptar frá mörgum aðilum, sem
voru ekki allir jafn heiðarlegir, svo dráttar-
vélarnar reyndust ekki allar nægilega vel.
Nú höfum við gert þær breytingar, að við
kaupum aðeins notaðar dráttarvélar frá
einu fyrirtæki, síðan hafa engar kvartanir
komið frá bændum um að þær reyndust
illa. Við flytjum inn 20—30 notaðar vélar
árlega. En af nýjum og notuðum dráttar-
vélum seldum við 326 á síðastliðnu ári. •—
Mest seljum við af MF 135, 46 hö.
— Hvaða ámoksturstœki eruð þið með?
— Þau heita Mil-master frá — Midland
verksmiðjunum. Þessi tæki eru mjög létt
og þægileg í meðferð, auðvelt er að tengja
þau við dráttarvélarnar. Verðið, með spíss-
skóflu, er 18.000 kr. Einnig erum við með
frá sömu verksmiðju heykvíslar, sem voru
mest seldu heykvíslarnar á síðastliðnu ári.
En áður seldum við heykvíslar frá Kverne-
land. Nú gerum við einnig ráð fyrir, að fá
til sölu heygreipar frá Midland.
— Hvað með önnur tæki til heyskapar?
— Það er fyrst að nefna sláttuvélina Bu-
satis, hún er þýzk og hefur reynzt mjög vel
hér á landi. Við erum með tvær gerðir af
henni, eins og tveggja ljáa, kostar sú síðar-
nefnda um 19.000 kr. Bændur, sem hafa
fengið sér þessa tveggja ljáa vél, hafa allir
lofað hana, fyrir góð og mikil afköst. Auk
þess bjóðum við sláttuvélar frá Massey-
Ferguson.
Á þessu ári munum við flytja inn Serigs-
stad sláttutætara, en við höfum nýlega
fengið umboð fyrir þá hér á landi. Þessi
sláttutætari er norskur, skilar miklum af-
köstum miðað við aflþörf. Sennilega verður
einn tætari prófaður á Hvanneyri í sumar.
Busatis tveggja Ijáa sláttuvél, þessi sláttuvél hefur reynzt
mjög vel hér á landi.
— Þið eruð einnig með jarðtœtara?
— Við höfum verið með Agrotiller jarð-
tætarana, — þeir eru í stærðunum frá 40
tommum og upp í 80 tommur, bæði drag-
tengdir og lyftutengdir. Þessir tætarar hafa
reynst vel hér á landi, enda mjög traustir,
við höfum selt um 30 stk. árlega, mest selj-
um við 50—60 tommu tætara.
— Hvernig gengur með skurðgröfurnar?
— Það er nú svo ný til komið, að við
fengum umboð fyrir Poclain gröfurnar,
sem við bindum miklar vonir við. Þetta er
lang stærsta fyrirtækið í vökvaknúnum
gröfum í V.-Evrópu. Þegar upp úr árinu
1950 fóru þeir að framleiða slíkar gröfur.